Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Dr. Spock - Dúkkulísur - Jón og Friðrik á Bræðslunni 2019
    Í Konsert í vikunnar förum við á Bræðsluna á Borgarfirði Eystra sem var haldin í 15. Sinn í sumar. Það var bein útseninding á Rás 2 eins og undanfarin mörg ár og Þeir sem komu fram voru ekki af verri endanum; Dr. Spock, Dúkkulísurnar, Jón Jónsson og Friðik Dór, Jónas Sig og Milda Hjartað bandið, Auður og GDRN, og Sóldögg, sem reis úr löngum dvala til að spila á Bræðslunni. Og það sem við ætlum að hlusta á í Konsert að þessu sinni eru fyrstu þrjú númerin sem spiluðu á Bræðslunni í ár, heyrum seinni þrjú seinna, í kvöld eru það Dr. Spock, Dúkkulísurnar og Jón og Friðrik Dór.
    0 min
  • Kynning
    Kynning á Hnotskurn, umsjónarmenn eru Helga Margrét Höskuldsdóttir og Snærós Sindradóttir.
    0 min
  • Cowboy Junkies á Rudolstadt Festival
    í Konsert í kvöld förum við til þýskalands á Rudolstadt Festival og heyrum upptöku frá EBU með Kanadísku hljómsveitinni Cowboy Junkies, og heyrum svo nokkur lög frá Iceland Airwaves 2009 Með Siggu Thorlacius og Heiðurspiltum. Rudolstadt Festival er til að einfalda hlutina róta og heims-tónlistarhátíð. Þar er spiluð allskonar músík frá öllum heimshornum. Þar spilaði Cowboy Junkies í sumar og Ólafur okkar Arnalds líka og margir fleiri. það var boðið upp á um 300 tónleika með 150 listamönnum og hljómsveitum. Hátíðin fer fram fyrstu vikuna í Júlí í Rudolstadt í þýskalandi miðju og leggur í raun undir sig bæinn þessa einu helgi á ári. Það er spilað úti um allt, meðal annars á bæjartorginu og í Heidecksburg kastala. Það er spilað á 20 sviðum í það heila og gestir á dag eru c.a. 25.000. kanadíska alt-kántrí og folk-rokk bandið Cowboy Junkies sem kemur frá Toronto í Kanada er búið að vera starfandi allar götur síðan 1985, og eins skipað allan tímann. Þrjú af fjórum í bandninu eru systkini; Michael Timmins (gítar), Peter Timmins (trommur) og Margo Timmins (söngur). Með þeim er svo bassaleikarinn Alan Anton. Fyrsta platan þeirra kom út 1986 og vakti ekki mikla athygli en það gerði aftur á móti önnur platan; The Trinity Sessions, sem kom út árið eftir (1987). Það er merkileg plata, ein af merkustu plötum átta tugarins vilja margir meina, en hún er t.d. merkileg fyrir þær sakir að hún var tekin upp í Kirkju heilagrar þrenningar (Chruch of the Holy Trionity) í Toronto, og hún var tekin upp á EINN míkrófón sem þau í hljómsveitinni röðuðu sér í kringum. Allt tekið upp live. Plötur Cowboy Junkies eru orðnar 16 talsins og þar fyrir utan hafa þau gefið út einar 5 tónleikaplötur. Þau eru dugleg að spila og ferðast mikið og voru á Rudolfstadt Festival í sumar og EBU hljóðritaði. Og það ætlum við að hlusta á í Konsert vikunnar.
    0 min
  • Oasis á Hultsfred 1994 og Mercury Rev á Airwaves 2015
    í Konsert í kvöld heyrum við í Oasis, en akkúrat fyrir 25 árum síðan, 29. ágúst 1994 kom út ein merkasta plata 9 tugarins, nefnilega fyrsta breiðskífa Oasis - Definitely Maybe. Það er skemmst frá því að segja að þessi plata fór eins og í eldur í sinu um allan heim og fullt af fólki eignaðist nýja uppáhalds hljómsveit þegar platan kom út. Hún fékk góða dóma og seldist fádæma vel. Í tilefni 25 ára afmælisins fóru höfuðustöðvar EBU í Sviss að leita að gömlum tónleikaupptökum með Oasis, og sænska útvarpið rétti upp hönd og sagði; Við tókum Oasis upp á Hultsfred Festival í Svíþjóð nokkrum dögum áður en platan kom út, 13. ágúst 1994. Og það er það sem við ætlum að hlusta á í Konsert í kvöld. Það höfðu komið út þrjár smáskífur þegar Definitley Maybe mætti kom út, lögin Supersonic, Shakermaker og Live Forever, með tilheyrandi stórfínum B-hliðalögum þannig að það vissu margir af Oasis þegar platan loksins kom og biðu spenntir eftir stórri plötu frá þessum strákum. Og platan fór beina leið í toppsæti breska vinsældalistans í útgáfuviku og hún varð strax hrað-seldasta fyrsta plata sveitar eða listamanns í breskri tónlistarsögu, seldist á stuttum tíma í sjöfaldri platínu, eða rúmum tveimur milljónum eintaka. Og Oais vakti líka athygli í Ameríku þvert á það sem ýmsir hafa sagt. Definitley Maybee seldist í rúmti milljón eintaka í Ameríku fyrstu vikurnar, en fór þó aldrei hærra á bandaríska vinsældalistanum en í 58. sæti, og í dag hefur platan selst í hátt í 10 milljónum eintaka um allan heim. Definitley Maybee á stóran þátt í uppgangi Brit Poppsins í Bretlandi og heiminum öllum og hún er án efa ein mikilvægasta plata þeirra skemmtilegu tíma, þegar Bretar voru stoltir af því að vera Bretar og af tónlistinni sinni. Það var gaman í Bretlandi á þessum tíma, sólin skein og það var bjart yfir öllu, annað en í dag. Platan er á fjölda lista yfir bestu plötur allra tíma hvað sem er að marka slíkt, en 2006 setti NME t.d. saman lista yfir bestu plötur allra tíma og þá lenti Definitely Maybe á toppnum, í fyrsta sæti, besta plata sögunnar. Þegar Oasis spilaði á Hultsfred Festival í Svíþjóð 13. ágúst 1994 var sveitin búin að spila næstum 100 sinnum í það heila, og þar af 46. sinnum það árið. Þeir voru sjóðheitir þessir strákar, eitt allra heitasta nýja bandið í heiminum, og heimurinn og heimsfrægð beið þeirra. En það vissu auðvitað alls ekki allir, ekki þeir sem sáu þá á Hultsfred, og ekki heldur þeir sjálfir, þó svo þeir vonuðu það og stefndu að því.
    0 min
  • Tónaflóð 2018 - Aftur!
    Í Konsert í kvöld ætlum við að hlusta á hluta af því sem boðið var uppá á Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhólíiá síðustu Menningarnótt, svona til að hita aðeins upp fyrir Tónaflóð þessa árs. En Menningarnótt er - ekki á morgun heldur hinn, og þá verða á Hólnum ClubDub, GDRN, Auður, Vök, Valdimar, Hjaltalín og Stjórnin sem mun loka kvöldinu fyrir flugeldasýningu. En í fyrra Endaði Todmobile, Hjálmar og Prins Póló spiluðu saman, Birnir og Flóni, Herra Hnetusmjör, Huginn, Bríet og GDRN komu fram ásamt Jóa Pé og Króla. Við heyrum brot af því besta frá Tónaflóði 2018 í Konsert í kvöld.
    0 min
  • The Good the Bad and the Queen í Berlín
    Í Konsert í kvöld förum við á tónleika í Astra Kulturhuus í Berlín með súpergrúppunni The Good the bad and the Queen sem Damon Albarn úr Blur leiðir, en hljómsveitin sendi nýlega frá sér plötu númer tvö - hún heitir Merry Land og er fyrsta plata sveitarinnar síðan 2007. The Good the bad and the Queen er súpergrúppa sem samanstendur af Damon, Paul Simonon bassaleikara úr The Clash, Simon Tong gítarleikara úr The Verve og afróbít trommaranum Tony Allen. Damon Albarn er ótrúlega sniðugur gaur og líkast til sniðugasti einstaklingurinn sem Brit Poppið ól af sér. Hann er alltaf og enn að gera eitthvað nýtt, koma okkur á óvart, og það er eins og allt sem hann sertir verði að amk. silfri. The Good the bad and the Queen er að fylgja nýju plötunni eftir, næstu tónleikar eru í Bilbao á Spáni á laugardagskvöldið og svo spila þeir á mánudaginn í Lyon í Frakklandi. Lögin á Merry Land eiga þeir allir saman í hljómsveitinni, þetta er samvinnuverkefni þar sem allir leggja til málanna og platan er einskonar Konsept plata. Umfjöllunarefnið er Bretland - Brexit og það alltsaman og hvað það þýðir í dag að vera Breti. En 2. Júní sl. var The Good the Bad and the Queen með útgáfutónleika í Berlín þar sem öll Merry land platan var spiluð í rétir röð og það eru þeir sem við ætlum að hlusta á í kvöld í Konsert.
    0 min
  • Eiki Hauks 50 ára í Austurbæ 4. júlí 2009
    Eiki Hauks - rauða ljónið Eiríkur hauksson verður sextugur núna 4. Júlí nk. - eftir rétta viku...og hann ætlar að halda upp á það með tónleikum í Eldborg í Hörpu - stórum yfirlitstónleikum - með stórri hljómsveit á sjálfan afmælisdaginn og þar verður Rokkað og rólað um allt eins og segir í laginu. En það sem við ætlum að bjóða upp á í Konsert í kvöld eru tónleikar sem Eiki hélt á afmælisdaginn sinn þegar hann varð fimtugur - 4. Júlí 2009 í Austurbæ.
    0 min
  • Umphrey's McGee
    Í Konsert í kvöld förum við á tónleika með Bandarísku hljómsveitin Umphrey's McGee sem heldur þrenna tónleika í Eldborg í Hörpu í mars á næsta ári. Miðar á tónleikana seldust upp á tuttugu mínútum og ætla má að meginþorri gesta komi frá Bandaríkjunum. Bandarísku hljómsveitina Umphrey's McGee þekkja máski ekki margir hér á landi en hún á svo sannarlega tryggan hóp aðdáenda því uppselt er á þrenna tónleika sveitarinnar í Hörpu í Reykjavík í mars á næsta ári. Það verður að teljast athyglivert að gestirnir skulu nær eingöngu koma að utan en um 1500 miðar seldust á hvert kvöld og flestir gestirnir sækja alla tónleikana þrenna. Umphrey's McGee hefur starfað síðan 1997, er upprunalega frá South Bend í Indiana og var stofnuð af drengjum sem voru nemendur í Notre Dame háskólanum. Hljómsveitin hefur gengið í gegnum ýmsar mannabreytingar frá upphafi en áhangendahópurinn hefur verið gífurlega tryggur alla tíð og er sveitin elskuð og dáð fyrir fjölbreytta tónlistina sem hún spilar; rokk, progg og þungarokk, fönk, djass, blús, reggí, blúgrass og þjóðlagatónlist. Allt þetta og allt í senn. Ætla má að áhangendur sveitarinnar hafi stokkið til vegna framandi tónleikastaðar hér á Íslandi en einnig segja aðstandendur tónleikanna að hvert kvöld um sig verði einstakt og varla að sama lag verði flutt tvö kvöld í röð. Sveitin er í dag skipuð þeim Brendan Bayliss (gítar, söngur), Jake Cinninger (gítar, söngur), Joel Cummins (hljómborð, píanó, söngur), Andy Farag (trommur), Kris Myers (trommur, söngur) og Ryan Stasik (bassi). Allir eru þeir framúrskarandi hljóðfæraleikarar og þykir samspil sveitarinnar einstakt, jafnt í hljóðveri sem uppi á sviði. Umphrey's McGee gaf í fyrra út elleftu og tólftu breiðskífur sínar og sýna þær vel hvernig hljómsveitin er uppbyggð. „Tónlistin flæðir allt frá progg-rokki og yfir í danstónlist,“ segir Brendan Bayliss gítarleikari og söngvari sveitarinnar. Hljómsveitin fagnaði tuttugu ára starfsafmæli með útgáfu platnanna. Í stað þess að líta til baka og tína upp vel valdar gersemar úr lagasafni sínu, mættu þeir með tvær plötur með nýju frumsömdu efni. „Það hefði verið auðvelt að spila smellina frá fyrstu 5-10 árum en við höfum aldrei verið þannig hljómsveit. Með því að semja nýja tónlist höldum við áfram að þróast,“ segir Joel Cummins hljómborðsleikari. Hljómsveitin hefur haldið yfir 2.400 tónleika, gefið út 5 milljón lög og sýnir engin þreytumerki. Þeir urðu fyrstir til að hleypa af stokkunum eigin streymisíðu, UMLive.net, þar sem finna má upptökur frá hverjum einustu tónleikum sem sveitin hefur haldið frá
    0 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…