
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti fengum við stjórnmálafræðinginn og uppistandarann Helga Steinar Gunnlaugsson til okkar í viðtal. M.a. ræðum við um nám hans í alþjóðastjórnmálum við virtasta háskóla Kína og alþjóðamál.
Í þætti vikunnar fengum við í spjall til okkar hann Jón Egil Eyþórsson sem er einn fremsti austurlandafræðingur okkar Íslendinga. Auk kínversku talar Jón Egill Japönsku og kóresku og hefur dvalið í löndunum þremur og hefur því frá mörgu að segja.
Í þessum hlaðvarpsþætti ræðum við heimspekiskólann 儒家 eða Konfúsíanisma eins og við þekkjum hann betur á íslensku.
Í þessum þætti fengum við hann Arnar Stein Þorsteinsson til okkar í viðtal. Arnar Steinn segir frá skemmtilegum tíma sem námsmaður í Kína, glímuna við kínverskuna og störf í ferðaþjónustu á Íslandi þar sem umfjöllunarefnið er að mestu kínverskir ferðamenn.
Arnþór Helgason fyrrverandi formaður Kínversk- íslenska menningarfélagsins og vináttusendiherra Kína á Íslandi kom til okkar í spjall og hafði frá mörgu að segja.
Í þessum þætti fengum við hann Geir Sigurðsson prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands í spjall til okkar. Við ræddum við hann um Konfúsíus og speki hans en Geir er einn af fremstu fræðimönnum í heimi þegar kemur að rannsóknum á siða-hugtakinu (li - 礼)í Konfúsíunisma
Í þessum þætti fengum við hann Hafliða til okkar til að spjalla um kínverska nýárið. Fleira ber þó á góma enda hefur Hafliði ýmsa fjöruna sopið í Kína og var m.a. fyrsti starfsmaður Glitnis-banka í Shanghai í stuttri bankaútrás þangað fyrir fjármálahrunið.
Í þessum þætti fengum við hana Unni í spjall um kínverska nýárið. Einnig ber á góma stórmerkilegt Kínasafn Unnar og ferðir hennar með Íslendinga til Kína.
Við ræddum við hana Kristínu Bu um kínverska nýárið. Hún segir okkar einnig af námsárum hennar í Kína sem og hvernig Kínverjar á Íslandi halda upp á kínverska nýárið.
From the publisher's feed