Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Hatari og Fontains DC á Eurosonic 2019 og Hjálmar á Eurosonic 2012.
    Hatari og Fontains DC á Eurosonic 2019 og Hjálmar á Eurosonic 2012. Í Konsert vikunnar heyrum við í tveimur hljómsveitum sem spiluðu á Eurosonic tónlistarhátíðinni í Groningen í Hollandi um miðjan janúar. Þessar sveitir eru Fontaines DC frá Írlandi, og okkar eigin Íslands Hatari. Við heyrum svo í lokin nokkur lög frá tónleikum Hjálma á Eurosonic árið 2012 - Á Eurosonic voru í þetta skipti 4.135 karlar og konur úr Evrópska Músíkbransanum. Fólkið kom frá 44 löndum og hljómsveitirnar sem spiluðu voru 342 á 42 tónleikastöðum. Á Eurosonic spila fyrst og fremst nýjar ungar og upprennandi hljómsveitir alltaðar að úr Evrópu og það voru 7 atriði í ár frá íslandi; Hugar, Hatari, Hildur, Bríet, Une Misere, Kælan Mikla og Reykjavíkurdætur sem nældu sér í verðlaun á hátíðinni, ný Evrópsk tónlistarverðlaun sem heita Music Moves Europe Talent Award og ofan á það fengu þær svo vinsælda-kosningaverðlaun; Public Choice Awards í sínum flokki, Rapp og hip hop. Hatari var á Eurosonic hálfpartinn á vegum Rásar 2 en Rás 2 velur eina hljómsveit á ári á Eurosonic og í ár var það Hatari. Hatari spilaði í gömlu fallegu leikshúsi í borginni sem heitir Stadsschouwburg sem er einskonar Borgarleikhús þeirra í Groningen. Fontraines DC er fimm manna rokkband frá Dublin sem spilar einhvernskonar rokk. Fontianes DC er búin að senda frá sér þrjár smáskífur sem komu allar út í fyrra og eru allar á Spotify en fyrsta stóra plata þeirra er væntanleg núna snemma á þessu ári. Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson.
    0 min
  • Idles í Lausanne og Boy Azooga á Eurosonic
    Í Konsert í kvöld heyrum við upptöku sem gerð var fyrir viku síðan á Eurosonic Festival í Groningen í Hollandi með hljómsveit frá Cardiff í Wales sem heitir Boy Azooga og þótti eitt besta band hátíðarinnar að margra mati. Boy Azooga er frá Cardiff í Wales og er einskonar indie rokk-kvartett sem leiddur er af söngvaranum og gítarleikaranum Davey Newington. Fyrsta og eina stóra platan þeirra 1,2 Kung Fu! Var gefin út síðasta sumar og fékk fína dóma. Söngvarinn hann Davey er búinn að vera í músík alla sína ævi meira og minna, byrjaði sex ára gamall að spila á trommur og spilaði jazz og með lúðrasveitum þegar hann var yngri, en í dag leiðir hann Boy Azooga sem gítarleikari og söngvari og segir að áhrifin komi héðan og þaðan, t.d. frá Sly and The Family Stone, Caribou, Black Sabbath, Outkast, Ty Segall og Beastie Boys. Við heyrum tónleika Boy Azooga á Eurosonic 2019 í seinni hlutanum en mestan tímann fær enska pönk-rokk sveitin Idles sem er að gera það gott þessa dagana, en til marks um það þá lenti platan þeirra Joy as an act of Resistans á ýmsum listum yfir bestu plötur ársins 2018 núna á áramótin. meðal annars í 27. sæti á lista Uncut yfir plötur ársins og 6. sæti í Mojo. Idles var stofnuð í Bristol fyrir áratug en það er fyrst núna sem sveitin er að vekja athygli um allan heim. Idles spilar hressandi ómstrítt pönk-rokk og ýmsir hafa líkt söngvaranum Joe Talbot við sjálfan Joe Strummer söngvara Clash. Sveitin var stofnuð á næturklúbbi í Bristol af þeim Joe Talbot söngvara og bassaleikaranum Adam Devonshire, en þeir kynntust þegar þeir voru báði í námi í háskólanum í Exeter, og það var eiginlega þar sem þeir ákváðu að stofna hljómsveit. En það tók þá langan tíma að koma einhverju í verk af viti og verða alvöru hljómsveit. Joe söngvari segir að þeir hafi lengi verið alveg svakalega lélegir og til að byrja með hafi þeir ekkert vitað hvað þeir voru að gera. Fyrsta EP platan kom 2012 og önnur 2015 og það ár byrjuðu þeir að semja lögin sem er að finna á fyrstu stóru plötunni; Brutalism, sem kom út 2017. Platan fékk góða dóma og Line of best fit talaði um Idles sem eitt heitasta nýja bandið, kraftmikið og svolítið ógnvekjandi, og miðlar eins og Popmatters og Uncut tóku í sama streng. Sveitin fylgdi Brutalism eftir með tónleikaferð, strákarnir spiluðu á fjölda tónlistarhátíða um alla Evrópu, spiluðu svo með Maccabees í London í kveðjutúrnum þeirra og hituðu upp fyrir Foo Fighters í O2 Arena á 10 ára afmæli O2 Arena. Svo byrjuðu þeir að semja lögin á nýju plötuna sem kom svo út í ágústlok. Idles hefur verið lýst s
    0 min
  • Father John Misty og Bedouine í Les Docks
    Í þættinum í kvöld heyrum við tvenna frábæra tónleika, fyrst með tónlistarkonu frá Sýrlandi sem kallar sig Bedouine og svo Father John Misty. Hún heitir Azniv Korkejian sem kallar sig Bedouine. Hún er fædd í Aleppo í Sýrlandi, á Armenska foreldra en flutti frá Aleppo með foreldrum sínum til Saudi Arabíu þegar hún var stelpa og þaðan til Bandaríkjanna þar sem hún bjó á ýmsum stöðum áður en hún endaði í Los Angeles þar sem hún býr í dag. Foreldrar hennar unnu græna kortið inn í Bandaríkin í græna-korts-lottóinu. Hún hefur sent frá sér eina plötu sem heitir líka Bedouine og kom út 2017. Bedouine spilaði á Iceland Airwaves núna í nóvember, meðal annars á Skúli Craft Bar. Hún spilar á kassagítar og syngur og var að túra með Father John Misty þegar hún kom hingað - skaust bara milli tónleika með honum til Íslands til að spila á Iceland Airwaves. Og nokkrum dögum seinna (18. nóvember) spilaði hún á tónleikum með Father John Misty í Les Docks í Lausanne í Swiss og þeir tónleikar voru teiknir upp af EBU fyrir Rás 2 og aðrar ríkisútvarpsstöðvar í Evrópu og við ætlum að heyra þá tónleika í Konsert vikunnar. Hann heitir Joshua Michael Tillman náunginn sem kallar sig Father John Misty. Hann er fæddur 1981, Bandaríkjamaður, var áður trommari hljómsveitarinnar Fleet Foxes og gaf líka áður út plötur undir nafninu J. Tillman, gaf út einar 8 plötur undir þvi nafni en svo tók hann upp nafnið Father John Misty þegar hann hætti í Fleet Foxes 2012 og síðan hefur hann sent frá sér fjórar plötur sem Father John Misty. Hann hefur líka spilað með fjölda annara listamanna og komið fram sem gestur á plötum með Beyoncé og Lady Gaga svo eitthvað sé nefnt. Father John Misty spilaði á Airwaves 2015 í Silfurbergi í Hörpu en í Konsert að þessu sinni heyrum við tónleikana sem fóru fram 18. nóvember sl. í Les Docks í Lausanne í Sviss.
    0 min
  • Jóla Eivør í Silfurbergi
    Í Konsert í kvöld er Eivør Pálsdóttir í aðalhlutverki. Við ætlum að hlusta á upptöku frá jólatónleikum Eivarar sem fram fóru í Silfurbergi í Hörpu 9. desember sl. Eivør var bara 16 ára gömul þegar hlustendur Rásar 2 kynntust þessari færeysku söngkonu sem söng svona fallega, bara næstum eins og engill, en síðan eru liðin mörg ár eins og segir í laginu. Eivør bjó í nokkur ár á íslandi og þykir vænt um ísland og íslendinga segir hún. Hún hefur búið árum saman bæði í Danmörku og í Færeyjum og hefur verið á ferð og flugi undanfarin ár, hefur túrað og spilað mikið og hefur auk þess verið dugleg að gefa út plötur. Larva (2010) Room (2012) Bridges (2015) Slør (2015) Eivør spilaði á síðustu Airwaves hátíð í Hörpu og kom svo þangað aftur í desember og hélt ferna jólatónleika í Silfurbergi. Fjórðu og síðustu tónleikarnir, sem fóru fram sunnudagskvöldið 9. desember voru hljóðritaðir fyrir Rás 2 og það eru nákvæmlega þeir sem við ætlum að hlusta á í kvöld. Með henni á sviðinu voru: Mikael Blak - bassi og hljómborð Högni Lisberg - trommur Reykjavík session orchestra - strengir Unglingadeild söngskólans í Reykjavík - kórsöngur Og svo tveir skemmtilegir leynigestir. Upptökumaður: Gísli Kjaran Kristjánsson Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson
    0 min
  • Calexico í þýskalandi
    Í Konsert í kvöld heyrum við tónleika með hljómsveitinni Calexico sem fram fóru í E-Werk í Erlangen í þýskalandi 15. ágúst sl. Calexico er í raun tveggja manna hljómsveit. Þeas þeir eru tveir sem semja lögin og eru Calexico, þeir Joey Burns og John Convertino. Sveitin gerir út frá Tucson í Arizona og Calexico er einskonar Amerciana - Tex Mex - indí-rokkband, ef það segir eitthvað. Þeir Burns og Convertino voru áður saman í hljómsveitinni Giant Sand sem gerði út frá Los Angeles til að byrja með en svo flutti hljómsveitin til Tucson í Arizona 1994. Þeir Burns og Convertini smullu saman, spiluðu saman á bassa og trommur með hinum og þessum sem vantaði bassa og trommuleikara, en fóru svo að gera músík saman undir nafninu Calexico og fyrsta platan þeirra; Spoke, kom út 1995. Þeir Burns og Convertino gerðu plötu ásamt Lisu Germano og Howe Gelb úr Giant Sand undir nafninu OP 8 árið 1997, plötuna Slush. Önnur plata Calexico kom svo ´98, platan The Black light sem fékk gríðarlega góða dóma úti um allt. Í dag eru stúdíóplötur Calexico orðnar 9 talsins og sú nýjasta kom út í janúar á þessu ári. Hljómsveitin var að fylgja henni eftir þegar hún spilaði í Erlangen í þýskalandi í sumar, tónleikana sem þýska ríkisútvarpið, Bayerischer Rundfunk hljóðritaði og við ætlum að heyra í Konsert kvöldsins.
    0 min
  • Valdimar og Örn Eldjárn í Havarí...
    ..og Hjaltalín á Airwaves 2013 Seinasta hálftímann í Konsert kvöldsins á Hjaltalín, við heyrum upptöku með þeim frá Airwaves 2013, en aðal-konsert kvöldsins er með Valdimar. Ekki hljómsveitinni Valdimar, heldur söngvaranum Valdimar og félaga hans, gítarleikaranum Erni Eldjárn. Þeir tveir hafa gert dálítið af því að spila saman og þeir komu við í Havarí í Berufirði sumarið 2017. Það eru hjónin á bóndabænum Karlsstöðum í Berufirði - þau Berglin Hasler og Svavar Pétur Eysteinsson (líka þekktur sem Prins Póló þegar hann er með gítar framan á sér og kórónu á höfðinu) sem reka veitingahúsið og tónleikastaðinn Havarí á Karlsstöðum, og hafa staðið fyrir tónleikaröðinni Sumar í Havarí núna undanfarin 2 sumur. Tónleikarnir hafa verið teknir upp og við útvörpuðum tónleikum með Ly Low fyrir stuttu. Þetta er ansi skemmtilegt hjá þeim Berglindi og Svavari en þau starfrækja allt í senn, gistiheimili, tónleikastað, matstofu, snakkgerð og menningarstarfsemi ýmiskonar undir merki Havarí og þetta gengur bara vel hjá þeim skilst mér. Og Valdimar og Örn Eldjárn héldu tónleika í Havarí 23. júlí í fyrra og við heyrum þá í Konsert vikunnar.
    0 min
  • Sigrid + Valdimar
    Í Konsert í kvöld heyrum við Valdimar á Gauki á Stöng á Iceland Airwaves 2011 og hina norsku Sigrid á Hróarskeldu í sumar. Sigrid var eitt af stóru nöfnunum á Airwaves í fyrra, spilaði í Listasafninu. En Airwaves er í næstu viku í 20. sinn. Sigrid Solbakk Raabe er fædd 5. September 1996 og er þess vegna 22 ára gömul. Hún er orðin ansi stór númer víða um heim og fyrir ári, áður en hún kom hingað á Airwaves var hún t.d. búin að koma fram í sjónvarpsþáttum James Corden og hjá Jools Holland hjá BBC. Hún er ekki enn búin að senda frá sér stóra plötu, en tvær EP og sjö smáskífur. Sigrid er fædd og alin upp í Álasundi í Noregi. Álasund og Akureyri eru vinabæir og Sigrid kom hingað til Íslands þegar hún var í skóla og hún tróð upp með öðrum krökkunum í skólanum í Hofi á Akureyri. Þegar Rás 2 tók upp tónleika hljómsveitarinnar Valdimar á Gauki á Stöng á Airwaves 2011 var sveitin bara búin að gefa út eina plötu, en fjórða platan; Sitt sýnist hverjum kom út fyrir skemmstu.
    0 min
  • Iggy á Montreux og Dikta á Airwaves
    Í Konsert í kvöld byrjum við á að fara á tónleika með afa pönksins eins og hann hefur oft verið kallaður, sjálfum Iggy Pop Í seinni hlutanum heyrum við í Diktu á Iceland Airwaves árið 2012. Iggy heitir James Newell Osterberg jr. Og er fæddur 21. Apríl árið 1947 í bænum Muskegion í Michigan í Bandaríkjunum. Hann vakti athygli með hljómsveitinni The Stooges fyrir 1970 en í sögulegu samhengi er Stooges ein fyrsta pönkhljómsveit heimsins, spilaði hrátt og ruddalegt rokk. Iggy þótti sérkennilegur, hoppandi um sviðið, yfirleitt ber að ofan og lét öllum illum látum. En allt þetta sem Iggy varð þekktur fyrir er fyrir löngu orðið hluti af normi rokksins og þykir ekkert skrýtið eða sérkennilegt í dag, nema kannski vegna þess að Iggy er orðinn 71 árs gamall, er enn að spila og enn er hann hoppandi um sviðið ber aða ofan. Iggy hefur sent frá sér sextan sólóplötur og sú síðasta kom út fyrir tveimur árum og heitir Post Pop Depression, er þar var hans hægri hönd í hlutverki upptökustjóra, Josh Homme úr Queens of te stone Age. Iggy hefur einu sinni spilað á íslandi, var með tónleika í Listasafninu í Reykjavík fyrir 12 árum síðan eða 2006. Tónleikarnir sem við ætlum að hlusta á með Iggy og hljómsveitinni hans voru hljóðritaðir á Montreux Jazz Festival í Svizz 3. júlí í sumar.
    0 min
  • Magnús og Jóhann og Seasick Steve
    Í Konsert í kvöld heyrum við tvenna tónleika. Í seinni hlutanum heyrum við Seasick Steve á Gurten Festival í Bern í Sviss frá því núna í sumar, en fyrst heyrum við upptöku með Magnúsi og Jóhanni á Reykjavík Folk Festival árið 2013. Leiðir Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar lágu fyrst saman í hljómsveit sem hét Nesmenn. Þegar Nesmenn gáfust upp árið 1968 héldu þeir félagar samstarfinu áfram fyrst með rafmagnsgítarana sína en skiptu þeim fljótlega út fyrir kassagítara. Þeir Magnús og Jóhann náðu samningi við Fálkann, héldu í hljóðver og tóku upp eigin lagasmíðar og texta sem allir voru á enskri tungu. Samningurinn við Fálkann gekk á endanum ekki upp og fyrsta platan þeirra Magnúsar og Jóhanns kom því ekki út fyrr en um haustið 1972 á útgáfumerkinu Scorpion. Þar er meðal annars lagið Mary Jane sem varð mjög vinsælt á sínum tíma. Seinna varð hljómsveitin Changes til og undir þeim fána störfuðu þeir báðir að mestu á árunum 1973-1975 og að mestu í London, það átti að "meikaða". Eftir að sveitin lagði upp laupana fyrir jólin 1975 héldu þeir Magnús og Jóhann hvor í sína áttina. Magnús Þór hóf sjálfstæðan feril og sendi frá sér nokkrar plötur á næstu árum. Meðal annarra hina mögnuðu plötu Álfar. Jóhann sinnti einnig sólóferli og lagasmíðum, auk þess að verða helmingur dúettsins Þú og ég. Eftir þá félaga liggja fjölmörg lög sem eru stór hluti af íslenskri dægurlagasögu, lög eins og Ást, Söknuður, Dag sem dimma nátt, Yakety Yak, Þú átt mig ein, Blue Jean Queen, Mary Jane, Seinna meir, She´s Done it Again, Ísland er land þitt o.fl, en mörg þessara laga hafa þeir samið fyrir aðra flytjendur. Þeir Maggi og Jói hafa af og til á undanförnum árum dregið fram gítarana sína og tekið lagið, yfirleitt með hljómsveit, en þau hjá Reykjavík Folk Festival fengu þá til að kom og spila bara tveir á hátíðinni 2013. Við heyrum það í Konsert í kvöld.
    0 min
  • Lay Low í Havarí og Stevie Ray Vaughan
    Í Konsert í kvöld byrjum við á því að fara austur í Berufjörð á tónleika með Lay Low. En í seinni hluta þáttarins förum við á tónleika með bandaríska blúsgítarleikaranum Stevie Ray Vaughan sem er búinn að vera látinn í næstum 30 ár. Hjónin á bóndabænum Karlsstöðum í Berufirði, þau Berglin Hasler og Svavar Pétur Eysteinsson (líka þekktur sem Prins Póló þegar hann er með gítar framan á sér og kórónu á höfðinu) reka veitingahúsið og tónleikastaðinn Havarí heima á Karlsstöðum, og hafa staðið fyrir tónleikaröðinni Sumar í Havarí undanfarin 2 sumur. Tónleikarnir hafa verið teknir upp og við ætlum að útvarpa sumum þeirra í Konsert í vetur og byrjum á Lay Low frá fyrra sumri. Hún spilaði í Havarí 30. Júní í fyrrasumar. Þetta er ansi skemmtilegt hjá þeim Berglindi og Svavari en þau starfrækja allt í senn; gistiheimili, tónleikastað, matstofu, snakkgerð og menningarstarfsemi ýmiskonar undir merki Havarí.
    0 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…