Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Calexico og Iron & Wine í Munchen 2019
    Í Konsert vikunnar förum við á tónleika með bandarísku sveitunum Iron & Wine og Calexico, ekki í sitthvoru lagi, heldur saman. Iron & Wine er hljómsveit Sam?s Beam sem kom einmitt hingað til Íslands og spilaði í Eldborg í Hörpu í ágúst 2017. Sam er fæddur 1974 og alinn up í Suður karólínu en flutti þaðan til Virginíu og svo þaðan til Florida til að ganga í skóla. Hann gerir í dag út frá Durham í Norður Karólínu. Iron & Wine hefur sent frá sér einar sex hljóðversplötur og fullt af Ep plötum og smáskífum af ýmsum toga. Hann túrar yfirleitt með hljómsveit sem er frábær og tónleikarnir hérna í Hörpu voru magnaðir. Og svo er það hljómsveitin Caelexico sem kemur frá Tucson í Arizona. Þetta er Tex-Mex indie-band sem heitir eftir litlum bæ á landamærum Californíu og Mexíkó. Þar eru tveir lykilmenn sem kynntust þegar þeir spiluðu saman í LA bandinu Giant Sand. Þeir heita Joey Burns og John Convertino. Calexico er skemmtileg hljómsveit þar sem blandað er saman áhrifum frá Mexíkó; Mariachi, Conjunto, Cumbia og Tejano - við kántrí-músík, jazz og post-rokk Tónlistin þeirra er skemmtileg súpa. Fyrir 15 árum síðan rugluðu Calexico og Iron & Wine saman reitum og gerðu saman EP plötu sem heitir In The Reins. Síðan þá stóð alltaf til að gera meira og það gerðist í fyrr þegar Iron & Wine og Calexico gerðu saman stóra plötu sem heitir Years to burn. Platan sem er stórfín var tekin upp í hljóðveri í Nashville með upptökustjóra sem heitir Matt-Ross Spang og hefur unnið t.d. með John Prine, Margo Price og Jason Isbell. Lögin sömdu þeir saman eða sitt á hvað, Calexico menn og Sam Beam, Iron & Wine. Og svo var farið í heljarinnar tónleikaferð, byrjað í Bandaríkjunum í júní um það leyti þegar platan kom út, en svo var farið til Evrópu og 11. nóvember í fyrra spiluðu Calecixo og Iron & Wine í Muffathalle í Munich í Þýskalandi. Eitt af þýsku Ríkisútvörpunum , DEBR, tók tónleikana upp og nú ætlum við að hlusta í Konsert vikunnar.
    0 min
  • Warmland, Black Country, New Road og Kiasmos á Eurosonic
    Í Konsert í kvöld förum við á Eurosonic Festival í Hollandi, en hátíðin fór fram um miðjan janúar í Háskólaborginni Groningen í Hollandi. 347 hljómsveitir og listamenn frá 33 lögum spiluðu á hátíðinni og þar á meðal voru 6 atriði frá Íslandi; JFDR, Sólveig Matthildur, President Bongo, Gabríel Ólafs, Cell 7 og Warmland, sem við ætlum einmitt að byrja á að hlusta á hér í kvöld. Við heyrum líka í ensku hljómsveitinni Black Country, New Road sem hefur vakið talsverða athygli undanfarið heima í Bretlandi og víðar, en Black Country New Road spilaði á þekktustu Rokkbúllunni í Groningen; Vera, þar sem bæði U2 og Nirvana hafa t.d. spilað, sem og Mínus, Leaves og Sólstafir svo dæmi séu nefnd. En við heyrum líka í þættinum í Sólstöfum í std 12, upptöku frá síðasta föstudegi, og nokkur lög frá tónleikum Kiasmos á Eurosonic 2015. Warmland skipa þeir Arnar Guðjónsson og Hrafn Thoroddsen, tvær hetjur og reynsluboltar úr íslensku músíklífi. Arnar leiddi hljómsveitina Leaves hér í eina tíð, en Leaves er einmitt fyrsta íslenska hljómsveitin sem spilaði á Eurosonic, líklega árið 2002. Og Hrafn er forsprakki Ensími auk þess sem hann var lykilmaður í Jet Black Joe fyrir tæpum aldarfjórðungi. Þeir vissu vel hvor af öðrum en kynntust fyrir alvöru þegar þeir voru að spila með Bang Gang í Asíu fyrir nokkrum árum. Þeir spila báðir á hljómborð og gítar en þegar þeir standa á sviði er Arnar meira með gítarinn og Hrafn með hljómborðin. Þeim til halds og trausts á sviði eru svo tveir reynsluboltar; Guðni Finnson bassalaleikari og trommarinn Arnar Þór Gíslason, en þeir hafa t.d. spilað saman í Pollapönkbandinu, með Jónasi Sig, Mugison, í Ensími, Dr. spock og svo framvegis og svo framvegis. Þeir eru eitt þéttasta ryþmapar íslenskrar tónlistarsögu. Warmland sendi frá sér fyrstu stóru plötuna; Unison Love, í fyrra og Warmland var á Eurosonic Festival í ár, á stað sem heitir Grand Theatre föstudagskvöldið 17. Janúar og við heyrum upptöku þaðan í Konsert vikunnar. Black Country New Road er nýtt band, Eurosonic er fyrst og fremst fyrir ungar og upprennandi hljómsveitir og listamenn og það hefur verið talsvert suð í kringum Black Country New Road undanfarið ár eða svo en sveitin er ekki búin að senda frá sér nema 2 lög á Spotify t.d. Þetta er Rokkband í grunninn, skipað 4 strákum og 3 stelpur og stundum minnir hljómsveitin talsvert á Risaeðluna okkar gömlu góðu, það er t.d. bæði spilað á saxófón og fiðlu í hljómsveitinni, alveg eins og í Risaeðlunni. Black Country New Road spilaði á rokkklúbbnum VERA sem er líkast til þekktasti tónleikastaðurinn í
    0 min
  • Roxette í Globen 2001 og Coldplay hér og þar
    Í Konsert er í kvöld heyrum við tónleika frá Sænska Ríkisútvarpinu sem voru hljóðritaðir 16. nóvember árið 2001 með sænsku hljómsveitinni Roxette, og minumst þannig söngkonunanna Marie Fredriksson sem lést núna í desember efir 17 ára baráttu við krabbamein. Hún var 61 árs. Og svo þegar það er búið heyrum við í Coldplay í hljóðveri hjá BBC núna í nóvember og víðar. ? Roxette var tveggja manna hljómsveit og sá sem var með Marie í sveitinni var lagahöfundurinn og gítarleikarinn Per Gessle. Þau Marie Fredriksson og Per Gessle voru góðir vinir þegar þau stofnuðu Roxette árið 1986. Fyrsta platan; Pearls of passion, kom út það sama ár og þau slógu umsvifalaust í gegn heima í Svíþjóð og aþljóðleg velgengni fylgdi fljótt í kjölfarið, en það var merkilegur hlutur sem varð til þess að Roxette sló í gegn í Ameríku. En það var þannig að bandarískur skiptinemi í Svíþjóð heyrði lagið þeirra The Look í útvarpinu. Fór í kjölfarið í plötubúð þar sem hann keypti plötuna Look Sharp, sem kom út 1988 (önnur platan þeirra), fór með hana heim til Ameríku og lánaði hana útvarpsmanni í Minneapolis. Hann byrjaði að spila lagið og svo fleiri útvarpsstöðvar í kring og á endanum fór lagið í fyrsta sæti vinsældalistans í Ameríku. Þá hafði EMI í Ameríku hafnað hljómsveitinni, sagt að hún ætti ekkert erindi í Ameríku en það var nú öðru nær. Marie Fredriksson var fædd 30. Maí 1958 á sveitabæ í suður Svíðþjóð, skammt frá litlum bæ sem heitir Össjö. Hún var yngst fimm systkina. Ung féll Marie fyirir tónlistinni og byrjaði að syngja. Hú kynntist Per Gessle í einni af hljómsveitinum sem hún var í þegar hún var unglingur, fyrir 1980. Hún sendi frá sér tvær sólóplötur áður en fyrst plata Roxette kom út. Fyrsta platan kom 1984 og önnur '86, sama ár og fyrsta Roxette platan kom út. Sólóplöturnar voru sungnar á sænsku en Roxette alltaf á Ensku. Marie hélt áfram að gera sólóplötur eftir að Roxette sló í gegn. Hátðindi Roxette í Ameríku var náð með plötunni Joyride 1991, en þau héldu áfram að gefa út plötur, og næstu fjórar; Tourism, Crash! Boom! Bang!, Have a Nice Day, og Room Service sem kom 2001 fóru allar í fyrsta sæti vinsældalistans heima í Svíþjóð. En ári eftir að Room Service kom út greindist Marie með heilaæxli . Æxlið var tekið í aðgerð sem heppnaðist vel. En hún þurfti að láta lítið fyrir sér fara lengi á eftir en smátt og smátt safnaði hún körftum og sendi svo frá sér sólóplötuna The Change árið 2004, þremur árum eftir aðgerð. Hún steig ekki á svið aftur fyrr en 2009, en það ár kom Roxette saman aftur og sveitin túraði víða næstu árin og sendi f
    0 min
  • Hjaltalín á Airwaves 2019 og Hellacopters á Sweden Rock 2016
    Við heyrum tvo frábæra konserta í Konsert vikunnar, byrjum á Iceland Airwaves núna í nóvember og heyrum í Hjaltalín í Listasafninu, og förum svo á Sweden Rock sumarið 2016 og heyrum í hinni frábæru sænsku hljómsveit; The Hellacopters. Hjaltalín hefur um árabil verið ein vinsælasta og dáðast hljómsveit okkar Íslendinga. Sveitin sendi frá sér tvö lög á síðasta ári. Baronesse kom fyrst í janúar, fyrsta nýja lagið frá Hjaltalín í 3 ár, og svo kom Love from 99 síðasta sumar. Það átti líka að koma út stór plata í haust, en henni var slegið á frest fram til vors 2020. Rætur Hjaltalín liggja næstum 15 ár aftur í tímann til MH þar sem sveitin var stofnuð og plötur sveitarinnar eru fjórar talsins: ??2007: Sleepdrunk Seasons ??2009: Terminal ??2012: Enter 4 ??2014: Days of Gray (Original Motion Picture Soundtrack) Hjaltalín var ein af hljómsveitunum sem spiluðu á Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli í ágúst, og svo hélt sveitin tvenna tónleika í Eldborg í Hörpu í september, en það gerði Hjaltalín síðast 2014. Og svo spilaði Hjaltalín á Airwaves í Listsafninu, og þeir tónleikar voru teknir upp fyrir Rás 2. Þar spiluðu þau nýju lögin Love from 99 og Baronesse, og svo eitt sem er óútkomið; Needles and pins. Þá skiptum við um gír og allar græjur, förum yfir til Svíþjóðar, klæðum okkur í rokkbomsur og leðurjakka og hækkum í mögnurunum upp í 11, og hlustum á tónleika með sænsku rokksveitinni Hellacopters á Sweden Rock 2016. Hellacopters er "garage"-rokkband sem var stofnað árið 1994 af þeim Nicke Anderson sem syngur og spilar á gítar, Andreas Tyrone "Dregen" Svensson gítarleikara, bassaleikaranum Kenny Håkansson og trommaranum Robert Eriksson.
    0 min
  • Rifjum aðeins upp 2018
    Þessi fyrsti Konsertþáttur 2020 verður notaður til að rifja upp - ekki eitthvað sem gerðist á árinu sem var að kveðja, heldur til að spila brot af því besta af lifandi tónlist sem Rás 2 bauð uppá 2018! Við heyrum meðal annars í Midge Ure (Ultravox), Hjálmum og Teiti Magnússyni og Æðisgenginu í std. 12, Mugison á Aldrei fór ég suður, Sólstöfum á Eistnaflugi, Kolrössu Krókríðandi á Aldrei, Todmobile og Írafári á Tónalóði.
    0 min
  • Jólalegar Dúkkulísur á Egilstöðum
    Í Konsert vikunnar sláumst við í för með einni af sigursveitum Músíktilrauna, sjálfum Dúkkulísunum, og hlustum á jólatónleika sem þær héldu á heimavelli núna síðasta laugardagskvöld, í Tehúsinu á Egilstöðum. Dúkkulísurnar sem sigrðuðu í Músíktilraunum árið 1983 eru enn starfandi, elsta starfandi kvennahljómsveit landsins, og það sem meira er, allar stelpurnar sem voru í hljómsveitinni sigurkvöldið fyrir öllum þessum árum, eru enn í hljómsveitinni í dag, og tvær til. Þær gáfu út sex laga jólaplötu í fyrra, hafa haldið jólatónleika undanfarin 3 ár og í ár spiluðu þær fjórum sinnum núna fyrir jólin: Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði 13. desember. Hótel Aldan, Seyðisfirði 14. desember kl 16:00 Tehúsið, Egilsstöðum 14. desember Bæjarbíó, Hafnarfirði 18. Desember Og tónleikarnir sem við ætlum að hlusta á í Konsert vikunnar eru frá Egilstöðum, en Dúkkulísurnar eru upphaflega frá Egilstöðum, þær voru bara 14-16 ára gamlar stelpurnar fimm sem voru í bandinu Þegar þær stofnuðu hljómsveitina árið 1982. En Dúkkulísur 2019 eru: Adda María Jóhannsdóttir - slagverk Erla Bryndís Ingadóttir - bassi Erla Ragnarsdóttir - söngur Gréta Jóna Sigurjónsdóttir - gítar Guðbjörg Pálsdóttir - trommur Harpa Þórðardóttir - hljómborð Hildur Ásta Viggósdóttir - hljómborð Sérstakir gestir á tónleikunum voru Magni Ásgeirsson og Stefán Jakobsson.
    0 min
  • Staða loftslagsmála á Íslandi og Taylor Swift
    Í áttunda þætti Hnotskurn verður farið yfir stöðu loftslagsmálanna á Íslandi í tilefni af borgarafundi Kastljóss um loftslagsmál sem fram fer í kvöld. Þá skoðum við hvers vegna bandarískir nýnasistar og hvítir þjóðernissinnar sjá poppstjörnunaTaylor Swift í dýrðarljóma.
    0 min
  • Richard Hawley í The EartH í London 6. maí sl.
    Í Konsert í kvöld förum við á tónleika með breska tónlistarmanninum Richard Hawley sem á miklum vinsældum að fagna og mjög víða.
    Richard Willis Hawley er fæddur í janúar 1967 og er þess vegna 52 ára gamall. Hann er fædur og alinn upp í Sheffield, og vakti fyrst athygli sem meðlimur Brit-Pop hljómsveitarinnar The Longpigs sem var ein af þessum minna þekktu Brit-Pop sveitum reyndar. Sú sveit lognaðist útaf árið 2000 og Hawley gekk til liðs við hljómsveit vinar síns, Jarvis Cocker, Pulp, sem session maður - leigu- gítarleikari, en Richard Hawley er mjög lunkinn gítarleikari. Hann spilaði líka með ýmsum öðrum um tíma, t.d. Lisu Marie Presley og Nancy Sinatra.
    Hann var fyrst og fremst session maður og var um tíma að hugsa um að leggja gítarinn á hilluna og hætta í músík, fá sér almennilega vinu svo hann gæti framleytt fjölskyldunni sinni. En þeir vinir hans í Pulp, og sérstaklega Jarvis Cocker, hvöttu hann til að gera sólóplötu, sem hann og gerði. Hann hafði alltaf frá því hann var unglingur verið að semja lög en var ekki mikið að flagga þeim. Platan - mini platan Richard Hawley kom út í apríl 2001 og hún sló óvænt í gegn eða vakti amk. það mikla athygli að hann gerði aðra plötu, núna fulla stóra plötu; Late Night Final, líka 2001. Og svo aðra, Lowedges 2003, og í dag eru sólóplöturnar hans orðnar 8 talsins, sú nýjasta kom út núna í lok maí og náði 3. Sæti breska vinsældalistans. Hún heitir Further.
    Richard Hawley hefur líka komið fram sem gestur á plötum með Arctic Monkeys, Manic Street Preachers, Elbow, Duane Eddy, og Paul Weller svo einhverjir séu nefndir, og svo hafa þeir spilað dálítið saman og eru ágætir kunningjar eða vinir, Halwey og John Grant.
    Hann hefur veirð tilnefndur til ótal verðlauna og músíkpressan sýnir honum alltaf mikinn áhuga þegar hann gerir plötu.
    Og Richard Hawley hefur verið að fylgja nýju plötunni sinni eftir og tónleikarnir sem við ætlum að heyra í kvöld og koma frá BBC fóru fram á stað í London sem heitir The EartH, er í Hackney í London.
    1 hr 55 min
  • Menntasjóður námsmanna og boxbardagi Logan Paul og KSI
    Á Alþingi er nú til umfjöllunar frumvarp um Menntasjóð námsmanna sem ætlað er að koma í stað LÍN, við skoðum frumvarpið nánar og ræðum við Sigrúnu Jónsdóttur, forseta Landsamtaka íslenskra stúdenta. Svo skoðum við einar stærstu YouTube erjur sögunnar milli Logan Paul og KSI sem börðust í hnefaleikahringnum í annað sinn um helgina.
    0 min
  • Warmland, Axel Flóvent og Eivør á Iceland Airwaves 2018 og 2009
    Þá er Iceland Airwaves hátíðin skollin á og í Konsert í kvöld heyrum við tvenna tónleika frá Airwaves í fyrra; Axel Flóventog Warmland í Gamla bíó. Warmland er dúett skipaður tveimur reynsluboltum úr bransanum, þeim Arnari Guðjónssyni og Hrafni Thoroddsen en þeir eru þekktastir sem söngvarar hljómsveitanna Leaves og Ensími. Þeir vissu vel hver af öðrum en kynntust þegar þeir voru á tónleikaferðalagi um Kína með hljómsveitinni Bang gang fyrir nokkrum árum. Warmland er popphljómsveit og það er eitt og annað í pípunum hjá þeim, sveitin er að spila á Airwaves í ár, verður svo í þýskalandi um miðjan mánuðinn og 22. Nóvember á M for Montreal hátíðinni í Kanada og er svo fulltrúi Rásar 2 á Eurosonic Festival í Hollandi í janúar. Warmland sendi frá sér breiðskífuna Unison Love fyrr á árinu og lögin sem sveitin spilaði á Airwaves í fyrra eru öll af henni. Axel Flóvent er Húsvíkingur og vakti fyrst athygli árið 2016 þegar hann sendi frá sér fyrstu EP plötuna, Forest Fires. Hlustendur Rásar 2 hrifust strax að þessum unga manni og það gerðu líka fleiri, fólk um alla Evrópu. Axel flutti til Hollands um það leyti þegar önnur Ep platan; Quiet eyes kom út. Hann var í Hollandi í eitt og hálft ár og þaðan flutti hann til Brighton á Englandi þar sem býr í dag eftir því sem Konsert kemst næst. Hann gerði nýlega samnig við Nettwerk Music Group sem er allt í senn plöutútgáfa og umboðsskrifstofa. Nettwerk mun sjá um mál Axels Flóvent næstu árin amk. Og núna síðar í mánuðinum er hann að fara í tónleikaferð sem upphitunarnúmer með hljómsveitinni The Paper Kites sem er á Melbourne í Ástralíu. Það síðasta sem hann sendi frá sér er 5 laga Ep platan Youthful Hearts í fyrra. Hann á enn eftir að senda frá sér stóra plötu. Í lok þáttarins rifjum við svo upp tónleika með Eivør frá Iceland Airwaves 2009.
    0 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…