Huldufólk fullveldisins

Huldufólk fullveldisins

By RÚVArts
Download on the App Store

Huldufólk fullveldisins episodes

  • Ewald Berndsen
    Ewald Berndsen sem fleiri þekktu undir nafninu Lilli Berndsen er huldumaður þessa þáttar. Tómas Agnar Tómsson iðnrekandi og vinur hans lýsti honum með eftirfarandi orðum í minningargrein í Morgunblaðinu.
    "Gælunafnið eitt sér var þversögn; maðurinn var mikill á velli, vel byggður og hafði svo sterka návist að jafnvel í þéttsetnum sal var sem hann sæti þar einn ­ og þagði þó oftast utan á hann væri yrt; fæddur heimsmaður og hvergi lítill. Lífshlaupið var eins og tónverk í abstraksjón; skalinn sprengdur upp og niður ­ öllu kerfi gefið langt nef. Íslandsmeistari í knattspyrnu, ungur með félögum sínum; golfmeistari Íslands á sínum tíma; bridsmeistari litlu síðar; ryksuga á listir og menningu alla, efnaður athafnamaður með bjarta framtíð og fríða fjölskyldu sér við hlið ­ og rennir sér svo fullur á rassinum niður í ystu myrkur mannlegrar óhamingju: utangarðsmaður, King of the Road."
    En svo hætti Lilli að drekka og helgaði líf sitt því að hjálpa öðrum sem glímdu eins og hann við áfengisvanda.
    Í þessum þætti segir Tómas Agnar frá Lilla vini sínum og einnig eru spilaðir bútar úr þætti Jónasar Jónassonar, Mesta mein aldarinnar frá 1977 þar sem Jónas ræddi við Ewald.
    53 min
  • Barbara Stanzeit
    Huldukona þessa þáttar er Barbara Stanzeit meinatæknir, leiðsögumaður og náttúrunnandi. Barbara kom hingað til lands fyrir hálfgerða tilviljun og leist ekki meira en svo á til að byrja með. En svo kom vorið eins og hún segir sjálf og þá varð ekki aftur snúið. Hún féll fyrir landi og þjóð og svo fór að hún settist hér að. Hún var ein af stofendum Skógræktarfélags Garðabæjar og þeir sem leggja leið sína í skóginn sem vaxið hefur upp í Smalaholtinu og fleiri holtum Garðabæjar eiga hann fólki eins og Barböru að þakka. Í þættinum segir Barbara sögu sína; hvernig var að alast upp í þriðja ríki Hitlers, hvernig var að vera flóttamaður í eigin lífi og lífinu á Íslandi. Einnig er talað við Jónatan Garðarsson formann Skógræktarfélags Íslands um ómetanlegt framlag áhugafólks til skógræktar, fólks eins og Barböru sem sinnir skógrækt af alúð og ástríðu.
    53 min
  • Aðalheiður Hólm Spans
    Fjallað um Aðalheiði Hólm Spans, frá Eysteinseyri við Tálknafjörð.
    Sólveig Þorbergsdóttir listakona og kennari, Jakobína Hólm systurdóttir hennar, Jón Kristinsson arkitekt og Þorvaldur Kristinsson rithöfundur segja frá henni.
    Umsjón: Margrét Blöndal.
    51 min

About Huldufólk fullveldisins

From the publisher's feed

Sagt er frá tíu Íslendingum sem hafa allir, hver á sinn hátt gert líf samborgara sinna betra og auðugra, án þess endilega að hafa verið hampað sérstaklega fyrir framlag sitt.