Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Queens of the Stone Age á Montreux 2018
    Í Konsert í kvöld ætlum við að hlusta á Queens of the Stone Age á Montreux Jazz Festival en sveitin spilaði á þeirri gömlu og góðu hátíð í Swiss sunnudaginn 8. Júlí sl. Queens of the Stone Age er Amerískt rokkband, stofnað í Palm Desert í Kaliforníu árið 1996 og er í dag eitt stærsta starfandi rokkband heims. Það var söngvarinn og gítarleikarinn Josh Homme sem stofnaðisveitina eftir að gamla bandið hans, Kyuss, lagði upp laupana. Það hafa ýmsir komið við sögu sveitarinnar, t.d. Mark Lanegan fyrrum söngvari Screaming Trees sem hefur komið reglulega við sögu. Og Dave Grohl, Nirvana og Foo Fighters maður sem trommaði með þeim á einni plötu og í einni tónleikaferð. Hér má sjá plötur sveitarinnar: Queens of the Stone Age (1998) Rated R (2000) Songs for the Deaf (2002) Lullabies to Paralyze (2005) Era Vulgaris (2007) ...Like Clockwork (2013) Villains (2017) Villains er sjöunda plata sveitarinnar og þeir kallarnir voru að fylgja henni eftir þegarf þeir spiluðu á Montreuc jazz Festival í sumar. Platan kom út 25 ágúst í fyrra og þetta er fyrsta platan þeirra þar sem engir gestir eru í aðalhlutverkum, bara bandið: Josh Homme - söngur og gítar Troy Van Leeuwen - gítarar, hljómborð ofl. Dean Fertita - hljómborð, gítarar ofl. Michael Shuman - bassi ofl. Jon Theodore - trommur Þeir fengu upptökustjórann Mark Ronson með sér í lið við gerð nýju plötunnar, en hann er helst þekktur fyrir að hafa unnið með Amy Winehouse og Bruno Mars. Platan seldist vel, fór strax í þriðja sæti Bandaríska vinsældalistans og þegar árið 2017 var gert upp lenti hún á fjölda lista yfir bestu plötur ársins.
    0 min
  • Konsert með Joe Strummer & The Mescaleros
    Í Konsert vikunnar eru næstum 20 ára gamlir tónleikar sem sænska ríkisútvarpið (SR) tók upp á Hultsfred festival í svíþjóð sumarið 1999 með Joe Strummer og hljómsveitinni hans, The Mescaleros. Tilefnið er að út er komið heilmikið Joe Strummer safn sem heitir Joe Strummer 001. Þeir sem ekki þekkja nafnið Joe Strummer þekkja kannsmki nafnið The Clash, en Joe Strummer (sem hét reyndar John Graham Mellor) var söngvari The Clash sem var önnur af tveimur lykil-hljómsveitum breska pönksins á sínum tíma, hin var Sex Pistols. Sex Pistols og Clash voru þær hljómsveitir sem leiddu breska pönkið á sjö-tugnum. þetta Strummer safn sem er að koma út hefur að geyma allskyns týndar og óheyrðar upptökur með Joe Strummer sem hann gerði fyrir utan Clash og hefur að geyma 32 lög, bestu lögin af plötunum sem hann gerði undir eigin nafni og með Mescaleros og svo 12 upptökur sem hvergi hafa verið opinberar fyrr en núna. T.d. er þarna demó-upptaka af kassettu sem hafði verið geymd í bankahólfi síðan 1975. Lagið er Letsgetabitarockin sem hann gaf út með fyrstu alvöru hljómsveitinni sinni, The 101-ers áður en hann gekk til liðs við Clash. Joe Strummer fæddist 21. Ágúst 1952 og lést 22. Desember 2002 á heimili sínu í Somerset á Englandi. Hann hafði farið út að ganga með hundinn sinn, kom heim, fékk hjartaáfall og dó. Hann var 50 ára. Í tilefni af útgáfu Strummer safnsins höfðu höfuðstöðvar EBU í Genf samband við Ríkisútvörpin í Evrópu og spurðu hvort einhverstaðar lægju tónleikaupptökur með Strummer. Sænska útvarpið svaraði; jú við tókum Joe Strummer og Mescaleros upp á Hultsfred Festival 1999, og það er það sem við ætlum að heyra í Konsert í kvöld. Í seinni huta þáttarins heyrum við svo upptökur frá tónleikum The Band í háskólanum í Chicago árið 1983.
    0 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…