
Sign up to save your podcasts
Or


Það er kaldur snjódagur í Málholti og vinirnir Döggvi, Túla og Máni eru úti að leika sér. Þau gera saman pínulitla snjókarla sem Döggvi vill alls ekki skilja eftir úti þar sem hann vill ekki að hann bráðni.
Þessi saga fjallar um furðuveruna Ævisól og hreindýrið sem hún fann upp á þakinu sínu eitt desember kvöld.
Ef þú vilt heyra hvernig sagan fer, hlustaðu þá hér
Vissir þú að jólasveinarnir eiga risastórt gæludýr sem er á stærð við kálf?....
Í þessari bráðskemmtilegu sögu, komumst við að því hvernig jólasveinarnir höguðu sér í gamla daga þegar þeir voru stríðnir og hrekkjaóttir, komumst að því hvar þeir eiga að heima og hverjir foreldrar þeirra eru.
Þessi saga fjallar um lítinn ref sem heitir Nói. Hann býr á skógarjaðrinum, rétt fyrir utan litla bæinn Draumavík. Á hverju kvöldi kemur draumalestin úr bænum og sækir öll skógardýrin áður en þau fara að sofa. Hún fer síðan með þau í notalegt ferðalag inn í draumalandið.
Þetta er umferðarsaga sem fjallar um Mörtu og vini hennar og hvernig þau læra mikilvægt er að fara varlega í umferðinni, vera sýnileg og velja aðeins örugga staði til að leika sér á.
Tína og jólaálfurinn❤️
Sagan fjallar um Tínu, litla furðuveru sem sagði skilið við snuðið sitt — með hjálp frá sérstökum jólaálf sem elskar að safna þeim.
Lára litla hittir silfurlitaða kónguló , hana Viðju, sem býður henni á töfrandi haustveislu á þakinu.
Í veislunni sér hún margt og mikið af unaðslegum og ótrúlegum hlutum. 🕷️
Þessi saga fjallar um fyndið og skemmtilegt hrekkjavökukvöld hjá Döggva og Túlu.
Þau klæða sig upp í búninga og ganga á milli húsa til að safna nammi.
Á leiðinni hitta þau vin sinn Mána og ákveða að banka á dyr draugahúss sem enginn þorir að heimsækja.
Þar hitta þau drauginn Dóra sem reynir að hræða þau…en það fór ekki eins og við mátti búast!
From the publisher's feed