Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • The National í París
    Í Konsert í kvöld heyrum við tvenna nýja tónleika frá franska ríkisútvarpinu, Radio France. Í seinni hlutanum á eftir heyrum við í Hollenskri hljómsveit sem er að spila mikið um alla evrópu um þessar mundir og heitir Michelle David & The Gospel Sessions og spilar gospel og soul eins og nafnið gefur til kynna. Bandið gerir út frá Hollandi en Michelle Davis, söngkonan frábæra í bandinu er rúmlega fimmtug og bandarísk. En við byrjum kvöldið á tónleikum með hljómsveitinni The National sem fóru fram í París 15. apríl sl, á litlum stað (amk á mælikvarða National) sem heitir Café De La danse. National sendir á morgun frá sér áttundu plötuna sína. hún heitir I Am Easy to find og hefur verið að fá gríðarlega mikla og góða umfjöllun undanfarið. Þetta er löng plata - 63 mínútur, 16 lög, lengsta plata National til þessa. Síðasta plata National, Sleep Well Beast, kom út fyrir tveimur árum. Og núna samhliða plötunni sendi sveitin frá sér 24 mínútna langa mynd, - listræna- svart-hvíta stuttmynd sem er full af músík. Leikstjóri myndarinnar heitir Mike Mills - ekki sá sem var í REM svo því sé til haga haldið. Myndin heitir I Am Easy to find eins og platan og aðalhlutverkið í myndinni leikur sænska leikonan Alicia Wikander sem hefur leikið í fullt af myndum sem mörg okkar hafa séð og lengi hefur verið aðdáandi National. Myndin er dramatísk og falleg, sýnir lífshlaup konu sem Alicia Wikander leikur, allt frá barnæsku til dauða, án þess að breytast í útliti. Mjög skemmtileg pæling og flott mynd og áhrifamikil. Og á nýju plötunni frá National sem heitir sama nafni og myndin eru nokkrar konur sem koma vð sögu og syngja á plötunni ásamt söngvaranum Matt Berninger. Þær eru Lisa Hannigan, Sharon Van Etten, Hin franska Mina Tindle, Gail Ann Dorsey sem lengi var bassaleikari David Bowie, Kate Stables, og svo the Brooklyn Youth Chorus. En annars er National rokkband í grunninn, frá Cincinati í Ohio og var stofnað árið 1999. Sveitin er svona skipuð frá upphafi til dagsins í dag: Matt Berninger (söngur), Aaron Dessner (gítar, píanó, hljómborð), Bryce Dessner (gítar), Scott Devendorf (bassi) og Bryan Devendorf (trommur). Fyrsta platan kom út The National kom út árið 2001 og sveitin gaf hana út sjálf. Tveimur árum seinna kom plata tvö; Sad Songs for Dirty Lovers. Eftir að hún kom út ákváðu liðsmenn National að prófa að segja upp hefðbundnum störfum sínum og einbeita sér að tónlistinni, nældu sér í plötusamning við Beggars Banquet Records og þriðja platan; Alligator, kom út 2005 og fékk frábæra dóma. Vinsældirnar jukust svo með fjórðu o
    0 min
  • HEIMA 2018
    Í Konsert kvöldsins förum við á HEIMA hátíðina í Hafnarfirði í fyrra og heyrum í þeim þremur listamönnum sem voru í beinni útsendingu þá, hér á Rás 2. Heima fer fram í sjötta sinn núna síðasta vetrardag. 13 atriði spila í þrettan HEIMA-húsum, 26 tónleikar í það heila á einu kvöldi, og svo er eftirpartí í Bæjarbíói með Á Móti Sól sem ætlar líka að spila í einu HEIMA-húsanna. Þeir sem koma fram á HEIMA í ár eru: Mugison Svavar Knútur Cell7 Warmland Ragnheiður Gröndal Jónas Sig Á móti sól Svala Prins Póló GÓSS Rock Paper Sisters Jón Jóns og Friðrik Dór One Bad Day (Eyvindur Karlsson) Það var sama fyrirkomulag í fyrra og þá sendi Rás 2 út beint frá tónleikum Valgeirs Guðjónssonnar, Kristinu Bæraendsen frá Færeyjum og Hjálma, og við ætlum að rifja það upp í þætti kvöldsins.
    0 min
  • Anna Calvi í Genf & Glenn Hughes á Sweden Rock
    Í Konsert kvöldsins heyrum við upptöku frá sænska útvarpinu frá tónleikum Glenn Hughes úr Deep Purple frá Sweden Rock festivalinu í fyrrasumar. Heyrum svo aðeins í Led Zeppelin á tónleikum árið 1972 og Önnu Calvi á Antigel Festival í Genf í febrúar. Anna Calvi er mikill töffari, heitir Anna Margaret Michelle Calvi, fædd 24. September 1980 í Twickenham á Englandi. Mamma hennar er ensk en pabbinn ítalskur. Og pabbinn hefur alltaf verið sérstakur áhugamaður um tónlist og það var í gegnum hann sem hún kynntist allskyns tónlist þegar hún var stelpa, allt frá Captain Beefheart og Rolling Stones til Mariu Callas. Og hún varð snemma hugfangin af hljóðfærum, sótti í öll hljóðfæri sem hún sá og reyndi að fá útúr þeim einhverskonar hljóð. Anna Calvi sendi frá sér fyrstu plötuna árið 2011 og hlaut fyrir hana EBJBA verðlaunin (European Border Breakers Award). Hún var líka tilnefnd til Mercury verðlaunanna fyrir hana og hún var tilnefnd til bresku tónlistarverðlaunanna 2012 sem nýliði ársins. Önnur platan hennar, One Breath, kom út 2013 og var líka tilnefnd til Mercury verðlaunanna. Anna Calvi er flinkur gítarleikari auk þess að vera fyrirmyndar söngkona og lagasmiður en hennar aðal hljóðfæri er samt fiðla, hún er með háskólagráðu í fiðluleik. Og Anna Calvi spilaði núna í febrúar á Antigel Festival í Genf í Sviss og hún var bara ein á sviðinu, hún og rafmagnsgítarinn. EBU tók tónleikana upp. Glenn Hughes er Englendingur, 67 ára gamall, var í eina tíð bassaleikari og söngvari Deep Purple, gekk til liðs við bandið þegar Ian Gillan hætti og David Coverdale kom þar inn í staðinn. Hann var í hljómsveitinni Trapeze frá 1970 - 1974 en gekk þá til liðs við Deep Purple og var með á þremur plötum, Burn, Stormbringer og Come Taste the band. Hann var líka söngvari Black Sabbath um tíma og á var með þeim á einni plötu - Seventh Star sem kom út 1986. Glenn Hughes hefur gefið út helling af sólóplötum og nokkrar plötur með hljómsveitinni Black Country Communion en þar eru með honum Jason Bonhan trommari, sonur John´s Bonham úr Led Zeppelin, og gítarleikarinn Joe Bonamassa. Og svo er hann líka í annari hljómsveit sem heitir California Bread og þar er Jason Bonham líka. Glenn Hughes var vígður inn í frægðarhöll rokksins fyrir þremur árum sem hluti af Deep Purple og er í frábæru formi, spilar mikið og syngur eins og hann sé tvítugur. Og síðasta sumar, 7. júní spilaði hann á Sweden Rock festival í Svíþjóð og sænska útvarpið tók það upp og við ætlum að heyra það í Konsert vikunnar.
    0 min
  • Blúshátíð 2018
    Í Konsert vikunnar heyrum við brot af því besta frá íslenska kvöldinu á Blúshátíð í fyrra. Páskarnir eru á næsta leiti en áður en páskarnir koma þá verður haldin Blúshátíð í Reykjavík eins og venjulega í vikunni fyrir páska á Hótel Nordica í Reykjavík. Dagskráin er glæsileg eins og alltaf, það má sjá hana á blues.is Það verður spilað á Nordica þrjú kvöld í röð, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudags (skírdag), og á Skírdag verður bein útsending á Rás 2 þar sem 30 ára afmæli Vina Dóra verður fagnað með Vinum Dóra og ýmsum gestum. En það sem við bjóðum uppá í Konsert vikunnar er brot af því besta frá síðustu Blúshátíð, frá Skírdagskvöldi í fyrra en þá komu fram: Tryggvi Hübner ásamt hljómsveit þar sem Haraldur Þorsteinsson var á bassa, Ásgeir Óskarsson á trommum og Magnús Jóhann á hljómborð. Flestir þeirra voru í hljómsveitinn EIK og nokkur lög þessarar goðsagnakenndu hljómsveitar voru spiluð. Eftir hlé bættust fleiri stjörnur í hópinn; Björgvin Gíslason, Sigurður Sigurðsson, Davíð Þór Jónsson, Guðmundur Pétursson, Óskar Logi, Stefanía Svavarsdóttir, Halldór Bragason, Róbert Þórhallsson og fleiri og fleiri. Deila á Facebook Senda tölvupóst
    0 min
  • Low á tónleikum í Genf 15. febrúar 2019
    Í Konsert kvöldsins förum við á tónleika með bandarísku hljómsveitinni Low á Antigel festival í Genf í Sviss núna 15. Febrúar sl. Þegar það er búið heyrum við nokkur lög með KK Bandinu á Bræðslunni fyrir þremur árum, en það var verið að tilkynna dagskrá Bræðslunnar 2019 núna fyrir nokkrum dögum. Low sem hefur fjórum haldið tónleika í Reykjavík varð til í Duluth í Minnesota árið 1993. Hjarta sveitarinnar samanstendur af hjónunum Alan Sparhawk sem spilar á gítar og syngur, og Mimi Parker sem trommar og syngur. Með þeim í dag er svo bassaleikari sem heitir Steve Garrington, en hann er fjórði bassaleikari sveitarinnar. Þau Alan og Mimi eiga tvö börn og eru mormónatrúar. Tónlist Low hefur hingað til meira og minna einkennst af lágstemmdum og rólegum lögum og tónlistarpressan smellti snemma hugtakinu „Slow core“ á tónlistina þeirra sem þau sjálf hafa aldrei verið sátt við. Það er sannarlega satt að indie-kántrí-rokkið, eða hvað við eigum nú að kalla þetta sem Low spilar, er yfirleitt spilað hægt. Þetta er dramatísk músík og Low á harða aðdáendur um allan heim. Sveitin hefur verið á samningi hjá Sub Pop útgáfunni allar götur síðan 2005 og nýjasta platan þeirra sem heitir Double Negative kom út í september í fyrra og sló heldur betur í gegn. Hún hefur kannski ekki selst neitt sérstaklega mikið en hún var valin ein af plötum ársins á allskyns listum sem voru birtir núna um áramótin hjá blöðum, tímaritum og vefmiðlum. Platan lenti t.d. í fyrsta sæti hjá tímaritinu Uncut, 7. sæti há Spin - 8. hjá Pitchforkmedia og 19. sæti hjá Mojo. Sannarlega áhugaverð plata en dálítið súr og tormelt og vel þess virði að kynna sér hana ef maður á annað borð hefur einhvern tíma haft smekk fyrir Low. Og Low hefur verið að fylgja Double Negative eftir síðan hún kom út og í febrúar kom sveitin við á Antigel Festival í Sviss og spilaði gömul lög í bland við lög af nýju plötunni.
    0 min
  • Kristin Hearsh í Genf og Mark Lanegan í R.vík
    Tónleikarnir með Kristin Hersh fóru fram á Antigel Festival í Genf í Sviss núna í febrúar, í gamalli kirkju. Og tónleikarnir með Mark Lanegan, fyrrum forsprakka Screaming Trees, voru hljóðritaðir af Rás 2 í Fríkirkjuni í Reykjavík 30. nóvember árið 2013.
    0 min
  • Editors og Vök
    Í Konsert í kvöld förum við á tónleika með ensku sveitinni Editors í Lausanne í Hollandi og heyrum líka nokkur lög með Vök frá Iceland Airwaves 2017. Editors er rokkband af gamla skólanum, gítarar, bassi, trommur, hljómborð og söngur. Sveitin var stofnuð árið 2002 í Birmingham á Englandi og hét fyrst Pilot the Pride og síðar Snowfield áður en nafið Editors varð fyirir valinu. Hann heitir Tom Smith söngvarinn sem spilar líka á gítar. Russell Leetch spilar á bassa og syntha, Ed Lay á trommur og slagverk, Justin Lockey á gítar, og Elliott Williams á hljómborð. Fyrsta platan þeirra heitir The Back Room og kom út 2005. Þar eru lög eins og Blood og Munich sem gerðu það nokkuð gott og platan var tilnefnd til Mercury tónlistarverðlaunanna. Önnur platan; An End Has a Start, fór beint á topp breska vinsældalistans þegar hún kom út í júní 2007 og fyrir hana var Editors tilnefnd til Bresku tónlistarverðlaunnan í flokknum hljómsveit ársins. Þriðja platan - In This Light and on This Evening, kom út í október 2009 og fór á topp breska listans eins og platan á undan. Fjórða platan; The Weight of Your Love, kom út í júlí 2013, sú fimmta, In Dream, í október 2015 og sjötta platan; Violence, kom út í fyrra. Editors hefur lengi þótt gott tónleikaband og það hefur verið uppselt á tónleika þeirra árum saman og sveitinni verið líkt við sveitir eins og Echo & the Bunnymen, Joy Division, Interpol, The Chameleons og U2. Og á síðasta túr, síðasta haust, spilaði íslenska hljómsveitin Vök með þeim á slatta af tónleikum í Evrópu. En Editors hafa verið að fylgja eftir nýjustu plötunni sem kom út í fyrra og EBU tók upp tónleikana þeirra í Lausanne í Apríl í fyrra og við ætlum að heyra þá í kvöld. En síðustu mínúturnar í þættinum á hljómsveitin Vök sem er þessa dagana í enn einum Evróputúrnum, er einmitt að klára í bili í kvöld í Poznan í Póllandi. Sveitin verður svo með útgáfutónleika í Iðnó 22. mars og á Græna Hattinum á Akureyri 23. mars, en það er að koma ný breiðskífa frá Vök núna í mars og þar verður að finna hittarana sem við höfum verið að spila á Rás 2 undanfarið. Vök hefur sent frá sér hvern smellinn á fætur öðrum síðustu mánuði. Við heyrum í þættinum nokkur lög frá tónleikum með Vök úr Hofi á Akureyri frá Airwaves 2017, en það var bein útsending frá Hofi.
    0 min
  • Une Misére - Hildur ofl. á Eurosonic 2019
    Í Konsert í kvöld höldum við áfram að heyra í hljómsveitum sem spiluðu á Eurosonic tónlistarhátíðinni í Groningen í Hollandi núna um miðjan janúar. Að þessu sinni eru það tvær íslenskar, söngkona frá Svíþjóð og dúett frá London. Íslensku númerin eru Hildur og Une Misére og frá Svíþjóð kemur hin 24 ára Grant, og frá London dúóið Ferris og Sylvester. Á Eurosonic í ár voru rúmlega 4.100 karlar og konur úr Evrópska Músíkbransanum frá 44 löndum og hljómsveitirnar sem spiluðu voru 342 á 42 tónleikastöðum. Á Eurosonic spila fyrst og fremst nýjar, ungar og upprennandi hljómsveitir alltaðar að úr Evrópu og það voru 7 atriði í ár frá íslandi; Hugar, Hatari, Hildur, Bríet, Une Misére, Kælan Mikla og Reykjavíkurdætur sem nældu sér í verðlaun á hátíðinni eins og fram hefur komið, ný Evrópsk tónlistarverðlaun sem heita Music Moves Europe Talent Award. Og ofan á það fengu þær svo vinsælda-kosningaverðlaun; Public Choice Awards í sínum flokki, Rapp og Hip Hop.
    0 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…