Hlaðvarp Lestrarklefans

Hlaðvarp Lestrarklefans

By LestrarklefinnSociety & CultureArtsBooks
Download on the App Store

All Hlaðvarp Lestrarklefans episodes

  • 9. Aðdráttarafl smásögunnar

    Í níunda þætti Hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um smásögur, aðdráttarafl þeirra og hvort markaðsöflin komi í veg fyrir blómlegri útgáfu smásagna. Þær eru einnig höfundar smásagnasafnsins Innlyksa sem kom út í byrjun apríl og ræða því einnig um aðferðir við að skrifa stuttar sögur og texta.

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

    47 min
  • 8. Bókaútrás með Pedro Gunnlaugi Garcia

    Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða Díana og Sjöfn við rithöfundinn Pedro Gunnlaug Garcia sem er þekktastur fyrir skáldsöguna Lungu sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2022. Pedro segir frá ferðum sínum erlendis á bókmenntahátiðir þar sem Lungu hefur nú verið þýdd á fjölda tungumála.

    Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

    52 min
  • 7. Þýðingar með Hörpu Rún

    Í sjöunda þætti hlaðvarps Lestrarklefans fengum við góðan gest, rithöfundinn og bóndann Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Hún starfar einnig sem þýðandi og hefur meðal annars þýtt bækur Emily Henry og leikritið Rómeó og Júlíu eftir sjálfan Shakespeare.

    Þáttarstjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.

    48 min
  • 6. Hinsegin bókmenntir með Bergrúnu

    Í hlaðvarpi Lestrarklefans í dag ræðum við um flóru hinsegin bókmennta. Til okkar kom góður gestur, Bergrún Andradóttir skrifstofustýra og aðstoðarframkvæmdarstjóri Samtakanna ´78. Bækur sem voru meðal annars ræddar, Eldri konur, You Exist Too Much, Drottningarnar í garðinum, DJ Bambi, Ungfrú Ísland, Herbergi Giovanni ásamt fleirum.

    Þáttastjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.

    45 min
  • 4. Jólabókaflóðið með Villa Neto

    Í jólabókaflóðsþætti Lestrarklefans fengum við góðan gest, leikarann og grínistann Vilhelm Neto. Rætt var um nýútkomnar bækur, hvað við erum að lesa og mikilvægi þess að bera út boðskap bóklesturs á TikTok!

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare.

    36 min
  • 3. Jólabækur og notalegheit

    Í þriðja þætti fjalla Rebekka Sif og Díana Sjöfn um jólalegar bækur eða svokallaðar jólabækur. Bæði fyrir fullorðna og börn. Inn í það blandast jólahefðir, notalegheitin við lestur yfir hátíðarnar og að lokum örstutt umræða um jólabókaflóðið.

    37 min
  • 2. Sjálfsútgáfa með Halldóri Armand

    Í öðrum þætti ræðum við sjálfsútgefið rusl, Mikilvægt rusl og hvernig rithöfundurinn Halldór Armand yrði flokkaður ef hann væri rusl. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann.

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

    43 min