Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Labbitúr:How many episodes does Labbitúr have?The podcast currently has 31 episodes available.
July 02, 2025Labbitúr: Elísabet RonaldsdóttirElísabet Ronaldsdóttir hefur unnið að sumum stærstu kvikmyndum síðari ára. Hún hefur klippt myndir á borð við John Wick, Atomic Blonde, Deadpool 2, Bullet Train og nýverið Fall Guy og Nobody 2. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún um götur Reykjavíkur með Halla og ræðir um kvikmyndagerð, fjölskyldulíf og hvernig það er að standa bak við tjöldin í Hollywood.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 27minPlay
June 25, 2025Labbitúr: MugisonÍ nýjasta þætti Labbitúrs rölta Halli og tónlistarmaðurinn Mugison saman um götur Reykjavíkur. Mugison, sem heitir réttu nafni Örn Elías Guðmundsson, segir frá óvenjulegum uppruna listamannsnafnsins síns, fyrstu skrefum í tónlist og hvernig lífið hefur tekið stakkaskiptum í gegnum árin.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 30minPlay
June 18, 2025Labbitúr: Benedikt ErlingssonBenedikt Erlingsson, leikari, leikstjóri og rithöfundur, er nýjasti gesturinn í Labbitúr með Halla. Þeir félagar röltu saman um götur miðbæjarins, í samtali sem flæddi milli listrænnar sköpunar, fjölskyldusögu, gamansemi og tilverunnar sjálfrar – í anda þáttarins þar sem hugmyndir og orð fylgja gönguskrefum.Benedikt, sem hóf feril sinn í grínþáttunum Fóstbræður árið 1997 og hefur síðan þá vakið alþjóðlega athygli fyrir kvikmyndir á borð við Hross í oss og Kona fer í stríð, lýsir ástríðu sinni fyrir frásögn sem listrænni iðju. Hann ber hana saman við tónverk þar sem allt snýst um að halda áheyrendum við efnið – með því að leika sér með væntingar og flæði.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 41minPlay
June 11, 2025Labbitúr: Gerður KristnýÍ þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín rithöfundinn Gerði Kristný. Gerður hefur verið einn afkastamesti og virtasti rithöfundur landsins undanfarin ár og gefið út ekki aðeins bækur heldur ljóð, leikrit og annað efni. Verk hennar eru kennd bæði í grunn- og framhaldsskólum og hefur hún hlotið ótal viðurkenningar innan sem utan landsteina, nú síðast Norsku Alfred Anderson-Ryssts bókmenntaverðlaunin.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 47minPlay
June 04, 2025Labbitúr: Bubbi MorthensÍ þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Hallitil sín tónlistar- og alhliðalistamanninn Ásbjörn “Bubba” Morthens. Bubbi hefur verið einn fremsti tónlistarmaður þjóðarinnar alveg frá útgáfu sinnar fyrstu plötu, Ísbjarnarblús, árið 1980. Hann hefur ekkert gefið eftir á undanförnum 45 árum enda fáir sem jafnast á við útgefinn lagafjölda og segist Bubbi enn semja eitthvað á hverjum degi.Viðtalið býður einstaka sýn í æsku og sálarlíf Bubba þar sem þeir ganga um hans æskuslóðir og rifja upp mótandi minningar fyrir tónlistarmanninn sem úr honum varð. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 29minPlay
May 28, 2025Labbitúr: Hafsteinn Gunnar SigurðssonÍ þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín leikstjórann og handritshöfundinn Hafstein Gunnar Sigurðsson. Hafsteinn hefur á undanförnum árum stimplað sig inn sem einn fremsti leikstjóri landsins með verk á borð við París Norðursins og Undir Trénu á ferilskránni ásamt því að vinna til 16 verðlauna. Samtal þeirra er mjög skemmtilegt og dregur fram krefjandi heim upprennandi kvikmyndargerðarfólks hér á landi. Eftir að ljúka námi í bókmenntafræði sótti Hafsteinn nám við Columbia í New York við kvikmyndagerð og lauk því árið 2008. Hann segir bókmenntafræðina hafa opnað á skemmtilegan heim og í raun verið góður grunnur fyrir komandi hluti.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 35minPlay
May 21, 2025Labbitúr: Lóa HjálmtýsdóttirÍ þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr Halli til sín listakonuna Lóu Hjálmtýsdóttur. Það er nánast ómögulegt að setja aðeins einn hatt á Lóu en hún er í tónlist, teiknar myndasögur, málar og margt fleira. Í þessum þætti eiga þessir vinir mjög skemmtilegt spjall sem fer um víðan völl um allt og ekkert. Þau ræða stofnun sundlaugagarða á Íslandi, breytingu á svartsýnu viðhorfi og hve lengi hún hefur verið í hljómsveitinni.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 43minPlay
May 14, 2025Labbitúr: Erpur EyvindarsonÍ nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín tónlistarmanninn Erp Eyvindarson, betur þekktan sem BlazRoca. Í þessu einlæga og skemmtilega spjalli rifja þeir upp feril Erps, áhrif hans á íslensku rappsenuna, og hvernig ferðalög og dýralíf hafa mótað lífsviðhorf hans.Erpur byrjaði snemma að feta sig inn á brautina sem hefur gert hann að einum af mikilvægustu listamönnum Íslands. Hann rifjar upp stofnun Rímnaflæðis, fyrstu keppninnar í íslensku rappi, og hvernig það þróaðist yfir í hinn goðsagnakennda hóp XXX Rottweiler hundar. Hann lýsir þessum tíma sem hrárri sprengingu sköpunar þar sem stemningin var mikil og markaður fyrir íslenskt rapp lítt þróaður.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more2h 44minPlay
May 07, 2025Labbitúr: Andri Snær MagnasonÍ nýjasta þætti Labbitúrs ræðir Halli við rithöfundinn Andra Snæ Magnason, sem hefur verið í fremstu röð íslenskra listamanna í yfir tvo áratugi. Í opinskáu samtali lýsir Andri Snær hvernig sköpunarferlið getur verið þunglamalegt, stundum nánast óbærilegt – en jafnframt gefandi og nauðsynlegt.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 55minPlay
April 30, 2025Labbitúr: KKÍ nýjasta þætti Labbitúrs fær Halli til sín einn fremsta tónlistarmann þjóðarinnar, Kristján Kristjánsson sem er mun betur þekktur undir listanafni sínu KK. Hann hefur verið virkur tónlistarútgefandi frá árinu 1991 og unnið til tveggja verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum. Þessi jarðbundni listamaður lítur ekki stórt á sjálfan sig og gerir lítið úr afrekum sínum þó hann viðurkenni að njóta þess að hvíla röddina og láta áhlustendur syngja hástöfum með lögunum sem allir þekkja.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim....more1h 15minPlay
FAQs about Labbitúr:How many episodes does Labbitúr have?The podcast currently has 31 episodes available.