Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Konungssinnar í Kísildal #1 - Frumkvöðullinn
    Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í gær.
    Frá því að hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið.
    Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar.
    Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir.
    Næstu vikurnar ætlum við að sökkva okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal.
    Í fyrsta þættinum fjöllum við um þýsk-amerísk-nýsjálenska fjárfestinn Peter Thiel, læriföður varaforsetans JD Vance og fyrsta áhrifamanninn úr Silicon Valley sem studdi við Donald Trump.
    Það efni sem við notuðum við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi:
    Textar eftir Peter Thiel:
    - Zero to One: Notes on Startups, Or How to Build the Future (2014)
    - Education of a Libertarian (2009):
    https://www.cato-unbound.org/2009/04/13/peter-thiel/education-libertarian/
    - The Straussian Moment (2007):
    https://gwern.net/doc/politics/2007-thiel.pdf
    Viðtöl við Thiel:
    - Triumph of the Counter-Elites (2024):
    https://podcastnotes.org/honestly-with-bari-weiss/peter-thiel-on-the-triumph-of-the-counter-elites-honestly-with-bari-weiss/
    - Peter Thiel is taking a break from democracy (2023):
    https://www.theatlantic.com/politics/
    archive/2023/11/peter-thiel-2024-election-politics-investing-life-views/675946/
    - The state contains violence (2023):
    https://www.youtube.com/watch?v=qh_nxwTwKrg
    Umfjallanir blaðamanna um Thiel
    - Ævisagan The Contrarian: Peter Thiel and Silicon Valley's Pursuit of Power (2019) eftir Max Chafkin.
    - Inside the New Right, Where Peter Thiel Is Placing His Biggest Bets (2022):
    https://www.vanityfair.com/news/2022/04/inside-the-new-right-where-peter-thiel-is-placing-his-biggest-bets
    55 min
  • The Damned, Fjallið, hvalasöngur, japanskar samsetningar
    Þessa dagana eru tvær ólíkar íslenskar bíómyndir í kvikmyndahúsum sem fjalla þó báðar um dauðann. Hrollvekjan The Damned eftir Þórð Pálsson og Fjallið eftir Ásthildi Kjartansdóttur. Við fáum kvikmyndagagnrýni um myndirnar frá Kolbeini Rastrick.
    Katrín Helga Ólafsdóttir er sérstök áhugakona um hvali og hvalahljóð. Í pistli segir hún frá þessum risum hafsins og það hvernig upptökur af söng hvalanna breytti afstöðu fólks til skepnanna.
    Við heyrum svo efndurflutt viðtal við Jón Helga Hólmgeirsson vöruhönnuð sem dvaldi í Kyoto að læra sérstaka trésmíðalist, japanskar samsetningar.
    55 min
  • Gljúp dramatúrgía, kynslóðarbilið
    Steinunn Knúts- Önnudóttir, doktor í sviðslistum, bauð á performatívt stefnumót við listrannsakanda í janúar í Norræna húsínu. Spurningin er: hversu lítið er nóg?
    Við förum á einhversskonar performatívt stefnumót með Steinunni og höldum áfram samtalinu um framtíð leikhússins, framtíð sviðslista. Og veltum fleiri stórum spurningum fyrir okkur, eins og: hvernig kemst maður inn í kvikuna á fólki?
    Hermann Stefánsson, rithöfundur, flytur pistil í pistlaröðinni Bíslagið. Að þessu sinni eru honum kynslóðarbil hugleikin.
    56 min
  • Í göngutúr með háhyrninginn Keikó
    Í þætti dagsins flytjum við aftur viðtal frá því í haust við Þorbjörgu Valdísi Kristjánsdóttur, einn helsta ummönnunaraðila Keikó á síðustu æviárum hans.
    Í nóvember komu út hlaðvarpsþættir sem rekja sögu Keikó, sem varð að alþjóðlegu tákni um illa meðferð á háhyrningum og hvölum almennt þegar hann lék í Hollywood myndinni Free Willy árið 1993. Þá bjó hann i skemmtigarði í Mexíkó þar sem hann naut mikilla vinsælda en bjó við þröngan kost og slæma heilsu. Sú brjálæðislega hugmynd kviknaði að láta lífið líkja eftir listinni og reyna að koma dýrinu aftur út í náttúruna, gera húsdýrið villt aftur. Framkvæmdin var gríðarlega flókin, rándýr og umdeild.
    56 min
  • Make List Great Again, ást í Kringlunni, álpappírshattur á M.I.A.
    Eitt af verkefnum forseta Bandaríkjanna er að skipa manneskju í stjórn Kennedy Center, sem er ein helsta menningarstofnun þar í landi. Það kom á óvart að Trump tilnefndi ekki manneskju úr menningargeiranum heldur sjálfan sig.
    Við kynnum okkur nýja fatalínu söngkonunnar M.I.A. en hún er farin að selja álpappírshatta.
    Á morgun er Valentínusardagur og Una Gíslrún fór í Kringluna í leit að ástföngnu fólki.
    58 min
  • Bjarki - í FYRSTA SINN í Lestinni!
    Bjarki Rúnar Sigurðarson er sá íslenski raftónlistarmaður sem hefur náð mestum vinsældum utan landsteinanna. Árið 2015 gaf hann út lagið I wanna go bang, hjá útgáfu rússnesku teknóstjörnunnar Ninu Kravitz, og sló það í gegn á klúbbum evrópu og víðar.
    Bjarki hefur verið mjög iðinn við kolann síðan þá, gefið út mikið magn af fjölbreyttri raftónlist, auk þess að gefa út tónlist annarra og skipuleggja viðburði undir merkjum bbbbbb. Í síðustu viku kom út ný plata, konsept listaverk, sem heitir A guide to a hell-thier lifestyle.
    Bjarki er gestur Lestarinnar og ræðir upphaf ferilsins, símalausan lífstíl, heilsuáhrifavalda og teknó.
    59 min
  • Aldan í Þorlákshöfn, áhrifarík umhyggja, Squid Game #2
    Áhrifarík umhyggja eða Effective Altruism á sér marga fylgismenn í Kísildalnum. En um hvað snýst þessi heimspeki sem sprettur upp úr Oxford-háskóla fyrir rúmum áratug síðan? Georg Lúðvíksson er einn þeirra sem tekur þáttí íslensku hreyfingunni.
    Við hringjum til Þorlákshafnar og rifjum upp brot úr þætti okkar frá því í haust, þar sem hafist hefur veruð handa við gerð landfyllingar sem eyðileggja mun ölduna sem er ein sú mest sörfaðasta á Íslandi.
    Brynja Hjálmsdóttir rýnir í seríu 2 af hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum, Squid Game.
    57 min
  • Kendrick á Superbowl, leikhús tapar fyrir Netflix
    Í gær tróð rapparinn Kendrick Lamar upp á einum stærsta sjónvarpsviðburði ársins, hálfleikssýningu Superbowl, úrslitaleiks ameríska fótboltans. Spenna ríkti fyrir sýningunni, hvort þetta yrði einhver pólitískur gjörningur eða hvort hann myndi dauðrota kanadíska kollega sinn Drake sem hann hefur átt í átökum við undanfarin ár. Þórdís Nadía Semichat rýnir í hálfleikssýningu Superbowl.
    Leikhús getur ekki keppt við Netflix, leikhúsið tapar því það er dýrara og leiðinlegra. Pétur Ármannsson, sviðslistamaður fer lítið í leikhús á Íslandi því það er fátt sem vekur áhuga hans þar, enda lítið hrifinn af dramatísku leikhúsi sem er það sem er mesta framboðið af í íslenskum leikhúsum. Við höldum áfram að pæla í leikhúsi og sviðslistum, og framtíð þessa listforms.
    56 min
  • Serbneskir stúdentar mótmæla, Talib Kweli, Bannað að hlæja
    Undanfarna mánuði hafa farið fram einhver stærstu mótmæli í sögu Serbíu. Þau hófust eftir að 15 manns létust í slysi á lestarstöð í Novi Sad, næststærstu borg landsins, en hafa farið að snúast um spillingu og stjórn forsetans Aleksandar Vucic. Háskólastúdentar hafa drifið mótmælin áfram með setuverkföllum, götulokunum, flautum og risastórum samlokum. Við spjöllum við Zarko Urosevic, lífeindafræðing sem starfar við Landsspítalann, en mætti á mótmælin þegar hán var heima í Serbíu í janúar.
    Hermann Stefánsson flytur okku þriðja pistilinn í pistlaröð sem hann kallar bíslagið. Að þessu sinni ákveður hann að stofna stjórnmálaflokk og flytur okkur stefnuræðu sína - og það er bannað að hlæja.
    Rappgoðsögnin Talib Kweli úr hljómsveitinni Black Star kemur fram á tónleikum í Gamla Bíó næsta fimmtudag. Davíð Roach Gunnarsson segir frá rapparanum hagyrta.
    57 min
  • Bianca Censori: músa og meistari, Iðunn Einars, erindi um and-fasisma
    Pontus Järvstad, ný-doktor í sagnfræði, segir okkur frá erindi sem hann flytur á morgun í Háskóla Íslands. Erindið fjallar um hugmyndasögu og söguspeki andfasismans og áhrif hans í nútímanum.
    Kolfinna Nikulásdóttir flytur pistil um gjörning Biöncu Censori, sem hún framkvæmdi á rauða dreglinum á Grammy verðlaunahátíðinni.
    Ein allra besta plata sem kom út á Íslandi í fyrra var platan Í hennar heimi með tónlistarkonunni Iðunni Einars. Við röltum með Iðunni um plötubúðina Lucky Records og fáum hana til að benda á plötur með nokkrum áhrifavöldum sínum.
    55 min