Í kvöld er fjallað um þrjár barnabækur eftir Tomi Ungerer sem eru nýkomnar út í íslenskri þýðingu Sverris Norland. Rætt verður við þýðandann og lesin verða brot úr bókunum. Þá er líka talað við aðstandendur barnasýningarinnar Lífið sem hefur snúið aftur í Tjarnarbíó.
Í KrakkaVikunni er skyggnst inn í heim barnamenningar. Við fjöllum um skemmtilega viðburði og það sem er framundan hjá KrakkaRÚV og UngRÚV. Við fjöllum líka um það sem bar á góma í Krakkafréttum vikunnar, fræðumst um tækni og töfra og allt þar á milli.
Gestir:
Sverrir Norland, rithöfundur og þýðandi
Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona
Sveinn Ólafur Gunnarsson, leikari
Helga Arnalds, listrænn stjórnandi
Lesari: Sigyn Blöndal
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.