Já OK

Já OK

By Útvarp 101Comedy
Download on the App Store

Já OK episodes

  • Upphaf andatrúar á Íslandi
    Í þessum þætti af Já OK! fá Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto til sín gest, en það er enginn annar en Daníel G. Daníelsson, sagnfræðingur. Þeir eru búnir að slökkva ljósin inn í stúdíóinu og hann Daníel ætlar að fræða strákana um uppruna andatrúar á Íslandi. Svo jafnvel taka þeir smá borðdans?eða þeirra útgáfu sem var byggð á misskilningi.
    56 min
  • Frostaveturinn mikli
    Í þessum þætti af Já OK! sækja Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í sig veðrið. Þeir hafa drukkið alltof mikið kaffi og ætla nú að fara að fjalla um veður?VEÐUR!!! Drekka kaffi og fjalla um veður. Hvað gæti verið skemmtilegra en það? Og ekki bara veður, heldur veður í gamla daga?
    29 min
  • Íslensku Jólasveinarnir
    Í þessum þætti af Já OK! fjalla Kleinusníkir og Lummusníkir um íslensku jólasveinana og hvaða þeir koma. “Jólasveinar, 1 og 74, ofan komu af fjöllunum“. Settu örugglega ekki allir skóinn upp í gluggan í September?
    31 min
  • Draugagangurinn á Saurum
    Í þessum þætti af Já OK! verður framlag Fjölnis Gíslasonar og Vilhelms Neto nokkrar skyggnilýsingar. Við vonum að þið hafið af því gagn og einnig nokkurt gaman. Hér er strax kominn ungur maður, virkilega gott samband í kvöld. Hann er eflaust látinn því hann er klæddur eins og smali, í sauðskinnskóm og ég veit ekki hvað og hvað, allt ákaflega þjóðlegt. Honum langar að segja okkur frá draugaganginum á Saurum. Inn, út, inn, inn, út.
    34 min
  • Tyrkjaránið
    Aaaarrrrgggghhhh! Ahoy! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Svartskeggur og Vilhelm Rauði um Tyrkjaránið sem átti sér stað á Íslandi um 17. öld og hvernig það er búið að “Disney-væða“ sjóræningja, aaaarrrrgggghhhh! Þjóðhátííííííííð!
    28 min
  • Tivolí í Vatnsmýrinni
    Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um fyrsta tívolí garðinn í Reykjavík. Spá svo í hvaða tæki eru skemmtileg, hvaða tæki eru hræðileg og hvaða tæki fær þá til að verða óglatt. Einnig komast þeir að því að þeir kunna ekkert í Bingó. Við kynnum Tívolí í Vatnsmýrinni.
    45 min
  • Rapp á Íslandi ft. Kilo
    Í þessum þætti af Já OK! fá Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto góðan gest til sín, engan annan en Kilo. Þeir þrír sátu í þungum þönkum inn í stúdíó hjá RÚV og ræddu um uppruna íslensku rappsenunar á mjööög alvarlegum nótum. Lag í endan: Smjörvi - SÆTARI SÆTARI
    48 min
  • Axlar-Björn
    Í þessum þætti af Já OK! eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto hræddir því í þetta sinn takast þeir á við sögu Axlar-Björns. Gisti enginn hjá Gunnbirni sem klæðin hefur góð. Ekur hann þeim í Ígultjörn. Rennur blóð eftir slóð og dilla ég þér jóð?BÚ! Efni í þættinum er ekki við hæfi barna og óttasleginna.
    30 min
  • Leiðtogafundurinn í Höfða
    Í þessum þætti af Já OK! hittast Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í einvígi í Höfða og ræða um takmörkun á vígbúnaði og deilu- og mannréttindamál. Þeir virðast ekki vera sammála. Hvor þeirra gefur undan fyrst? Hvor þeirra mun fyrstur lækka skotvopnin. Þeir blikka ekki augum! Fjölnir hvessir brýnnar. Vilhelm færi stráið úr hægra munnvikinu yfir í vinstra. Framhjá fýkur gulur bónus plastpoki. Spenna er rafmögnuð! Við kynnum, Leiðtogafundurinn í Höfða.
    34 min
  • Rauðsokkur
    Í þessum þætti af Já OK! klæða Fjölnir og Villi sig í eldrautt og fjalla um róttæka hreyfingu sem spratt fram á áttunda áratug síðustu aldar. Við kynnum Rauðsokkahreyfinguna!
    29 min

About Já OK

From the publisher's feed

Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur…