Húðkastið

Húðkastið

By HúðlæknastöðinMedicineHealth & Fitness
Download on the App Store

Húðkastið episodes

  • PCOS - Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni

    Hvað er PCOS og hvernig er það greint? Hvaða húðeinkenni geta verið til staðar í PCOS og er hægt að meðhöndla sjúkdóminn? Í þessum þætti fær Dr. Ragna Hlín til sín tvo góða gesti, Dr. Heiðdísi Valgeirsdóttur kvensjúkdómalækni og Steinunni Arnarsdóttur innkirtlalækni, og saman fara þær yfir allt sem viðkemur PCOS eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni eins og það heitir á íslensku.

    1 hr 1 min
  • Atópískt exem (barnaexem) II - Meðferðir

    Hversu mikilvægt er fyrir fólk með atópískt exem að nota rakakrem daglega og hvaða meðferðir eru í boði ef sterakremin eru hætt að virka? Er hægt að lækna atópískt exem? Í þessum þætti förum við í gegnum þá meðferðarmöguleika sem eru í boði fyrir atópískt exem og hvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja endurteknar versnanir á exeminu.

    46 min
  • Atópískt exem (barnaexem) I – Orsakir og einkenni

    Hvers vegna er atópískt exem svona algengt og hverjar eru orsakir þess?  Tengist þessi tegund exems matarofnæmi? Breytast einkenni exemsins með aldri og eru fullorðnir líka með atópískt exem? Þessum spurningum munum við svara og mörgum fleiri í þættinum.

    54 min
  • Keratosis pilaris - kjúklingahúð?

    Ert þú með litlar bólur á handleggjum og lærum?  Viltu vita hvað þetta er & hvort sé hægt að meðhöndla þetta? Í þessum þætti skoðum við þennan mjög svo algenga kvilla sem allt að 40% fullorðna og a.m.k. 50% barna eru með og útskýrum orsakir hans.  Einnig ræðum við hvað sé hægt að gera til að halda honum í skefjum.

    26 min
  • Blettaskoðanir og húðkrabbamein

    Hefur þú farið í blettaskoðun?  Ef ekki, útskýrum við hvað felst í því að fara í blettaskoðun hjá húðlækni og hvernig við eigum að fylgjast með fæðingarblettunum okkar.  Einnig ræðum við 3 algengustu tegundir húðkrabbameina, m.a. sortuæxli, og lærum að þekkja einkenni þeirra.

    40 min
  • Af hverju þurfum við sólarvarnir?

    Útfjólublá geislun sólarinnar er megin orsök húðkrabbameina og 80% af öldrun húðarinnar stafar eingöngu af sólargeislun.  Sólarvarnir eru þess vegna nauðsynlegar til að verja okkur.  Í þessum þætti ræðum við hvers vegna við eigum að nota sólarvarnir, hvað ber að hafa í huga við val á sólarvörnum og hvernig við eigum að haga okkur í sólinni.

    49 min
  • Lýtaaðgerðir og fylliefni með Hannes Sigurjónssyni lýtalækni

    Hannes Sigurjónsson, lýtalæknir á Dea Medica, kom í Húðkastið og sagði okkur frá fitusogi, svuntuaðgerðum, Brasilian buttlift og fleiri lýtaaðgerðum sem eru framkvæmdar á Íslandi.  Eining ræðum við um fylliefni og vöntun á reglugerðum þegar kemur að hinum ýmsu fegrunaraðgerðum sem eru gerðar á Íslandi í dag.

    1 hr
  • Fylliefni

    Hvað eru þessi fylliefni sem allir eru að tala um?  Eru þetta alveg náttúruleg og skaðlaus efni og til hvers eru þau notuð? Eru þau bara notuð í varafyllingar? Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í þætti dagsins sem fjallar um fylliefni.

    1 hr 7 min
  • Mýtur um bólur

    Virkar tannkrem á bólur?, Eru unglingar bara með bólur?, Má kreista bólur?  Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í Húðkastþættinum um algengar mýtur um bólur og bólumeðferðir.

    35 min
  • Lýtaaðgerðir með Davíð Jenssyni lýtalækni

    Við fengum Davíð Jensson, lýtalækni hjá Dea Medica, til að koma og ræða við okkur um vinsælar lýtaaðgerðir sem boðið er uppá á Íslandi.  Hann fræðir okkur meðal annars um augnlokaaðgerðir, facelift, fituflutninga og margt fleira spennandi.

    48 min

About Húðkastið

From the publisher's feed

Húðkastið er podkastþáttur Húðlæknastöðvarinnar um allt sem viðkemur húð, frá húðvandamálum til fegrunaraðgerða og allt þar á milli. Við heitum Ragna Hlín og Jenna Huld, og við erum húðlæknar með…

More shows like Húðkastið

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners