
Sign up to save your podcasts
Or


Karlmenn hafa verið tregari til að hugsa vel um húðina en konur. Af hverju, er þetta feimnismál hjá körlum og hvað getum við ráðlagt þeim sem langar að byrja? Við fengum Helga Ómarsson samfélagsmiðlastjörnu með meiru til að ræða einmitt þetta og margt fleira.
,,Það skiptir ekki máli í hvaða röð vörur eru notaðar‘‘ & ,,allir verða að nota næturkrem“. Í þessum þætti ætlum við ræða þessa mýtur og margar fleiri varðandi umhirðu húðarinnar.
,,Retinól þynna húðina‘‘ & ,,olíukennd húð þarfnast ekki raka‘‘. Í þessum þætti ætlum við að hrekja þessar og fleiri mýtur um umhirðu húðarinnar.
Við höldum áfram að ræða um bólur í þessum húðkastsþætti og ætlum meðal annars að ræða mismunandi meðferðarmöguleika og hversu mikilvægt það er að velja réttar húðvörur þegar verið er að kljást við bólur.
Bólur eða Acne Vulgaris er gríðarlega algengur sjúkdómur sem hefur mikil áhrif á sjálfsmynd og sjálfstraust fólks. Það er mikilvægt að vita að til eru lausnir! Í þessu Húðkasti ætlum við meðal annars að kanna orsakir og mismunandi undirtegundir þessa húðsjúkdóms.
Við ætlum að fjalla eina allra vinsælustu fegrunarmeðferðina í heiminum í dag, toxín! Hvað er toxín, hvernig er það notað og í hvaða tilgangi? Er toxín hættulegt? Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í þætti dagsins.
Rósroði er algengur langvinnur bólgusjúkdómur í húð, sem einkennist af roða, háræðaslitum og bólum í andliti. Í þessum þætti ræðum við tegundir, orsakir og hvaða meðferðir eru í boði fyrir fólk með rósroða.
Við höldum áfram að ræða öldrun húðarinnar og leggjum áherslu á virkar húðvörur sem geta hjálpað okkur að sporna við ótímabærri öldrun. Skoðun m.a. retinól, andoxunarefni og ávaxtasýrur. Svo má ekki gleyma sólarvörninni!
Í fyrsta þætti Húðkastsins ræðum við efni sem gætir sífellt meiri vinsælda eða öldrun húðarinnar. Við komum inn á orsakir húðöldrunar, hvað einkennir aldraða húð og hvað við getum gert til að fyrirbyggja ótímabæra öldrun hennar.
Af hverju ákveða 3 húðlæknar að setja af stað hlaðvarp? Og ekki bara eitthvað hlaðvarp, heldur fyrsta læknahlaðvarpið á Íslandi! Ragna Hlín, Jenna Huld og Arna Björk útskýra það í kynningarþætti Húðkastsins og segja frá menntun, reynslu og störfum sínum.
From the publisher's feed

215 Listeners

131 Listeners

29 Listeners