Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um hérna?ballhljómsveitina?nei sorry það er annað! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um?royal búðing?nei nei vá! Sorry nú kemur þetta! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um?Geirfuglinn! YES þarna kom það! Smá athyglisbrestur í gangi í þessum þætti.
Í þessum þætti af Já OK! spurja Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto hvorn annan hvort þeir trúi á álfasögur, fræðast svo um uppruna álfatrúarinnar og krifja til mergjar hvernig bílum álfar keyra á. Trúir þú á álfasögur?
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um ákveðið dýrasafn í Hafnarfirði sem kennt var við sædýr, en þar gastu heldur betur séð fleiri dýr en bara sædýr. Ekki var æskilegt að klappa þeim þó það var stundum hægt með því að teygja sig inn fyrir girðinguna. Við kynnum Sædýrasafnið í Hafnarfirði.
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um stórmerkileg atburð sem skeði ekki, en margir héldu og spáðu að myndi ske. Erum við ein í heiminum? Eða eru aðrar vitsmunaverur á meðal okkar í alheiminum? Er bóndinn að segja satt? Og þurfa geimverur kannski mögulega að kaupa sér ný geimskip? Allt þetta í þessum þætti af Já OK! Geimverur á Snæfellsjökul!
Í þessum þætti af Já OK! gera Fjölnir Stirði og Vilhelm Níski nokkrar hollustu armbeygjur, fá sér svo sykurskert skyr á meðan þeir fjalla um hollasta hagkerfið sem Íslands hefur átt!
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um vímulaust Ísland árið 2002. Strákarnir tóku upp þáttinn í beinni í Endalausa útvarpinu.
Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason (Eldarin - Wizard) og Vilhelm Neto (Half-Orc - Rogue) um nokkur vel valin íslensk borðspil og uppruna þeirra.
Í þessum þætti af Já OK! sigla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Atlantshaf á lítilli trillu með Hauk Morthens í botni, tilbúnir með togvíraklippurnar til að verja landhelgina okkar. Bretar skulu passa sig!
Í þessum þætti af Já OK! stíga Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto til nýaldar og reyna að leysa þá stóru stærfræðiþraut hvað eitt kúgildi var mikið. Ari á eina kú en Stína á sex kýr. Hversu margar kýr þarf Stína að gefa Ara til þess að hann geti borgað sig úr vistarbandinu?
27 min
About Já OK
From the publisher's feed
Já OK eru skemmtilegir hlaðvarpsþættir með Vilhelm Neto og Fjölni Gíslasyni þar sem þeir skoða alla skrýtnu hlutina sem einu sinni voru aðal málið á Íslandi en hafa síðan horfið. Það man enginn lengur…