Listin að brenna bækur

Listin að brenna bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Listin að brenna bækur episodes

  • Glerhjálmurinn og bakarofninn
    Eftir að Sylvia Plath tók sitt eigið líf árið 1963 tók fyrrverandi eiginmaður hennar, Ted Hughes, við dánarbúinu. Hughes sá um útgáfu verka Plath en viðurkenndi síðar að hafa brennt dagbækur hennar síðustu mánuðina sem hún lifði til að forða börnum þeirra frá því að þurfa að lesa þær. Eitt af þeim verkum sem Plath var að vinna að þegar hún lést var sjálfsævisöguleg skáldsaga með vinnutitilinn Double Exposure sem Hughes fullyrti að hefði týnst einhverntíman fyrir 1970. Í sjötta þætti Listarinnar að brenna bækur verður sjónum beint að sambandi Sylviu Plath og Ted Hughes og þeim möguleika velt upp hvort að seinni skáldsögu hennar sé enn einhversstaðar að finna.
    Upplestur: Alma Mjöll Ólafsdóttir, Fríða Ísberg og Tómas Ævar Ólafsson.
    Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir og Úlfhildur Eysteinsdóttir.
    40 min
  • Leitin að Messías
    Árið 1942 var pólski rithöfundurinn og málarinn Bruno Schulz myrtur af Gestapoforingja í heimabæ sínum Drohobycz í Póllandi. Schulz er einn þekktasti rithöfundur Póllands þrátt fyrir að eftir hann liggi aðeins tvær útgefnar bækur en þegar hann lést var hann langt kominn með fyrstu skáldsögu sína, Messías, sem týndist í ringulreið seinni heimsstyrjaldarinnar. Í fimmta þætti Listarinnar að brenna bækur verður fjallað um leitina að hinni týndu skáldsögu Bruno Schulz.
    Upplestur: Kristján Guðjónsson.
    Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir og Úlfhildur Eysteinsdóttir.
    40 min
  • Aska æviminninganna
    Þann 19. apríl árið 1824 lést Byron lávarður úr hitasótt í bænum Missolonghi í Grikklandi aðeins 36 ára að aldri. Tæpum mánuði síðar komu sex manns saman á skrifstofu útgefanda hans við Albemarlestræti í Lundúnum og brenndu endurminningar lávarðarins. Í fjórða þætti Listarinnar að brenna bækur verður fjallað um skáldið og manninn sem kallaður var „brjálaður, spilltur og hættulegur að kynnast“ og reynt að púsla saman atburðarásinni sem leiddi til þess að endurminningar hans urðu að ösku.
    Upplestur: Alma Mjöll Ólafsdóttir, Ari Freyr Ísfeld Óskarsson, Guðni Tómasson og Kristján Guðjónsson.
    Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir og Úlfhildur Eysteinsdóttir.
    40 min
  • Eldur í Kaupinhafn
    Bruninn mikli í Kaupmannahöfn árið 1728, þegar stór hluti handrita og bóka Árna Magnússonar urðu eldi að bráð, er sennilega þekktasti bókabruni sem íslenskar bækur hafa átt aðkomu að. Atburðurinn (sem var gerður ódauðlegur í Íslandsklukku Halldórs Laxness) hafði mikil áhrif á líf Árna sem lést rúmu ári eftir brunann. Haft var eftir Árna þegar honum var ljóst að ekki yrði unnt að bjarga fleiri bókum: „Þarna eru þær bækur sem aldrei og hvergi fást slíkar til dómadags.“ Í þriðja þætti Listarinnar að brenna bækur verður fjallað um tildrög og afleiðingar eldsvoðans og þau rit sem glötuðust í brunanum.
    Upplestur: Guðni Tómasson, Jóhannes Ólafsson og Kristján Guðjónsson.
    Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir og Úlfhildur Eysteinsdóttir.
    40 min
  • Bókabrennur keisarans
    Nokkrum árum eftir að Qin Shi Huangdi sameinaði kínversku konungsríkin í eitt keisaraveldi skar keisarinn upp herör gegn bókmenntum í landinu og lét brenna öll þau rit er samræmdust ekki hinni opinberu hugmyndafræði Qinveldisins. Í kjölfarið upphófst tímabil fordæmalausrar menningarhreinsunar þar sem 460 fræðimenn voru grafnir lifandi og gífurlegur fjöldi verka sem tilheyrðu fræðastefnum hinna hundrað heimspekiskóla glötuðust fyrir fullt og allt. Í öðrum þætti Listarinnar að brenna bækur verður sjónum beint að bókabrennum fyrsta keisara Kína og velt vöngum yfir því hvort þær hafi verið jafn afdrikaríkar og sumir vilja meina.
    Upplestur: Alma Mjöll Ólafsdóttir, Guðni Tómasson, Jóhannes Ólafsson og Kristján Guðjónsson.
    Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir.
    40 min
  • Hversu oft er hægt að brenna bókasafn?
    Bókasafnið í Alexandríu var stærsta og mikilfenglegasta bókasafn fornaldar og hýsti uppsafnaða þekkingu hins forn-gríska menningarheims um nokkurra alda skeið. Skáld og fræðimenn frá öllum ríkjum miðjarðarhafs ferðuðust til Alexandríu til þess að stunda fræðistörf í bókasafninu og notfæra sér hinn umfangsmikla safnkost sem taldi á bilinu tvö til sjö hundruð þúsund bækur. Í fyrsta þætti Listarinnar að brenna bækur verður saga Bókasafnsins í Alexandríu rakin og reynt að varpa ljósi á dularfull og tragísk örlög þess.
    Upplestur: Alma Mjöll Ólafsdóttir og Guðni Tómasson.
    Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir.
    40 min

About Listin að brenna bækur

From the publisher's feed

Útvarpsþáttaröð í sex hlutum sem kannar heillandi og dularfulla sögu týndra og glataðra bóka. Farið verður með hlustendur í ferðalag um bókmenntaheiminn allt frá 4. öld fyrir Krist til dagsins í dag og rakin verður saga sex atburða sem urðu til þess að þekkt verk glötuðust úr bókmenntasögunni fyrir fullt og allt.