Í austurvegi

Í austurvegi

By Konfúsíusarstofnunin NorðurljósEducation
Download on the App Store

Í austurvegi episodes

  • Gættu þín úti á melónuakri 瓜田李下

    Í þessum þætti fáum við að kynnast kínverskum málshætti eða "chéngyǔ" eins og sagt er á mandarín-kínversku. Það má í raun ýmist þýða sem málshátt, orðatiltæki eða orðtak. Til eru þúsundir kínverskra málshátta en margir þeirra geta verið frekar óljósir án samhengis.

    Þessir þættir um kínverska málshætti verða stutt og laggóð viðbót við pistlana og viðtölin í hlaðvarpi okkar og eru unnir upp úr hlaðvarpi mikils Kínafræðings að nafni Lazlo Montgomery. Lazlo heldur úti vefsíðunni Teacup Media og hefur góðfúslega veitt okkur leyfi til þýðinga. 

    Við mælum innilega með þáttum hans um sögu Kína og sögu kínverskrar temenningar, auk þáttanna um kínverska málshætti.

    12 min
  • Bók láðs og laga 山海经

    Þetta sinn hefur bókin Shanhai Jing 山海經 eða Bók Láðs og Laga orðið fyrir valinu til umfjöllunar. Þessi er afskaplega skrítin, sennilega leitun að jafn furðulegri bók. Hún er uppfull af upptalningum á fjöllum og ám, og flóru og fánu fjarlægra landa, en allt er það lygasögu líkast og harla ævintýralegt. Dýrin í upptalningunni eru gjarnan samansett úr líkamshlutum þekktra dýra, eðlur með vængi, tígrar með fuglsklær og einnig oft með mannshöfuð eða ásjónu. Jurtirnar og tréin hafa einatt ýmsa yfirnáttúrulega lækningamætti eða blómstranir þeirra eru fyrirboðar. Bókin er líklega á vissan hátt forfaðir seinni tíma bóka um drauga og kraftaverk, eins og furðusögur Pu Songling í Liaozhai og Vesturferðin sem báðar hafa fengið umfjöllun í þessum hlaðvörpum, en munurinn er sá að Shanhai Jing eða Bók Láðs og Laga eins og ég mun kalla hana héreftir, er mun fornari, og stílinn er fremur eins og á einhverskonar landafræði eða náttúrufræði.

    Pistill: Jón Egill Eyþórsson

    29 min
  • Andri Stefánsson - Fararstjóri vetrarólympíuleikana í Peking 2022

    Að þessu sinni fengum við í spjall Andra Stefánsson aðalfararstjóra íslenska hópsins á nýafstöðnum vetrarólympíuleikum í Peking. Hann fjallaði um ólympíuleikana út frá ýmsum hliðum sem voru auðvitað mjög sérstakir á covid-tímum. Andri var einnig fararstjóri á sumarólympíuleikunum í Peking 2008 og var gaman að heyra hann bera saman þessa tvo risa viðburði haldnir í sömu borg með 14 ára millibili.

    44 min
  • Samskipti Kína og Rússlands í gegnum söguna

    Vegna þess hörmulegra stríðs sem nú geysar í Úkraínu hafa samskipti Kína og Rússlands verið til umræðu að undanförnu. Þegar Putin Rússlandsforseti hitti Xi Jinping forseta Kína í Peking rétt fyrir vetrarólympíuleikana í febrúar síðastliðnum urðu forsetarnir sammála um engin takmörk væru á tengslum landanna - hvað sem það svo sem þýðir. En hafa samskipti þessara miklu grannþjóða alltaf verið svona takmarkalaus eða alltaf á vinarlegum nótum. Við skulum skoða aðeins samskipti þeirra í sögulegu ljósi.

    26 min
  • Þorkell Ólafur Árnason - Viðskipti, kínverskar snjallgreiðslulausnir og saga KÍM

    Viðtal vikunnar er við Þorkel Ólaf Árnason frumkvöðul. Hann hefur ýmsa fjöruna sopið í Kína og komið víða við þegar kemur að viðskiptum við Kína. M.a. má nefna kínverskar greiðslumiðlunarlausnir fyrir snjallsíma til að auðvelda kínverskum ferðamönnum að versla á Íslandi. Þorkell er auk þess formaður Kínversk íslenska menningarfélagsins (KÍM). Ræddum við um starfsemi félagsins sem á sér merka sögu og er mikilvægur hlekkur í menningarsamskiptum Íslands og Kína.

    42 min
  • Xunzi 荀子

    Af konfúsískum heimspekingum fornaldar eru þrír taldir mestir. Þar ber hæst að sjálfsögðu Konfúsíus sjálfur sem lifði á öndverðum Vor og Haust tíma eða ca. 551–479 f.kr., næstur fer Mensíus sem uppi var hartnær 2 öldum síðar eða 372–289 f.kr. Xunzi er kallaður sá sem rekur lestina.

    Nafnið Xunzi er líkt og Kongzi (þ.e. Konfúsíus), Laozi, Zhuangzi og mörg fleiri, ættarnafn með viðskeitinu zi sem þýðir meistari eða eitthvað á þann veg. Xunzi hafði eiginnafnið Kuang og er því einnig réttilega kallaður Xun Kuang. Hann fékk ekki alveg náð fyrir augum konfúsista Han tímans sem mótuðu heimspekiskólann í ríkishugmyndafræði og voru augljóslega hrifnari af Mensíusi og kannski hafði hann fyrst og fremst þá stöðu að vera ákveðið andsvar við hinum kanóníska Mensíusi. Því komust við ekki hjá því að ræða heimspeki Xunzi með nokkuð tíðum skírskotunum í Konfúsíus og Mensíus.

    Pistill: Jón Egill Eyþórsson

    34 min
  • Ársæll Harðarson - Markaðssetning íslenskrar ferðaþjónustu í Kína

    Að þessu sinni fengum við Ársæl Harðarson í spjall en hann er svæðisstjóri yfir fjarmörkuðum hjá Icelandair og hefur lengi komið að markaðsetningu íslenskrar ferðaþjónustu í Kína. Við ræddum um kínverska ferðamarkaðinn og starfsemi Icelandair í Kína sem og framtíðina, m.a. hugsanlegt beint flug til Kína. Í lok viðtalsins fór Ársæll yfir starfsemi Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins en Ársæll er fyrrverandi formaður þess og núverandi varaformaður.

    51 min
  • Sagan um Múlan 花木兰

    Sagan um Múlan er ein sú þekktasta sem komið hefur frá Kína. Margar kvikmyndir og sjónvarpsþættir hafa verið framleiddir út frá sögunni og hefur hún verið vinsæl meðal fólks í hundruði ára. Í hlaðvarpsþætti vikunnar rennum við yfir ljóðið gamla sem inniheldur söguna um stríðshetjuna Múlan og ræðum menningarleg áhrif þess.


    Pistill: Þorgerður Anna Björnsdóttir 

    27 min
  • Hanar ræða ár uxans á nýju ári tígursins

    Nú er ár tígursins gengið í garð og því ber a fagna. Í hlaðvarpsþætti vikunnar ræða félagarnir þeir Magnús og Daníel um hvað stóð uppúr á seinasta ári. Hanarnir tveir kafa ofan í gamla þætti, fleytt verður ofan af rjómanum og rætt hinar ýmsu uppákomur sem áttu sér stað á liðnu ári uxans. Gleðilega Vorhátíð! 新春快乐!

    1 hr 14 min
  • Breytingaritningin 易经

    Breytingaritningin á sér rætur aftur í gráa forneskju og á sér sögu sem er nánast jafnlöng sögu kínaveldis sjálfs og hún hefur verið svo stór hluti af kínverskri menningu í vel yfir 2000 ár að saga ritningarinnar og saga Kínaveldis eru samtvinnuð. Í tímans rás hafa flestir kínverskir andans menn haft eitthvað um hana að segja og skrifað um hana ritskýringar og viðbætur.


    Pistill: Jón Egill Eyþórsson

    38 min

About Í austurvegi

From the publisher's feed

Í aust­­­­­ur­­­­­vegi er hlað­varps­þáttur sem fjallar um Kína og menn­ingu lands­ins. Í þátt­unum eru helstu sér­­­­­fræð­ingar lands­ins þegar það kemur að mál­efnum Kína og Íslands fengnir til…