Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Ólöf Arnalds, Mr. Silla og Radical Face á Iceland Airwaves
    Iceland Airwaves fer fram dagana 6. - 9. nóvember. Í Konsert vikunnar heyrum við í Ólöfu Arnalds í Fríkirkjunni á Airwaves 2016, Mr. Sillu í Silfurbergi á Airwaves 2014 og bandarísku sveitinni Radical Face sem spilaði á Airwaves 2014 líka í Norðurljósum í Hörpu. Ben Coooper heitir hann náunginn sem tók fyrir rúmum 15 árum upp listamannsnafnið Radical Face þegar hann sá auglýsingu fyrir andlitslyftingu, Radical Face lift, og ákvað að nota nafnið Radical Face. Undir því nafni hefur hann gert einar 6 stórar plötur og sú nýjasta kom út í fyrra, heitir Missing Film og inniheldur instrumental kvikmyndatónlist fyrir kvikmyndir sem eru ekki til, eða voru amk. ekki til þegar platan kom út. Mr. Silla er listamannsnafn Sigurlaugar Gísladóttur sem hefur verið viðloðandi íslenskt tónlistarlíf um margra ára skeið. Hún dró það til ársins 2016 að senda frá sér fyrstu sólóplötuna; Mr. Silla, og svo kom önnur núna á þessu ári; Hands on hands. Mr. Silla hefur verið áberandi í jaðarsenu íslenskrar tónlistar um árabil, frábær tónlistakona og söngkona sem hefur lagt mörgum sveitum og -listamönnum lið, ekki síst hljómsveitinni MÚM. Og þrátt fyrir að engin kæmi platan var hún löngu farin að koma fram undir nafninu Mr. Silla - og Rás 2 fékk að hljóðrita tónleikana hennar á Airwaves 2014 í Silfurbergi í Hörpu . 2016 tók Rás 2 upp tónleika Ólafar Arnalds í Fríkirkjunni sem er einn af föstu tónleikastöðunum á Airwaves. Þar er heilmikið prógramm í ár sem finna má á www.Icelandairwaves.is Ólöf Arnalds er frábær tónlistarkona sem er búin að vera fyrirferðarmikil í músíksenunni hér á Íslandi í bráðum 20 ár. Hún var hluti af Múm og ferðaðist hingað og þangað frá árinu 2003 með þeim áður en hún sendi frá sér fyrstu sólóplötuna, og hefr í dag sent frá sér fjórar plötur. Við og Við (2007), Innundir Skinni (2010), Sudden Elevation (2013) og fjórða og nýjasta platan; Palme, kom 2014. Ólöf hefur líka unnið með BJörk, Mugison, Slowblow og Skúla Sverrissyni sem var einmitt með henni á Airwaves 2016 í Fríkirkjunni.
    0 min
  • Nauðungarhjónabönd og saga hrekkjavökunnar.
    Í Hnotskurn í dag er fjallað annars vegar um sögu Hrekkjavökunnar, tengsl hennar við Ísland og gamlar hefðir. Í seinni hluta þáttarins er fjallað um barnahjónabönd á heimsvísu en þó sérstaklega í Malaví. Tilefni umfjöllunarinnar er Landssöfnun UN Women sem fer fram á RÚV 1. nóvember.
    0 min
  • The Flaming Lips á Iceland Airwaves 2014
    Senn líður að Iceland Airwaves en hátíðin fer fram dagana 6. - 9. nóvember nk. í miðborg Reykjavikur einsog alltaf. Í Konsert vikunnar rifjum við upp aldeilis frábæra tónleika, nefnilega stærstu tónleika Iceland Airwaves 2014, tónleika bandarísku hljómsveitiarinnar The Flaming Lips sem fóru fram í Valsheimilinu á Hlíðarenda á sunnudagaskvðldinu á Airwaves þetta ár. Hljómsveitin The War On Drugs hitaði upp fyrir Flaming Lips, það var ansi gott líka en Rás 2 fékk ekki leyfi til að taka það upp því miður. Flaming Lips er magnað tónleikaband. Sveitin er búin að vera starfandi síðan árið 1983, en árið 1983 var Bubbi Morthens í hljómsveitinni Egó, FTT var stofnað, Garden Party með Mezzoforte sló í gegn í Englandi og Rás 2 var stofnuð. Og allar götur síðan hefur þessi hljómsveit verið til og hún hljómar alltaf jafn litrík og fersk, en samt eitthvað svo súr. Þeir eru tveir sem er búnir að vera allan tímann, bassa og hljómborðsleikarinn Michael Ivins og söngvarinn, leiðtoginn, Wayne Coyne. Þriðji lykilmaðurinn er svo Steven Drozd sem er búinn að vera með síðan 1991. Hann spilar á allt mögulet, trommur, gítar, hljómborð, bassa ofl. Flaming Lips hefur um árabil þótt eitt skemmtilegasta tónleikaband heims, þekkt fyrir litríka og skemmtilega tónleika, en sveitin hefur líka getið sér gott orð fyrir góða og áhugaverða músík. Nújasta plata sveitarinnar heitir King?s Mouth og kom út á þessu ári. Hún er 15. hljóðversplata Flaming Lips.
    0 min
  • Áróðurssíður á Facebook og fíaskóið í höllinni
    Í þessum fjórða þætti Hnotskurnar fjöllum við um vandræðin í bresku konungshöllinni en breskir fjölmiðlar hafa verið sérstaklega óvægnir í garð nýju hertogaynjunnar Meghan Markle. Þá segjum við einnig frá íslenskum nafnlausum áróðurssíðum á samfélagsmiðlinum Facebook og veltum upp áleitnum spurningum um hvort þeim takist ætlunarverk sitt.
    0 min
  • Iceland Airwaves í fyrra og fyrr
    Í Konsert þessa vikuna förum á Iceland Airwaves í fyrra, og reyndar á Airwaves 2005 líka. Nú styttist heldur betur í Airwaves 2019, hún fer fram dagana 6. - 9. nóvember og í vikunni var appið gert opinbert og dagskráin er komin á netið. Það eru 130 bönd sem spila á hátíðinni í ár og hvert band sérvalið af kostgæfni. Það er spilað á svipuðum stöðum og undanfarin ár, á Gauknum, á Hard Rock Café, á Hressó, Kex Hostel, í Iðnó, Gamla bíó, í Listasafninu og í Valshöllinni á Laugardagskvöldinu þar sem Of Monsters And Men er aðalnúmerið. En það sem við ætlum að hlusta á í Konsert í kvöld eru tvennir tónleikar sem fóru fram á Airwaves í fyrra- í Gamla bíói miðvikudagskvöldið 7. nóvember, með Valdimar og Árstíum. Seinna í þættinum rifjum við svo upp merkilega tónleika sem fóru fram á Grand-Rokk á Iceland Airwaves árið 2005, Grand-Rokk sem löngu er búið að rífa. Það var merkilegur staður og þar spiluðu margar áhugaverðar hljómsveitir oft og lengi. Og á Airwaves 2005 spilaði þar hjómsveitin Jakobínarína sem var afskaplega skemmtileg hljómsveit sem sigraði í Músíktilraunum einmitt þarna fyrr þetta sama ár. David Fricke ritstjóri Rolling Stone sá Jakobínurínu spila á þessum tónleikum þarna á Grand-Rokk og skrifaði afskaplega fallega um sveitina á eftir, og í kjölfarið gerðust allskyns skemmtilegir hlutir hjá þessari mögnuðu hljómsveit. Jakobínarína fór á Eurosonic Festival í Hollandi í janúar 2006, strákarnir fengu svo plötusamning við Parlaphone og fóru nokkrar ferðir til útlanda að spila. Þeir gáfu út eina stóra frábæra plötu en svo liðaðist sveitin því miður í sundur allt of snemma. Það má geta þess að þarna þegar Jakobínarína spilaði á Airwaves 2005 voru meðlimirnir allir vel innan við tvítugt. Ágúst Fannar Ásgeirsson - hljómborð Björgvin Ingi Pétursson - bassi Gunnar Bergmann Ragnarsson - söngur Hallberg Daði Hallbergsson - gítar og raddir Heimir Gestur Valdimarsson - gítar Sigurður Möller Sívertsen - trommur Undir lok þáttarins heyrum við svo í Liverpool-sveitinni The Zutons spila í Listasafninu á Airwaves 2005 Þar sem þeir frumfluttu t.d. lagið Valerie sem Mark Ronson og Amy Winehouse áttu eftir að gera heimsfrægt, en lagið er eftir Zutons.
    0 min
  • Vandræði GAMMA og fimleikadrottningin Simone Biles
    Í þessum þriðja þætti af Hnotskurn förum við yfir feril fimleikakonunnar stórkostlegu, Simone Biles, sem varð um helgina sú fimleikakona (og maður) sem hefur hlotið flesti verðlaun á heimsmeistaramóti frá upphafi. Við rýnum líka í vandræði fjárfestingafyrirtækisins GAMMA sem hafa verið áberandi í fréttum undanfarið.
    0 min
  • Jónas Sig, GDRN og Auður og Sóldögg á Bræðslunni 2019
    Já í Konsert í kvöld förum við á Bræðsluna á Borgarfirði eystra eins og síðasta fimmtudag, en Bræðslan var haldin í 15. Sinn í sumar. Það var bein útsending á Rás 2 eins og undanfarin mörg ár og Þeir sem komu fram voru; Dr. Spock, Dúkkulísurnar, Jón Jónsson og Friðrik Dór (sem við heyrðum í í þættinum fyrir viku) og svo Jónas Sig og Milda Hjartað bandið, Auður og GDRN, og Sóldögg sem við heyrum í hér í kvöld, en Sóldögg reis úr löngum dvala til að spila á Bræðslunni í sumar og hefur svo aðeins verið að spila síðan.
    0 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…