Árið 1967 var slæmt geimferðaár. Þremur mánuðum eftir eldsvoðann í Apollo 1 settist Vladimir Komarov inn í nýtt geimfar sem leggja átti grunninn að ferðum Sovétmanna frá Jörðinni til tunglsins.
Fjórum mánuðum eftir fyrstu tungllendinguna var komið að áhöfn Apollo 12 að endurtaka leikinn. Þeir Pete Conrad og Alan Bean áttu stefnumót við annað ómannað geimfar sem lent hafði tveimur árum áður á Stormahafinu.
Eftir sögulegan leiðangur Apollo 8 átti aðeins eftir að prófa tunglferjuna og tunglbúninginn áður en hægt var að lenda á tunglinu. Apollo 9 var draumaleiðangur tilraunaflugmannsins.
Til að komast til tunglsins þurfti öflugri eldflaug en nokkru sinni fyrr. Í Huntsville í Alabama hófust Wernher von Braun og teymi hans handa við að þróa Satúrnus 5 eldflaugina sem að lokum flutti menn frá Jörðinni til tunglsins.
Í lok janúar árið 1971 hófst sjötta tunglferð Bandaríkjamanna þegar Apollo 14 var skotið á loft. Eftir misheppnaðan leiðangur Apollo 13 var mikið undir: Færi eitthvað úrskeiðis þýddi það sennilega endalok Apollo verkefnisins. Færi allt að óskum yrði Alan Shepard hins vegar fimmti og elsti maðurinn til að ganga á tunglinu.
Áhugi á tunglferðum fór dvínandi þegar Apollo 13 var skotið á loft. Það breyttist tveimur dögum eftir geimskot þegar sprenging varð í súrefnistanki sem stofnaði lífi geimfaranna þriggja í mikla hættu.
Beggja vegna járntjaldsins áttu tveir menn, Wernher von Braun og Sergei Korolev, sameiginlegan draum: Að ferðast út í geiminn og alla leið til tunglsins.
Rúmlega einu og hálfu ári eftir brunann í Apollo 1 hófst fyrsta mannaða geimferð Apollo verkefnisins, Apollo 7, með þeim Wally Schirra, Walt Cunningham og Donn Eisele um borð.