Í austurvegi

Í austurvegi

By Konfúsíusarstofnunin NorðurljósEducation
Download on the App Store

Í austurvegi episodes

  • Aukin Samskipti Íslands við Kína - Skjól eða gildra?

    Í þætti vikunnar fengum við í viðtal til okkar þau Dr. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði og Snæfríði Grímsdóttur aðjúnkt í kínverskum fræðum. Baldur og Snæ­fríður unnu að ítar­legri rann­sókn um sam­skipti Íslands og Kína á árunum 1995-2021. Í þætti vikunnar fengum við þau til okkar til að ræða þessa rannsókn. 

    1 hr 2 min
  • Hvað er kínverska?

    Kínversk tungumál eru fjölmörg, hver staður í Kína á sína eigin tegund af kínversku máli og sumstaðar er munurinn svo mikill að kínverskt fólk á jafnvel í erfiðleikum með að tjá sig á ferðalagi um eigið heimaland. Það er gjarnan djókað og sagt að mállýska með sjóher kallast tungumál en restin bara mállýska. Þegar talað er um tungumál og mállýskur í Kína nútímans er hefð fyrir því að mandarín kínverska sé talin vera tungumál á meðan öll hin tungumálin séu mállýskur við hlið þess. Það er hinsvegar ekki beint rétt þar sem kínverskt samfélag er fjöltyngt samfélag með mörg tungumál og því óþarfi að gera lítið úr því. Í þætti vikunnar rennum við yfir kínverskt mál og fjölbreytileika þess.

    25 min
  • Yuan-keisaraveldið 元朝

    Yuan-keisaraveldið 元朝 var hluti af hinu gríðarmikla mongólska heimsveldi. Kublai Khan barnabarn Genghis Khan stofnaði Yuan-keisaraveldið og setti höfuðborg hins nýja ríkis þar sem nú er Peking og kallaði hana Khanbaliq eða Dadu 大都. Kublai Khan var alþjóðalega sinnaður keisari og leitaðist eftir að nýta það besta sem heimurinn gat boðið upp á þegar kom að því að byggja upp innviði ríkisins. Í þessum þætti fjölluum við um upphaf þess magnaða tímabils og meira. 

    29 min
  • Song Meiling - 宋美龄

    Hún Song Meiling var eitt sinn þekkt fyrir að vera moldrík, gullfalleg og einstaklega valdamikil. Hún var eiginkona herforingjans og einræðisherrans Chiang Kai Shek og gengdi hún mikilvægu hlutverki við hlið hans sem túlkur kínversku þjóðarinnar á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Sumir sagnfræðingar benda á að hún hafi verið ein valdamesta konan 20. aldarinnar og í þessari viku rennum við yfir líf hennar og afrek.

    26 min
  • Þorvaldur Gylfason - prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands

    Í vikunni fengum við Þorvald Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands til að ræða við okkur um efnahagsþróun í Kína, fortíð og til framtíðar. Margt bar á góma í áhugaverðu spjalli: Ástæður velgengni efnahagsumbótaáætlunar Deng Xiaoping, samanburður á hagþróun í Kína og öðrum Asíuríkjum, Kína í alþjóðavæddum heimi og einnig ræddum við framtíð Kína þar sem Þorvaldur spáir að Kínverjum muni farnast vel ef lýðræðisbrestir verði leystir farsællega. 

    40 min
  • Song-keisaraveldið 宋朝

    Song-keisaraveldið var við völd á miðöldum í Kína og var þessi tími sem sá miklar framfarir í efnahagssögu kínversku keisaraveldanna. Þetta var mikil blómatíð bæði í listum og iðnaði ásamt því að fólk fór að safna meiri auð en það í raun þurfti til þess að lifa af frá degi til dags. Út af þeirri ástæðu hafði almenningur meiri tíma til þess að hugsa um aðra hluti eins og að njóta matlistargerðar, hlusta á tónlist, fylgja tískubylgjum, mála málverk og yrkja ljóð svo dæmi séu nefnd. 

    25 min
  • Gunnar Snorri Gunnarsson - Fráfarandi sendiherra Íslands í Peking

    Í þætti vikunnar fengum við Gunnar Snorra Gunnarsson fráfarandi sendiherra Íslands í Peking í viðtal. Gunnar Snorri hefur tvisvar gengt stöðu sendiherra í Kína og spjölluðum við m.a. um dvöl hans þar og starfsemi sendiráðsins. Ýmislegt bar á góma, tækifæri Íslendinga í Kína, ímynd Íslands meðal Kínverja, Kína á covid tímum, fótbolti og margt fleira.

    54 min
  • Libai & Dufu 李白&杜甫

    Í þætti vikunnar fjöllum við um félagana Libai 李白 og Dufu 杜甫 en þeir eru tveir af merkustu skáldum kínversku menningarsögunnar.


    Libai er þekktur fyrir afslappaða og mjög svo daóíska ljóðlist þar sem megin hugmyndir ljóðanna fjalla um tunglið, náttúruna, vináttu og mikilvægi þess að fá sér í tánna af og til.


    Dufu var raunsærri í verkum sínum en í gegnum ljóð hans getur maður fengið innsýn inn í heim alþýðunnar á tímum Tang-keisaraveldisins.


    Báðir voru þeir miklir ævintýramenn með áhugaverða sögu að baki.

    35 min

About Í austurvegi

From the publisher's feed

Í aust­­­­­ur­­­­­vegi er hlað­varps­þáttur sem fjallar um Kína og menn­ingu lands­ins. Í þátt­unum eru helstu sér­­­­­fræð­ingar lands­ins þegar það kemur að mál­efnum Kína og Íslands fengnir til…