Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni o... more
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 106 episodes available.
January 27, 2022Evrópukeppni Bocuse d‘Or með Sigurjóni B. Geirssyni matreiðslumanniHér er rætt við Sigurjón Braga Geirsson matreiðslumann, en hann verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni Bocuse d‘Or í Búdapest núna í mars. Tíu efstu sætin í Evrópukeppninni ávinna sér rétt til að keppa í aðalkeppninni í Lyon árið 2023. Sigurjón býr yfir gríðarlegri reynslu sem fulltrúi í kokkalandsliði Íslands, keppandi og þjálfari. Hér er á ferðinni fróðlegt og skemmtilegt spjall um leiðina til Lyon....more22minPlay
January 23, 2022Útgáfa og sala á ljósmyndabókum með Marteini JónassyniÚtgáfa og sala á ljósmyndabókum með Marteini Jónassyni by IÐAN fræðsluetur...more22minPlay
January 13, 2022Breytt landslag á prentmarkaðinum með Guðmundi R. Guðmundssyni eiganda Prentmets OddaGuðmundur Ragnar Guðmundsson á og rekur prentsmiðjuna Prentmet Odda ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur. Þau hjónin hafa byggt upp fyrirtækið sem býður upp á fjölbreytta prentun og reka útibú á Selfossi og á Akureyri. Guðmundur segir mikil tækifæri liggja í umbúðaprentun og segir neytendur meðvitaða um umbúðir. Þá telur hann að bókaprentun muni ekki snúa aftur til Íslands í því formi sem hún var en segir tækifærin liggja í endurútgáfu í smærra upplagi. Skemmtilegt spjall um prentbransann á Íslandi í dag og hvernig það er að reka fyrirtæki á þeim vettvangi....more22minPlay
January 06, 2022Talning á nýbyggingum með Friðriki Ólafssyni viðskiptastjóra hjá Samtökum iðnaðarinsFriðrik Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins, ræðir hér við Ólaf Ástgeirsson, sviðsstjóra hjá IÐUNNI um talningu á nýbyggingum og hvers vegna svo mikilvægt er að hafa slíka talningu rétta, sérstaklega með tilliti til fjármögnunar verka....more31minPlay
December 21, 2021Stærsta byltingin er hljóðbókin en prentaða bókin heldur velliGrímur Kolbeinsson ræðir við Halldór í nýjasta þætti Augnabliks í iðnaði um breytingar í bókaútgáfu, taugastríðið í jólabókaflóðinu og hvað íslenskar prentsmiðjur ættu að gera í samkeppni við erlendar prentsmiðjur....more26minPlay
December 20, 2021Netspjall og snjallmenni með Yngva Tómassyni hjá LeikbreytiÞað eru mikil tækifæri í sjálfvirknivæðingu og notkun snjallmenna, m.a. til að svara endurteknum spurningum segir Yngvi. Við sérsníðum lausnir fyrir hvern og einn viðskiptavin með því að innleiða netspjall til að byrja með. Þannig söfnum við algengum spurningum til fyrirtækisins og þegar þeim hefur verið safnað saman er snjallmennið tilbúið með svörin....more24minPlay
December 09, 2021Réttingar á bílum, staða og framtíð með Gunnlaugi Jónssyni og Vali Helgasyni bifreiðasmiðumHér ræða þeir Valur Helgason og Gunnlaugur Jónsson bifreiðasmiðir við Sigurð Svarar Indriðason um réttingabransann á Íslandi. Hvar hann stendur í dag og hvernig þeir félagar sjá framtíðina fyrir sér í faginu. Báðir eru þeir með áralanga reynslu og hafa komið að vottunum, endurmenntun og sveinsprófum í bifreiðasmíði....more35minPlay
November 25, 2021Konur í iðnaði með Margréti Halldóru Arnarsdóttur, formanni Félags FagkvennaMargrét Halldóra Arnarsdóttir er formaður Félags fagkvenna en það er félag kvenna í karllægum iðngreinum. Sjálf er hún rafvirki og þekkir vel þær áskoranir sem fylgja því að starfa í iðngrein þar sem kynjahlutfall er ójafnt. Í viðtalinu fara þau Ólafur Ástgeirsson yfir víðan völl en þau ræða t.d. um val á námi, iðnnám, samningar, karllægt umhverfi og skort á kvenlægum fyrirmyndum í karllægum greinum....more33minPlay
November 18, 2021Ábyrgðamaður suðumála með Gerry McCarthy, IWE.Gerry McCarty hefur yfir þrjátíu ára reynslu í máliðnaðinum. Hann hefur unnið við kröfulýsingar, hönnun, suðu, rekstur og gæða- og CE merkingar auk þess að vera IWE (International Welding Engineer). Hér spjallar hann við Gústaf A. Hjaltason IWE um ábyrgðamann suðumála hjá fyrirtækum og námskeið sem hann kennir hjá IÐUNNI. Gerry á og rekur fyrirtækið Welding Quality Management Services Ltd á Írlandi....more13minPlay
November 11, 2021Staða og framtíð íslenska eldhússins með Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur eiganda HnossFanney Dóra Sigurjónsdóttir er matreiðslumaður með mikla ástríðu fyrir íslensku hráefni. Ragnar Wessman stjórnandi hlaðvarpsins fyrri matvæla- og veitingasvið fékk hana í spjall um stöðu og framtíð íslenska eldhússins. Fanney Dóra hefur nýopnað veitingastaðinn Hnoss í Hörpunni, ásamt Stefáni Viðarssyni. Fanney Dóra hefur verið í íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2017 og verið stjórnarmaður og varaforseti Klúbbs matreiðslumanna frá árinu 2018....more35minPlay
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 106 episodes available.