
Sign up to save your podcasts
Or


Dagurinn sem sérsveitin mætti fyrir utan, átta ára feik fullnægingarkeppni er komin á TikTok, maður dreyfir mannaskít daglega í 2 ár um borgina, Ernu dreymdi kakkalakka og fékk dramaráðningu, við fórum yfir nokkur merki um ömurlegt efni í eiginmann, nammi og heimsóknir eru ekki leyfilegar til leikmanna landsliða, við ræddum mýtur um konur, Brynjar Már fékk að velja sér sögu, samt ekki, við fórum yfir þau atriði sem pör rífast helst um, prump og rop komu við sögu og Erna Dís pissaði á sig við eldamennsku.
Dagurinn sem Erna Dís mætti með leynigest og setti Brynjar Már í "Movie Quiz", fólk í svörtum bílum er stressaðast í umferðinni, við fórum yfir hvað á alls ekki að segja í sambandsslitum, skrækir lávaxnir menn halda síður framhjá, Adele eyddi tæplega 3 miljónum í gjöf fyrir nýjan kærasta, frumleg stefnumót, Klara úr Nylon gaf út nýtt lag og var á línunni og að troða sér í þurrkara er ekki góð hugmynd.
Dagurinn sem Eva Laufey & Jói Ásbjörns tókust á í Svaraðu strax, við fundum út hvaða týpur af karlmönnum halda framhjá, stunur draga úr sársauka, við komumst að algengum lygum sem karlmenn segja við konurnar sínar, pabbi hennar Ernu fór óvart í bikiní-buxum í sund, Sigga Kling stappaði í okkur stálinu, Brynjar Már sagði okkur frá skotheldum sambandsráðum og við kynntumst úber-lúb.
Dagurinn sem við kynntumst fjölkærni hjá Lísu, það er gott að nota hunda og börn til að kynnast single fólki, fyndinn gaur bar upp bónorð fyrir vin sinn á fyrsta deiti, Hann og Siggi kepptu í Veistu svarið, fyrsta karlkyns kynlífsdúkkan er komin á markað, Justin Bieber hannar Crocs skó, fertugar konur gefa kynlífsráð, eiginmaður fann upp frumlegar leiðir til að fá konuna sína til að tala við sig, við hlógum eins og tígrisdýr í hláturs-jóga og kona vildi láta dáleiða manninn sinn svo hann yrði vegan.
Dagurinn sem við kynntumst Tantra og dýpri nánd, Jón í Une Misere kom í Betri stofuna og tók Hlið við hlið með Frikka Dór, 10 sekúndur af ástríðufullum kossi gefa þér milljónir sýkla, Indverskur maður gleypti tannburstan sinn, menn vita þegar konur daðra, eða hvað?, Bandarískar konur fá frían dildo fyrir að kjósa, Pizza fyrirtæki bíður upp á falleg orð með Pizza pöntuninni, Brynjar Már hélt að hann væri að verða lasinn og Robbie Williams skeit í lófann á sér.
Dagurinn sem Björn Bragi sagði okkur allt um Kviss, við opnuðum Gullkistuna og hringdum í Kalla Bjarna, konur myndast betur en karlar, við fórum yfir veðró með Brynjó, það eru 25 ár síðan Mariah Carey var á toppnum, maður á ekki að hanga á gömlum mistökum, það er logið meira að myndarlegu fólki, við gáfum Cintamani úlpu að eigin vali, við fórum yfir fatnað sem kveikir í karlmönnum, eyrnagælur virka vel á hunda og konur, gift fólk gefur hjónaráð og Brynjar Már veit ekkert um bíómyndir.
Dagurinn sem heyrðum í KarenXO, sem er íslensk stelpa á Only Fans, Ernuland og Hjálmar Örn keppa í Svaraðu strax, ljót Tripadvisor gagnrýni gætu komið manni í fanglesi, vændiskona sem mætti á staðinn er mamma vinar, Kirkjó og Stykkjó eru í góðum málum, við fórum yfir góð ráð á fyrsta deiti til að innsigla annað deit, hlutir sem karlmenn yfir fertugt eiga alls ekki að klæðast, Ívar Guðmunds gefur okkur húsráð, Taylor Swift slær metið sem Whitney Houston átti og James Blunt er fyndinn gaur...
Dagurinn sem við spurðum heimskulegra spurninga, við komumst að því að þeir sem eru með mörg tattú, eru líklegri til þess að hafa átt marga bólfélaga, við eyðum 6 mánuðum af lífinu í að bíða á rauðu ljósi, Erna rokkaði kórónuveiru prófið, við heyrðum í Ingó, Brynjar Már ruglaði saman Meg Ryan og Drew Barrymore, 14% af fólki grætur í vinnunni, Ítölsk Covid Rómeó & Júlía trúlofa sig, við spurðum heimskulegra spurninga eins og hafa mörgæsir hné?, Brynjar Már er Mrs. Heckles úr Friends, Erna vinnur sand af seðlum á vitlausar happatölur og hrotur eru óþolandi...
Dagurinn sem Fanney stjörnuspekingur kom í heimsókn og las okkur eins og opna bók, notaðir smokkar voru seldir aftur í Víetnam, Pétur Jesú kom og tók Elísabetu Ormslev í Betri stofunni, við fórum fyrir viðvörunarmerki á stefnumóti, besta verðrið verður á Kirkjó, verstu og frægustu söngvararnir voru teknir fyrir, Selena Gomez er búin að fatta það sem Brynjar Már hefur sagt í langan tíma og Omnom ís opnar um helgina...
Dagurinn sem Brynjar Már þarf ekki hnetusmjör til að verða góður í rúminu, fullur strákur í flugvél beit eyrað af vini sínum, 86 ára gamall maður fær ekki endurgreitt frá stefnumótasíðu þó hann sé með vottorð, við fórum í saumana á öllum mismunandi kynjunum með samtökunum 78, kona reyndi að láta stúta hjásvæfu, Anna Svava sagði okkur allt frá Eurogarðinum, Erna Dís fór á Beyonce dansnámskeið til að læra að "twerka" og kona fékk sér höfrungatattú á pjölluna...
From the publisher's feed