
Sign up to save your podcasts
Or


Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir doktorsnemi. Guðbjörg Ríkey hefur rannsakað kínverska fjárfestinga- og innviðaverkefnið Belti og braut í gegnum meistaranám sitt og núna doktorsnám. Hún segir okkur sögu þess og um hvað það snýst. Belti og braut er hugtak sem gjarnan er í umræðunni þegar kemur að utanríkisstefnu Kína en þekking á því er lítil sem engin á Íslandi og er viðtalið því kærkomin bragabót á því.
Frægt rit sem heitir Liaozhaizhiyi 聊斋志异 er eitt stórmerkilegasta furðusagnarit Kína. Safnarinn heitir Pu Songling 蒲松龄 en hann skrifaði niður í þetta rit hinar ýmsu flökkusögur sem hann heyrði yfir ævina. Ekki er vitað hver er upprunalegur höfundur flestra furðusagnanna enda hafa þær bara flakkað um í þágu afþreyingar og þróast með tímanum þar til þær voru loks skrifaðar niður. Þúsundir kvikmynda og sjónvarpsþátta hafa verið framleiddir út frá kínverskum furðusögum og út um alla Asíu má finna sér útgáfu af mörgum þeirra.
Þýðing furðusagna: Klara Kristjánsdóttir
Kína er gríðarstórt land með mismunandi svæði, menningarheima og tungumál á hverju strái þar sem samkeppni er gríðarleg vegna mannfjöldans á hverjum stað. Í Bandaríkjunum eru mörg fyrirtæki sem sinna sínum sviðum innan markaðarins eins og Youtube, Facebook, Discord, Instagram, Netflix og Twitter, af hverju er bara eitt fyrirtæki í Kína sem sinnir öllum þessum hlutverkum og hefur fengið að vaxa ótrautt áfram í öll þessi ár? Tencent er svoleiðis fyrirtæki eða nokkurskonar samblanda af öllu sem hér er áður nefnt. Skýringin á því er einföld en mun líklegast koma flestum hlustendum á óvart því það vinnur á móti skilning flestra þegar það kemur að Kína nútímans.
Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Þorgerður Anna Björnsdóttir kínverskufræðingur en hún vinnur nú í því að skrifa samskiptasögu Íslands og Kína. Frá því að fyrsti Íslendingurinn sem vitað er um að hafi komið til Kína, með dönsku kaupfari á 18. öld, steig þar á land hafa Íslendingar farið þangað í ýmsum erindagjörðum gegnum tíðina. Margt áhugavert hefur komið upp úr kafinu þegar þessi saga hefur verið skoðuð og leynast þræðir á milli landanna víðar en mann grunar. Í viðtalinu fer Þorgerður Anna yfir margt áhugavert sem hefur rekið á fjörur hennar síðan hún hóf þessa vinnu.
Viðmælandi okkar að þessu sinni er Hjálmar W. Hannesson fyrrv. sendiherra og fyrsti sendiherra Íslands með aðsetur í Kína. Hjálmar var fenginn til að koma á fót fyrsta íslenska sendiráðinu í Kína, og raunar allri Asíu, og segir hér frá þessum áhugaverðum tímum í samskiptum landanna og því flugi sem þau fóru á í kjölfarið. Íslenska sendiráðið í Peking hóf starfsemi sína á hótelherbergi á Hilton en átti eftir að marka tímamót í samskiptum landanna. Í viðtalinu fer Hjálmar yfir fyrstu ár sendiráðsins þar sem mikið gekk á, Kína að vakna til lífsins og fjölmörg fyrirtækja á leiðinni þangað, fjöldi menningarviðburða og að ógleymdri heimsókn Vigdísar forseta sem með sinni einstöku framkomu heillaði Kínverja upp úr skónum.
Qing keisaraveldið var eitt farsælasta keisaraveldi menningarsögunnar og flest málefni utanríkismála Kína í dag snúast í kringum sögulega atburði og samninga sem voru undirritaðir á tímum Qing. Það þýðir einfaldlega að ef það er sérstaklega eitt keisaraveldi sem gott er að hafa víðtæka þekkingu á, þá er það Qing keisaraveldið.
Viðmælandi vikunnar er Steingrímur Þorbjarnarson kínverskufræðingur. Í þættinum fer Steingrímur yfir áhugaverð námsár sín í Kína á níunda áratug síðustu aldar þegar Kína var að vakna til lífsins. Spjölluðum við um kínverskunámið sem tekið var föstum tökum. Ferðalög vítt og breitt um Kína sem og margskonar kynni Steingríms af kínversku þjóðinni á áhugaverðum tímum.
Bókmenntaverkið Vesturferðin 西游记 fjallar um búddamunkinn Xuanzang, hulduverurnar Apakónginn, Svínka og Sveinka og ferð þeirra vestur frá Changan, sem var þá höfuðborg Tang keisaraveldisins alla leið til Indlands til að ná í helgar búddískar sútrur og ferðast með þær aftur til Kína til þess að þýða þær yfir á kínverskt alþýðumál. Enn þann dag í dag eru búnar til hundruði kvikmynda og sjónvarpsþátta út frá sögupersónum verksins og hafa vinsældir þeirra ekkert nema aukist með tímanum.
Í vikunni fengum við hann Einar Rúnar Magnússon í viðtal til okkar. Hann hefur víðamikla reynslu af viðskiptum í Kína og lærði áður viðskiptafræði með sérhæfingu í kínverskum markaði og í Asíu.
明 keisaraveldið var veldi sem reis upp úr rústum mongólska heimsveldisins en um stutta stund hafði Kína verið undir stjórn mongólskra yfirráða úr norðri. 元 keisaraveldið svokallað var gríðarstórt og náði alveg frá Kóreu til Póllands um skeið og eftir hnignum þess margbrotna veldis áttu hinir ýmsu herforingjar í stríði sín á milli. Undir lokin stóð ein herdeild eftir og setti á fót 明 keisaraveldið með höfuðborg sína í Nanking borg. Leiðtogi þess hét Zhu Yuanzhang og hóf feril sinn sem bláfátækur munkur en átti síðan eftir að krýna sig sjálfan sem 洪武 keisarinn og leiða kínverska menningasögu áfam.
From the publisher's feed