Í kvöld er fjallað um barnabók sem unnin var í samstarfi við börn á Seyðisfirði, Snorri Helgason tónlistarmaður kemur í heimsókn og segir frá splunkunýrri barnaplötu og rennt verður yfir það helsta í Krakkafréttum.
Í KrakkaVikunni er skyggnst inn í heim barnamenningar. Við fjöllum um skemmtilega viðburði og það sem er framundan hjá KrakkaRÚV og UngRÚV. Við fjöllum líka um það sem bar á góma í Krakkafréttum vikunnar, fræðumst um tækni og töfra og allt þar á milli.
Gestir:
Sonia Stefánsdóttir, forstöðumaður bókasafns Seyðisfjarðar
Ófeigur Drengsson, rithöfundur
Snorri Helgason, tónlistarmaður
Tónlist: Lög af Bland í poka með Snorra Helgasyni
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.