
Sign up to save your podcasts
Or


Dagurinn sem Brynjar Már fékk ADHD greiningu í beinni, Ellen er ennþá í hundakofanum og allir að skíta upp á bak, Stjörnuspá var tekin of alvarlega, barn tekur jafn margar armbeygjur og Erna pissar á ári, Einar Bárða og Ásgeir Kolbeins keppa í Svaraðu strax og Einar tók svaðalega tæklingu, ólöglegir innflytjendur lenda á nektarströnd, #3030 áskorunin var tekin fyrir og Magasín lofar kannski upp í ermina á sér, er Kylie búin að vera?, bíll sem var færður einn og hálfan meter endaði með 18 mánaðar skilorði og sviptingu og Gwen Stefani kenndi okkur að stafa Bananas!
Dagurinn sem við uppgötvuðum GTA og hvað það er gaman að vera krimmi, Brynjar Már vill fá eitthvað óvænt þegar hann opnar klósettið, Krummi fékk 9.5 í hundaprófinu, Ingó var á línunni og sagði okkur hverjir verða næstu gestir hjá honum á Stöð2, Ellen er komin aftur á skjáinn, Omnomm súkkulaðið slær í gegn, reglur úr æskunni, Brynjar Már fór í sleik við krumma, Vala var á línunni og ræddi Falsk off og Daniel Craig er með allt of lítinn haus.
Dagurinn sem Svala söng lag eftir pabba sinn í beinni, konur þola ekki vini mannana sinna, Erna hleypur og hlær, kona reyndi að kveikja í könguló og brenndi húsið sitt, Keith Urban og Pink gera nýtt lag, hvísl getur verið creepy, Benni og Svenni tóku syrpu með "Bó", Kanye meig á Grammy verðlaunin sín og fullur maður má ekki keyra hjólastólinn sinn í 3 mánuði...
Dagurinn sem við komumst að því hvað konur vita ekki um karlmenn, hlutir sem þú átt aldrei að segja upphátt, flestir finna framtíðarmaka 27 ára, fullorðnir bræður geta ekki hætt í prumpukeppni, við gleypum ekki köngulær í svefni og Brynjar Már og Erna Dís þola ekki rúsínur.
Dagurinn sem Björn Bragi og Eva Ruza tókust á í Svaraðu strax, Paris Hilton skipti um rödd, randaflugur og skjaldbökur eru heyrnalausar, fleiri karlmenn en kvenmenn ganga um án nærbuxna og miklu fleira...
Dagurinn sem Erna Dís sendi íslenskri stjörnu aðdáendabréf, Brynjar Már var pennavinur Michael Jackson eftirhermu, Amy Winehouse hefði orðið 37 ára í dag, kona fagnaði eins árs brúðkaupsafmæli með tréinu sem hún er gift, Brynjar Már lifir til 86.5 ára samkvæmt nýju appi og allt annað sem skiptir öllu og engu máli...
Dagurinn sem Ágústa Eva og Gunni komu í heimsókn, strákar slúðra meira en stelpur, það er erfiðara að hlera símtal en samtal, 16 ára eyrnamergur var loksins fjarlægður, Ellen snýr aftur, Billy Eilish fær sér Ukalele og miklu fleira skemmtilegt!
Dagurinn sem við fundum pabba til leigu, brjóstahaldari bjargaði mannslífi, átak er betra með öðrum, kokkar missa um 25% af hráefni í gólfið, en elda það samt, það er betra að nudda en klóra og Lily Allen giftist Hopper úr Stranger Things og miklu fleira...
Dagurinn sem sigur í Fantasy Football kemur í staðinn fyrir kynlíf, Svali rústar Ernu Dís í Svaraðu Strax, Brynjar Már skoðar herraklippingu á pylsunni, kona býður upp á kynlífsráðgjöf með því að skoða myndir af pylsunni og Ellen er líka leiðinleg við húshjálpina sína...
Dagurinn sem við komumst að því að við leysum betur þrautir undir áhrifum áfengis, það var gæji sem setti punghár í matinn sinn, Crocks skór björguðu manni frá dauðsfalli og allt úr heimi stjarnanna....
From the publisher's feed