Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Joan Baez í Gautaborg 2018
    Í Konsert í kvöld ætlum við að halda upp á stórafmæli merkar tónlistarkonu -nefnilega þjóðlagasöngkonunnar Joan Baez sem fagnaði 80 ár afmæli sínu síðasta laugardag (9. Janúar). Tónleikarnir sem við ætlum að heyra eru frá sænska Ríkisútvarpinu - teknir upp í Gautaborg 10. Mars 2018 þegar Joan Beaz var að fylgja eftir sinni nýjustu plötu sem heitir Whistle down the wind en þar flytur hún lög eftir fólk eins og Tom Waits, Josh Ritter ofl. Hún var tilnefnd til Grammy verðlauna fyrir þá plötu. Hún sagði þegar hún kom út að hún yrði jafnvel sín síðasta plata en Joan Baez er búin að vera að syngja í meira en 60 ár og gefa út meira en 30 plötur.
    Joan Baez var vígð inn í frægðarhöll rokksins í Ameríku í apríl 2017.
    1 hr 55 min
  • HEIMA 2018 og 2019
    Undanfarin sex ár hefur tónlistarhátíðin HEIMA verið haldin í Hafnarfirði síðasta vetrardag, í HEIMAhúsum í Hafnarfirði. Það er engin hátíð síðasta vetrardag í ár út af dálitlu. Það er til í dæminu að hún verði haldin síðar í sumar eða haust, en kannski verður engin HEIMAhátíð fyrr en næsta vor - síðasta vetrardag 2021. En Rás 2 hefur útvarpað frá HEIMA-hátíðinni nokkur undanfarin ár og í Konsert í kvöld ætlum við að rifja upp nokkur atriði frá Heima í fyrra og 2018. Heyrum í Mugison, Svavari Knúti og Valgeiri Guðjónssyni.
    0 min
  • Elbow í Manchester 2019 og Dungen í Svíþjóð 2015
    Í þættinum að þessu sinni förum við á tónleika með þremur flottum listamönnum og hljómsveitum. Fyrst heyrum við tónleika ensku sveitarinnar Elbow sem fóru fram í The Ritz í Manchester í október í tilefni af útgáfu nýrrar plötu frá Elbow; Giants of all Sizes. Þá förum við til Svíþjóðar og heyrum í sænsku hljómsveitinni Dungen, upptökur frá tvennum tónleikum sem fóru fram í Gautaborg og Malmö árið 2015. Að síðustu heyrum við tónleika Svavars Knúts á Aldrei fór ég Suður 2017.
    0 min
  • The Cure í Hyde Park sumarið 2018
    Það er frábær konsert sem við ætlum að hlusta á í kvöld, 40 ára afmælistónleikar ensku hljómsveitarinnar The Cure sem fóru fram í Hyde Park í London 7. júlí 2018 að viðstöddum 65.000 aðdáendum. Tónleikarnir voru hljóðritaðir og myndaðir og sýndir í vel völdum kvikmyndahúsum fyrst, 11. Júlí í sumar. Þessi merkilega hljómsveit, The Cure, var stofnuð í Crawley í Westur Sussex á Englandi árið 1978. Crawley er c.a. 45 kílómetra suður af London. Mannabreytingar hafa verið talasverðar á þessum 40 árum rúmum sem sveitin hefur verið starfandi en fastinn er alltaf foringinn í svörtu fötunum, með hvítmálaða andlitið, rauða varalitinn og túberaða hárið, söngvarinn og gítarleikarinn, laga og textasmiðurinn Robert Smith. Fyrsta platan kom 1979 - Three Imaginary Boys heitir hún, og hún ásamt fyrstu smáskífum hljómsveitarinnar staðsetti hana í post-punk og nýbylgju senunni sem fylgdi eftir breska pönkinu á sínum tíma í Bretlandi. The Cure smellpassaði þar inn. The Cure hefur átt miklum vinsældum að fagna á löngum ferli. Sveitin hefur sent frá sér 13 stúdíóplötur, heilan haug af lögum sem hafa orðið jög vinsæl og sveitin var vígð inn í frægðarhöll rokksins í fyrra. Með foringjanum Robert smith voru þetta kvöld á sviðinu í Hyde Park, á tónleikunum sem við ætlum að hlusta á núna í kvöld, bassaleikarinn Simon Gallup, hljómborðsleikarinn Roger O?Donnell, trommarinn Jason Cooper og gítarleikarinn Reeves Gabrels sem í eina tíð var hægri hönd David Bowie. Hann tók við gítarleikarastöðunni af Porl Thompson árið 2012. Robert Smith sagði eftir þetta kvöld að hann hefði ekki getað hugsað sér betri leið til að fagna 40 ára afmæli hljómsveitarinnar; Þetta var stórkostlegur dagur sem enginn okkar mun nkkurn tíma gleyma sagði hann.
    0 min
  • Radiohead í Sviss 1994
    Í seinni hluta þáttarins rifjum við upp tvær skemmtilegar heimsóknir í std. 12; KK og Föruneytið í febrúar í fyrra og svo Bubbi og Rúnar, GCD í apríl 1993, þegar önnur GCD platan, Svefnvana var að koma út. En byrjum á að heyra í Radiohead á tónleikum sem fóru fram í Lausanne í Swiss 20. Maí 1994. Tilefnið er að síðasta föstudag voru liðin 25 ár frá því að önnur plata Radiohead; The Bends, ein merkasta plata þess tíma kom út. The Bends kom Radiohead heldur betur á músík-kort heimsins. Platan fór hæst í fjórða sæti breska plötulistans en náði þó ekki alveg þá að fylgja eftir vinsældum lagsins Creep sem er á Pablo Honey og er enn sungið á söngkeppnum ungs fólks um allan heim. En platan er frábær, fékk frábæra dóma á sínum tíma og Rolling Stone setti hana í 110. sæti yfir bestu plötur allra tíma í lista sem var settur saman árið 2003. Og Radiohead hefur eiginlega síðan The Bends kom út verið í fremstu röð hljómsveita heimsins. Í tilefni af þessum tíma mótum fór EBU á stúfana, að leita að upptökum í söfnum Ríkisútvarpanna í Evrópu og útvarpið í Swiss, RTS, gróf upp upptöku frá tónleikum í Lausanne í Sviss 20. maí 1994, ári eftir að fyrsta plata sveitarinnar, Pablo Honey, kom út, og ári áður en The Bends kom út, en sveitin var þrátt fyrir það byrjuð að spila á tónleikum, lög af The Bends og við heyrum þau nokkur í Konsert í kvöld.
    0 min
  • Brittany Howard og Roisin Murphy í The Roundhouse
    Í þættinum í kvöld förum við á tónleika með tveimur tónlistarkonum af fjórum sem héldu tónleika í The Roundhouse í London fyrir viku, en útvarpsstöðin BBC 6 stóð fyrir lítilli kvenna-tónleikaröð undir yfirskriftinni Women in Music og þessar tvær tónlistarkonur eru Roisin Murphy og Brittany Howard. Brittany Howard var söngkona og gítarleikari Bandarísku hljómsveitarinnar Alabama Shakes sem sló í gegn fyrir nokkrum árum, en eftir að sveitin kláraði að fylgja eftir seinni plötu sveitarinnar; Sound and Colour, sem kom út 2015 lenti Brittanny í vandræðum. Henni leið ekki vel og hún átti gríðarlega erfitt með að búa til lög, og á endanum hélt hún fund með strákunum í bandinu, sagðist ekki vita hvað myndi gerast næst hjá sér en það væri á hreinu að hún ætlaði að gera sólóplötu. Platan sem heitir Jaime kom út síðasta haust vakti athygli um allan heim og var tilnefnd til tvennra Grammy verðlauna; Rokklag ársins og Best Rock Performance. Írska tónlistarkonan Roisin Murphy er fædd 1973 og vakti fyrst athygli uppúr 1990 sem helmingur dúósins Moloko. Hinn helmingurinn er Mark nokkur Brydon sem Roisin sagði skilið við 2005 og gaf í kjölfarið út fyrstu sólóplötuna; Ruby Blue, árið 2005. Hana gerði hún með Matthew nokkrum Herbert. Næsta plata; Overpowered, kom svo út á því herrans ári 2007. Þriðja platan kom ekki fyrr en mörgum árum seinna, eða 2015. Hún heitir Hairless Toys og var t.d. tilnefnd til Mercury verðlauna. 2016 kom svo fjórða platan; Take her up to Monto. Roisin Murphy er gríðarlega mikill listapoppari. Og þegar hún er spurð um áhrifavalda nefnir hún fólk eins og Sonic Youth (sérstaklega bassaleikarann Kim Gordon), the Pixies, Talking Heads og Grace Jones. Og þær Brittanny og Roisin stigu á svið í Hringleikhúsinu í Camden í London síðasta föstudag, The Roundhouse, í boði BBC 6 music - sem hljóðritaði tónleikana svo t.d. gætum notið þeirra hér í Konsert í kvöld.
    0 min
  • Celeste á Eurosonic og Angel Olsen á Antigel festival
    Í þættinum í kvöld förum við á tónleika með þremur mismunandi tónlistarkonum í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna sem er næsta sunnudag. Heyrum aðeins í Sinéad O?Connor á Airwaves 2011 í Fríkirkjunni, förum til Á Antigel Festival í Genf í Sviss á tónleika með bandarísku tónlistarkonunni Anglel Olsen, en við byrjum á að fara á Eurosonic Festival í Hollandi núna í janúar og heyra í söngkonunni Celeste.
    0 min
  • JFDR - Arlo Parks og Joey Quinones And Thee Sinseers á tónleikum
    Í Konsert vikunnar förum við á tónleika með þremur mismunandi listamönnum. Við byrjum á að fara á Eurosonic Festival í Hollandi núna í janúar og heyra í íslensku tónlistarkonunni JFDR og hennar fólki, sem spiluðu í Lútersku kirkjunni í Groningen á Eurosonic í ár. Þá heyrum við í bresku tónlistarkonunni Arlo Parks, líka á Eurosonic, og svo förum við til Rennes í Frakklandi á tónlistarhátíðina Trans Musicales sem fór fram í desember og heyrum í Joey Quinones And Thee Sinseers sem er Soul hljómsveit frá Los Angeles.
    0 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…