Hundrað ár, dagur ei meir

Hundrað ár, dagur ei meir

By RÚVArts
Download on the App Store

Hundrað ár, dagur ei meir episodes

  • Bernskan
    Sú hugmynd sem er að veði í þessum síðasta þætti er hugmyndin um bernskuna.
    Ferðalag þáttarins hefst 1. desember 1918 og þar með erum við komin aftur - eða er rétt að segja fram - til þeirrar stundar er Ísland varð fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku, daginn sem markað hefur með afgerandi hætti undanfarin hundrað ár á Íslandi. Þó árið 1918 tilheyri 20. öldinni þá má þó segja að það standi á flekaskilum nítjándu aldarinnar og þeirrar tuttugustu, sveitasamfélag nítjándu aldar lét aðeins varlega undan síga á meðan stórstígar framfarir sem áttu eftir að umbylta íslensku samfélagi á tuttugustu öld voru rétt að hefjast. Í þessum þætti staðsetjum við okkur á mótum nítjándu og tuttugustu aldanna, og hugum að bernsku þessara tveggja alda.
    Í þættinum hljóma raddir Kristrúnar Heimisdóttur lögfræðings, Guðfinnu Ragnarsdóttur fyrrum menntaskólakennara, Guðmundar Hálfdánarsonar sagnfræðings, Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur menningarfræðings, Sigurðar Gylfa Magnússonar sagnfræðings og Önnu Bjarnadóttur,
    Sem fyrr hljómar tónlist Jóhanns Jóhannssonar í þættinum, dagskrárgerð annaðist Marteinn Sindri Jónsson með fulltingi Þorgerðar E. Sigurðardóttur og Einars Sigurðssonar tæknimanns.
    1 hr
  • Þjóðarlíkaminn: Glímukóngurinn
    Í þessum níunda þætti hugmyndasögu fullveldisins sem líta má á sem sjálfstætt framhald fyrsta þáttar, Þjóðarlíkaminn: Líkami konungsins, er fjallað um gullöld glímunnar í ljósi kenninga frönsku heimspekinganna Michel Foucault og Gilles Deleuze um ögunar- og stýringarsamfélög. Þessi hugtök varpa ljósi á hinar ýmsu birtingarmyndir valds í samfélaginu, sem margar hverjar standa utan við og jafnvel í andstöðu við fullveldi ríkisins.
    Í þættinum er rætt við Björn Þorsteinsson heimspeking, Guðmund Hálfdánarson sagnfræðing, Kristínu Loftsdóttur mannfræðing, Nönnu Hlín Halldórsdóttur heimspeking og Valdimar Hafstein þjóðfræðing.
    1 hr
  • Bananar 2: Bananar á Þingvöllum
    Þann 17. júní 1944 var lýðveldi stofnað á Þingvöllum. Þátturinn "Bananar á Þingvöllum" er sjálfsætt framhald af þættinum “Bananar á Kárahnjúkum“ þar sem fjallað var um stöðu Íslands á 20. öld sem smáríkis sem þarf að hafa sig allt við til að sporna gegn erlendum áhrifum. Í þeim þætti var fjallað um virkjanaframkvæmdir og stóriðju og hugtakið bananalýðveldi kom við sögu en það hefur gjarnan verið notað til að lýsa ríkjum sem illa geta spornað við áhrifum erlendra aðila vegna smæðar sinnar eða veikrar stjórnskipunnar.
    Þegar orð eins og bananalýðveldi er notað, vísar það vissulega til lýðveldisstofnunarinnar, en það vísar jafnframt afar sterkt til ákveðinnar heimsskipunar, þar sem stórir hlutir heimsins, sem gjarnan er vísað til sem þriðja heimsins, þjóna hagsmunum annarra heimshluta, sem hlýtur þá að vera fyrsti heimurinn. Staða Íslands í þessu stigveldi sem er í raun afsprengi nýlenduvæðingar heimsins hefur löngum verið óljós þó fáir efist sennilega um að Ísland sé í dag meðal velmegandi ríkja, að minnsta kosti eins og sakir standa. Orð eins og nýlenda, hjálenda og dullenda eru stundum færð til bókar í tilraunum til að ramma inn stöðu Íslands í heiminum og í þessum þætti munum við rekja þessa þræði nánar. Það má því segja að hér sé lýðveldisstofnunin ekki svo mikið til umfjöllunar, miklu heldur fullveldi Íslands og staða þessa litla lýðveldis í heiminum.
    Tæknimaður er Einar Sigurðsson, Guðni Tómasson aðstoðaði við dagskrárgerð og viðmælendur þáttarins eru Ann-Sophie Grimaud (borið fram Grímó), listfræðingur, Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur, Kristinn Schram þjóðfræðingur, Kristín Svava Tómasdóttir sagnfræðingur og ljóðskáld sem jafnframt les úr verki sínu Skrælingjasýningin og Sara S. Öldudóttir sýningarstjóri listahátíðarinnar Cycles.

  • „Hér með sendast hinu háa ráðuneyti, kvensokkar úr nælon“
    Árið 1951 gerðu Íslendingar varnarsamninga við Bandaríkin og hófst þar með einn af veigameiri köflum íslenskrar fullveldissögu. Gjarnan er rætt um þrífót fullveldis, sem tilgreinir þá þætti sem mynda undirstöðu fullvalda ríkis, varnarlegt fullveldi, efnahagslegt fullveldi og menningarlegt fullveldi. Allir þurfa þessir þættir að vera fyrir hendi með einum eða öðrum hætti svo að ríki geti talist fullvalda og allir koma þeir við í sögu þeirra viðburða sem gert er skil í þessum sjöunda þætti hugmyndasögu fullveldisins, "Hundrað ár, dagur ei meir".
    Í þættinum ræðir Marteinn Sindri Jónsson við Friþór Eydal sem hóf störf árið 1983 sem upplýsingafulltrúi Varnarliðsins, Hauk Ingvarsson bókmenntafræðing og Kristínu Svövu Tómasdóttur sagnfræðingur.
    57 min

  • Bananar 1: Bananar á Kárahnjúkum
    Álverið í Straumsvík hóf tilraunastarfsemi árið 1969 og markaði þar með upphaf stóriðjustarfsemi á Íslandi. Á þeim tíma snerist umræða um áhrif stóriðju ekki síst um ítök erlendra aðila, og þó náttúruverndarumræða hafi sannarlega spilað nokkuð hlutverk, þá var bygging álversins ekki síst fullveldisspurning, spurning um hvar valdið - í þessu tilfelli efnahagsvaldið - lá.
    Bananar á Kárahnjúkum er fyrri þáttur af tveimur sem fjalla um stöðu Íslands á 20. öld sem smáríkis sem þarf að hafa sig allt við til að sporna gegn erlendum áhrifum. Hugtakið bananalýðveldi, hefur gjarnan verið notað til að lýsa ríkjum sem illa geta spornað við áhrifum erlendra aðila og orð eins og nýlenda, hjálenda og dullenda eru stundum færð til bókar í tilraunum til að ramma inn stöðu Íslands í heiminum. Þessir þræðir verða raktir nánar í seinni þættinum sem verður ekki á dagskrá að viku liðinni heldur síðar í þessari þáttaröð. Í þessum þætti verður fyrst og fremst staldrað við þá staðreynd að bygging álvers á Íslandi árið 1970, ásamt öðrum stóriðjuframkvæmdum olli miklum deilum, einmitt fyrir þær sakir að eignarhaldið var erlent.
    Í þættinum ræðir Marteinn Sindri við Ástu Kristínu Benediktsdóttur, bókmenntafræðing, Garðar Eyjólfsson vöruhönnuð, Guðmund Jónsson sagnfræðing, Söru S. Öldudóttur sýningarstjóra og Unni Birnu Karlsdóttur sagnfræðing. Þar að auki hljóma lestrar Karls Guðmundssonar frá árinu 1970 úr skáldverki Jakobínu Sigurðardóttur, Snörunni.
    1 hr
  • „Það á að kjósa mig af því að ég er maður“
    1980 var Vigdís Finnbogadóttir kosin fyrst kvenna í embætti forseta Íslands og braut þar með blað í sögunni. Í þættinum „Það á að kjósa mig af því að ég er maður“, rannsakar Marteinn Sindri Jónsson forsetaembættið og þetta undarlega fyrirbæri, manninn, sem Vigdís lagði áherslu á að væri grundvöllur kjörs hennar til forseta.
    Í þættinum ræðir Marteinn Sindri við Auði Hauksdóttur, prófessor í dönsku og forstöðumann Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands, Edward Hujibens, landfræðing við Háskólann á Akureyri, Jón Reyni Traustason, ritstjóra stundarinanr, Nönnu Hlín Halldórsdóttur, heimspeking, Pál Valsson, ævisagnaritara Vigdísar Finnbogadóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.
    1 hr
  • Allt fyrir ekkert
    Árið 1991 sneri Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra heim með nýundiritaðan samning um evrópska efnahagssvæðið með þeim orðum að Íslendingar hefðu fengið "allt fyrir ekkert".
    Í þættinum "Allt fyrir ekkert" fjallar Marteinn Sindri Jónsson um EES samninginn í tengslum við fullveldi Íslands og þjóðsagnaarfinn, en þar er að finna sögupersónur sem gjarnan fá allt fyrir ekkert, svosem Sæmund fróða og konuna hans Jóns míns. Í þættinum ræðir Marteinn Sindri við Guðrúnu Pétursdóttur, Boga Ágústsson, Ragnhildi Helgadóttur og Baldur Þórhalsson. Þá les Birkir Blær Ingólfsson úr verki sínu Þjóðarsálin hans Jóns míns.

About Hundrað ár, dagur ei meir

From the publisher's feed

Hugmyndasaga fullveldisins.