Í austurvegi

Í austurvegi

By Konfúsíusarstofnunin NorðurljósEducation
Download on the App Store

Í austurvegi episodes

  • Erlend tónlist í Kína - #4 Austrið er rautt

    Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.

    39 min
  • Tónlist smáþjóða í Kína - #3 Austrið er rautt

    38 min
  • Þróun kínverskrar tónlistar frá 8. til 20. aldar - #2 Austrið er rautt

    Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.

    40 min
  • Stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar - #1 Austrið er rautt

    Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.

    37 min
  • Einlæg gjöf en smáræði 千里送鹅毛

    Kínverski málsháttur dagsins er mikið notaður og í uppáhaldi hjá mörgum.

    Sagan á bakvið hann hefst fyrir rétt tæpum 1400 árum síðan. Sjöunda öldin var upphaf hins mikilfenglega Tang-veldis og kemur keisarinn sjálfur við sögu en aðalhetjan var embættismaður frá svæði sem var í kringum Yunnan og Búrma samtímans. Þessum embættismanni var falið af konungi sínum að koma sér í mjúkinn hjá Tang-keisaranum og votta honum virðingu sína með því að koma með gjafir og hneigja sig fyrir honum. En ekki fór allt sem skyldi.

    Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.

    12 min
  • Cecilia Lindqvist 林西莉

    Árið er 1961. Ung sænsk kona stígur um borð í full pakkaðan strætisvagn í miðborg Peking. Allir eru klæddir bláum, víðum, fóðruðum jökkum og buxum í stíl. Hún er eini útlendingurinn í vagninum, þar sem fólk þarf að troðast til að stíga af og um borð - og henni er slétt ekki sama. Í fanginu heldur hún á þúsund ára gömlu strengjahljóðfæri, guqin, frá tímum Song-keisaraveldisins. Þetta sjö strengja hljóðfæri er um 120 cm á lengd, aðeins lengra en rafmagnsgítar, og hún er með það vafið inn í fóðraðan silkipoka.

    Unga konan hét Cecilia Lindqvist og varð síðar þekkt sem rithöfundur og einn fremsti Kínafræðingur Svía. Í þættinum er fjallað um námsdvöl hennar í hinu rauða Kína Maós og kínverska hljóðfærið guqin sem hún heillaðist af.

    39 min
  • Sigurður Ingi Friðleifsson - Orkuskipti, loftlagsmál í Kína og víða

    Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðstjóri orkuskipta og loftlagsmála hjá Orkustofnun. Við spjölluðum um orkumál heimsins og Kína sérstaklega í því samhengi og var þar sannarlega af nógu að taka. Í spjalli okkar kom m.a. fram að grænar lausnir eru orðnar samkeppnihæfar og sífellt umfangsmeiri á heimsvísu og sérstaklega í Kína. Má segja að Kínverjar séu leiðandi afl í þeirri byltingu sem nú er að eiga sér stað á leið okkar yfir í endurnýjanlega orku.

    48 min
  • Girnist smátt en glatar stóru 贪小失大

    Málsháttur dagsins er ævagamall. Til þess að fræðast nánar um uppruna hans þurfum við að ferðast aftur um rúmlega 23 aldir eða til ársins 316 fyrir okkar tímatal. Hann rekur sögu sína alla leið aftur til konungsins Huìwén af Qin. Huìwén var forfaðir Qin-keisarans sem sameinaði Kína og lét byggja hið gríðarstóra grafhýsi við Xi’an sem frægt er fyrir alla leirhermennina og hestana.

    Í sögunni heyrum við af hinum fávísa stjórnanda hins forna Shǔ-ríkis og hvernig skammsýni hans hefur skráð hann á spjöld Kínasögunnar sem „manninn sem færði okkur undirstöðufæðið“ en landsvæðið sem hann glataði er stundum kallað hrísgrjónaskál Kína.

    Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.

    13 min
  • Pönk í Peking 北京朋克

    Pönkið er ekki dautt og hefur fengið nýtt líf í grámyglu Peking borgar á 9. áratug 20. aldar. Saga pönk tónlistar í Peking er ekki löng. Hún er rétt um 25 ára gömul og á þeim tíma sem þessi áhugaverða tónlistarstefna hefur þróast hafa hundruðir ungra manna og kvenna gengið saman hönd í hönd og búið til óhefðbundna tónlist sem er á útjaðri þeirrar popp menningar sem kraumar í þessu fjölmennasta ríki heims.

    En bíddu, var ekki pönk tónlist bara vinsæl á 80. áratuginum í Evrópu? Var þetta ekki bara lítill hópur í London að ibba gogg? Af hverju er verið að framleiða pönktónlist í Kína? Hvernig getur fólk ennþá verið að búa til pönk í dag og hvað í anskotanum er pönk?

    26 min
  • Magnús Jóhann Hjartarson - Æfingaferð, íslandsmeistaratitillinn og borðtennis í Kína

    Þetta sinn fengum við til okkar í viðtal hann Magnús Jóhann Hjartarson, íslandsmeistara í borðtennis. Þar ræddu nafnarnir Magnús og Magnús um æfingaferð sem annar þeirra fór í til Kína og um borðtennis þar í landi sem er jú þjóðaríþrótt kínverja. Einnig ræddum við borðtennis hér á Íslandi en það eru fjölmargir iðkendur um heim allan sem spila borðtennis daglega. Einstaklega skemmtilegt viðtal við Magnús enda íþróttamaður að guðs náð. 

    33 min

About Í austurvegi

From the publisher's feed

Í aust­­­­­ur­­­­­vegi er hlað­varps­þáttur sem fjallar um Kína og menn­ingu lands­ins. Í þátt­unum eru helstu sér­­­­­fræð­ingar lands­ins þegar það kemur að mál­efnum Kína og Íslands fengnir til…