Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Airwaves 2013 úr safni Rásar 2
    Í konsert kvöldsins ætlum við að rigfja upp stemninguna eins og hún var á Airwavs fyrir áratug, árið 2013.
    Rás 2 hefur hljóðritað hundruð tónleika á hátíðinni allt frá árinu 2000 og Rás 2 mun taka upp slatta af tónleikum í ár.
    2013 tókum við upp næstum 30 hljómsveitir í Hörpu, Listasafninu og Gamla Bíó og í þættinum í kvöld fáum við brot af því besta með listafólki eins og:
    Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar
    Prins Póló
    Moses Hightower
    Omar Soyleman
    Valdimar
    Vök
    Marius Ziska
    Ásgeir Trausti
    John Grant
    Bloodgroup
    Samaris
    Sóley
    Lockerbie
    The Savages
    1 hr 55 min
  • Altin Gün og Bríet á Airwaves 2022
    Í Konsert í kvöld býður Rás 2 upp á tónleika með Bríeti og Hollensk-Tyrknesku hljómsveitinni Altin Gün frá Iceland Airwaves í fyrra. Báðir tónleikrnir fóru fram í Listasafninu.
    Hljóðblöndun: Axel Flex Árnason
    Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson
    1 hr 55 min
  • Joni Mitchell á Newport 2022
    Í Konsert í kvöld förum við á Newport folk-festival í fyrrasumar og hlustum á það sem var kynnt sem The Joni Jam ? en þegar upp var staðið voru þetta tónleikar með Joni Mitchell sjálfri og vinum hennar; Brandi Carlisle, Wynona Judd, Marcus Mumford ofl. Þau fluttu lögin hennar Joni og hún söng með og var með eins og hún gat, en þetta var í fyrsta sinn sem hún kom fram á tónleikum síðan hún fékk heilablóðfall árið 2015.
    Við heyrum líka aðeins í vinum hennar CSN&Y á tónleikum.
    2 hr 1 min
  • Todmobile og Jon Anderson í Eldborg 2013
    Í kvöld förum við á konsert með Todmobile og Jon Anderson söngvara ensku hljómsveitarinnar YES. Heyrum upptöku sem Todmobile gerði fyrir Rás 2 af tónleikum sem fóru fram í Eldborg í Hörpu 15. nóvember 2013.
    Núna er svo enn ein Todmobile-veislan framundan; 14. október verða 35 ára afmælistónleikar Todmobile í Eldborg og sérstakir gestir Todmobile á tónleikunum verða Midge Ure söngvari Ultravox, Nik Kershaw og Tony Hadley, fyrrum söngvari bresku hljómsveitarinnar Spandau Ballet, auk SinfoniaNord.
    1 hr 55 min
  • Junior Marvin & the Legendary Wailers + Hjálmar
    Í Konsert vikunnar hlustum við á Reggae. Fyrst heyrum við í Junior Marvin & the Legendary Wailers ? upptöku spænska ríkisútvarpsins frá Rototom Sunsplash Reggae Festival sem fór fram á Benicassim á Spáni í ágúst. Og svo heyrum við upptökur úr safni Rásar 2 með Hjálmum - frá Bræðslunni, Allt fram streymir í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ og Bíóhöllinni á Akranesi.
    Junior Marvin var gítarleikari í The Wailers, hljómsveit Bob Marleys frá 1977 til 1981 þegar Marley lést. Hannfæddist í Kingston á Jamaica árið 1949 en flutti með foreldrum sínum til London þegar hann var lítill strákur. Hann spilaði með Marley inn á plöturnar Exodus (1977), Kaya (1978), Survival (1979), Uprising (1980) og Confrontation sem kom út 1983.
    1 hr 55 min
  • Tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 - 1999-2009
    Í Konsert í kvöld kíkjum við aðeins í baksýnisspegilinn í tilefni af 40 ára afmæli Rásar 2 og heyrum nokkur tóndæmi úr tónleika-upptökusafni Rásar 2 sem er ansi stórt, og einbeita okkur að áratugnum 1999-2009. Þeir listamenn sem koma við sögu eru: Pálmi Gunnarsson, Valgeir Guðjónsson, Sprengjuhöllin, Grafík, Hjálmar, KK, Páll Óskar og Monika, Bubbi, Jóhann Helgason, Írafár, 200.000 Naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins ofl.
    1 hr 55 min
  • Hörður Torfa - Hausttónleikar frá 2007
    Það sem við ætlum að hlusta á í Konsert kvöld eru Hausttónleikar Harðar Torfa +i Borgarleikhúsinu frá 14. September 2007. Þetta voru hausttónleikar númer 30 og tilefnið núna er 45 ára afmæli Samtakanna 78 sem Hörður átti stóran þátt í að stofna. Kannski stærstan allra.
    1 hr 55 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…