Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Jet Black Joe, Rottweiler, Unun og Kusk á Músíktilraunum
    Músíktilraunir 2023 fara fram í næstu viku. Undankvöldin 4 eru dagana 25.-28. mars og úrslit 1. apríl í Norðurljósum í Hörpu.
    Músíktilraunir hafa farið fram síðan 1982 næstum óslitið og í eina tíð voru alltaf gestahljómsveitir á Músíktilraunum og í Konsert vikunnar rifjum við upp heimsóknir hljómsveitanna Unun, Jet Black Joe og XXX Rottweiler á Músíktilraunir. Við heyrum líka brot úr þáttaröðinni Árið er sem er að fara aftur af stað hérna á Rás 2 á árinu í tilefni af 40 ára afmæli Rásar 2 í ár. Og þar að auki heyrum við í sigursveit Músíktilrauna 2022; Kusk.
    1 hr 55 min
  • Carole King í Central park 1971
    Í Konsert kvöldsins byrjum við á að fara hálfa öld aftur í tímann og hlusta á Carole King ásamt hljómsveit í Central Park. Svo heyrum við nokkur lög með Rolling Stones úr GRRR túrnum 2015 og eftir þar heyrum við aðeins í Bítlunum í Hollywood Bowl 1965 og endum svo á Led Zeppelin í London 1971.
    1 hr 58 min
  • Nina Simone í Hamborg 1988
    Í Konsert á Rás 2 í kvöld tökum við ofan fyrir Ninu Simone sem hefði orðið 90 ára núna í febrúar ef hún hefði lifað. Hún var séní. Hún kom aðeins einni plötu inn á topp 100 heima í Ameríku. Það var tónleikaplata sem náði 99. sæti listans.
    Vinsælasta lagið hennar náði 5. sæti breska vindældalistans árið 1987 - 30 árum eftir að hún tók það upp. Það var lagið My baby just cares for me. Ástæðan var sú að það var notað þá í auglýsingu fyrir Chanel no. 5 ilmvatn.
    Nina Simone er mun þekktara nafn í dag en meðan hún lifði. Það er hálfgerð synd. Nina Simone var séní. Konsert hefst kl. 22.05 og þá bjóðum við á Rás 2 upp á tónleika með henni sem NDR - þýska ríkisútvarpið í Hamborg hljóðritaði árið 1988.
    1 hr 55 min
  • Rolling Stones 1977 í Toronto
    ÍKonsert vikunnar förum við á tónleika með Rolling Stones sem fóru fram 5. mars 1977, mitt á milli platnanna Black and Blue sem kom út ?76 og Some Girls sem kom ?78.
    Dagana 4. og 5. mars spilaði Rolling Stones í 400 sæta klúbb í Toronto í Kanada undir nafninu The Cockroaches og voru auglýstir sem upphitunarnúmer fyrir lókal hljómsveitina; April Wine.
    En það voru engir Kakkalakkar sem hiðuðu upp fyrir April Wine, heldur kunnuglegir náungar frá Englandi, Rolling Stones!
    Á efnisskránni var einskonar Greatest Hits prógramm; Honky Tonk Women, Jumpin? Jack Flash og eldri slagarar eins og Route 66, Little Red Rooster ofl.
    Bandið var í fínu formi þarna; Mick Jagger, Keith Richards, Charlie Watts á trommunum, Bill Wyman á bassanum og Ron Wood á ryþmagítar. Kannski besta rokkband í heimi?
    Þessir tónleikar eru mjög sérstakir, en bara nokkrum mánuðum fyrr voru þessir strákar á spila á leikvöngum um allan alla Evrópu fyrir tugi þúsunda á kvöldi. En svo komu þeir í 5. mars 1977 á El Mocambo í Toronto í Kanada og spiluðu fyrir 400 manns.
    2 hr 1 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…