Huldufólk fullveldisins

Huldufólk fullveldisins

By RÚVArts
Download on the App Store

Huldufólk fullveldisins episodes

  • Dýrfinna Sigurjónsdóttir ljósmóðir
    Dýrfinna Sigurjónsdóttir ljósmóðir er huldukona 8. þáttar. Hún starfaði sem ljósmóðir í Reykjavík í rúm 50 ár og á áttunda og níunda áratugnum var Dýrfinna nánast eina ljósmóðirin sem tók á móti börnum hjá konum sem vildu fæða heima. Lesið er út bókinni Lausnarsteinar - ljósmóðurfræði og ljósmóðurlist og að auki vitnað í Morgunblaðsgreinar.
    Viðmælendur eru Dýrfinna Sigurjónsdóttir ljósmóðir og Ólöf Ásta Ólafsdóttir prófessor í ljósmóðurfræðum við Háskóla Íslands.
    53 min
  • Halldór Vilhjálmsson skólastjóri
    Huldumaður næsta þáttar er Halldór Vilhjálmsson skólastóri á Hvanneyri. Halldór var fræðimaður og frumkvöðull og hafði gríðarleg áhrif á búskaparhætti hér á landi. Hann var skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri í tæp 30 ár og átti sér þann draum stærstan að til yrði menntuð bændastétt hér á landi og vildi að þeir sem sunduðu nám á Hvanneyri yrðu sómi sinnar sveitar.
    Bjarni Guðmundsson Professor emeritus við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri segir frá Halldóri í þættinum en hann skrifaði ævisögu Halldórs.
    Ævisagan heitir heitir Halldór á Hvanneyri - sagar fræðara og frumkvöðuls í landbúnaði á tuttugustu öld og í þættinum eru lesnir stuttir kaflar úr henni.
    50 min
  • Sigursveinn D. Kristinsson
    Huldumaður þessa þáttar er Sigursveinn D. Kristinsson skólatjóri og tónskáld. Það eru bræðurnir Sigursveinn Magnússon fv skólastjóri og Örn Magnússon píanóleikari sem segja frá móðurbróður sínum.
    Í þættinum eru leikin tvö lög eftir Sigursvein; Fylgd sem hann samdi við ljóð Guðmundar Böðvarssonar. Sigrún V. Gestsdóttir syngur einsöng og Brynja Guttormsdóttir leikur undir á píanó. Hitt lagið er Fyrsti maí sem var samið við ljóð Jóhannesar úr Kötlum, flutt af Maíkórnum - stjórnandi Sigursveinn Magnússon.
    Að auki leikur Örn Magnússon eitt lag á píanó, Burlesca eftir Pál Ísólfsson.
    53 min
  • Sigursveinn D. Kristinsson
    Huldumaður þessa þáttar er Sigursveinn D. Kristinsson skólatjóri og tónskáld. Það eru bræðurnir Sigursveinn Magnússon fv skólastjóri og Örn Magnússon píanóleikari sem segja frá móðurbróður sínum.
    Í þættinum eru leikin tvö lög eftir Sigursvein; Fylgd sem hann samdi við ljóð Guðmundar Böðvarssonar. Sigrún V. Gestsdóttir syngur einsöng og Brynja Guttormsdóttir leikur undir á píanó. Hitt lagið er Fyrsti maí sem var samið við ljóð Jóhannesar úr Kötlum, flutt af Maíkórnum - stjórnandi Sigursveinn Magnússon.
    Að auki leikur Örn Magnússon eitt lag á píanó, Burlesca eftir Pál Ísólfsson.
    53 min
  • Benóný Ásgrímsson
    Huldumaður þessa þáttar er Benóný Ásgrímsson fyrrverandi yfirflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni. Hann bjargaði mörgum mannslífum á ferli sínum og það er honum og þremur félögum hans að þakka við eigum þyrlusveit í dag. Einnig er talað við Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar í þættinum. Að auki eru notaðir gamlir fréttabútar úr safni Rúv og lagið sem heyrist í þættinum heitir La salle et la terrasse og er flutt af Charles Aznavour.
    53 min
  • Anna Þórarinsdóttir
    Anna Þórarinsdóttir sjúkraþjálfari er huldukona þessa þáttar. Anna var fyrst Íslendinga til að starfa með börnum, bæði greindarskertum og hreyfihömluðum og hafði djúp áhrif á þá sem henni kynntust.
    Viðmælendur í þættinum eru:
    Dr. Dóra S. Bjarnason móðir Benedikts sem var einn þeirra sem Anna þjálfaði með einstökum árangri.
    Sigurður Valgeirsson tengdasonur Önnu
    Ástríður Stefánsdóttir dóttir Önnu
    Friðrik Sigurðsson fv. framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
    -Auk þess er spilaður smá bútur úr skólaverkefni sem Hrefna Sigurðardóttir barnabarn Önnu vann ásamt Söru Hjördísi skólasystur sinni en þær fóru og tóku viðtal við Önnu upp á gamalt kasettutæki.
    Tónlist:
    Í dag skein sól - flytjendur Brjánn Ingason og Anna Guðný Guðmundsdóttir
    Venus as a boy - Björk
    Ást - Ragnheiður Gröndal ( en Ragnheiður var ein af þeim ungu tónlistarkonunum sem Anna hafði miklar mætur á)
    49 min

About Huldufólk fullveldisins

From the publisher's feed

Sagt er frá tíu Íslendingum sem hafa allir, hver á sinn hátt gert líf samborgara sinna betra og auðugra, án þess endilega að hafa verið hampað sérstaklega fyrir framlag sitt.