Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, spjallar um mat, uppskriftir og sitthvað fleira sem tengist matargerð í Mannlega þættinum á rás 1 á föstudögum.... more
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.
April 29, 2022Hvað færðu þér þegar enginn sér?Í matarspjallinu dagsins í Mannlega þættinum veltum við fyrir okkur sakbitinni sælu, þ.e.a.s. hvað fáum við okkur að borða þegar enginn sér til. Við spurðum fólk hér í Efstaleitunu hvað væri þeirra sakbitna sæla og ræðum það svo með Sigurlaugu Margréti, besta vini bragðlaukanna. Það er óhætt að segja að það eru áhugaverðir hlutir sem fólk fær sér í kvöldmat þegar enginn sér....more17minPlay
April 22, 2022Matarspjall með Halldóri GylfasyniHalldór Gylfason, föstudagsgestur Mannlega þáttarins, sat áfram með okkur í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti, besta vini bragðlaukanna. Þar sagði Halldór frá sínum uppáhaldsmat, hvernig maður ber sig að við hlaðborð, hvað var í matinn á hans æskuheimili og hvað hann eldar helst....more16minPlay
April 13, 2022Matarspjall um páskalamb og rósmarínÞar sem það er síðasti virki dagurinn fyrir páska í dag, einskonar föstudagur, þá fengum við Sigurlaugu Margréti, besta vin bragðlaukanna, til þess að koma í matarspjall í dag í Mannlega þættinum. Þar ræddum við um páskamat og aðallega páskalambið. En einnig kom við sögu föstudagurinn langi og rósmarín....more17minPlay
April 08, 2022Hallveig Rúnarsdóttir og andalæri í dósHallveig Rúnarsdóttir föstudagsgestur Mannlega þáttarins sat áfram með okkur Sigurlaugu Margréti í Matarspjallinu í dag. Hallveig sagði frá einum af sínum uppáhaldsréttum, confit de canard, eða andalæri elduð upp úr eigin fitu á franska vísu. en þau er hægt að fá víða í verslunum í dag í stórum niðursuðudósum....more11minPlay
April 01, 2022BrauðsúpuspjallÍ matarspjallinu í Mannlega þættinum í dag töluðum við um brauðsúpu. Ekki eru allir jafn spenntir fyrir henni, sum okkar elska hana á meðan önnur... jah ekki jafn mikið....more11minPlay
March 25, 2022Smáréttir í matarspjallinuÞó að rigni, þó að blási, ég skemmti mér...segir í textanum góða. Við viljum trúa því, a.m.k. að nú sé mesti snjórinn farinn a.m.k. hér syðra og þótt hann sé kannski ekki að hopa annars staðar á landinu, þá getur maður alveg dregið fyrir og látið eins og vorið sé að koma. Hið innra a.m.k. Í matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum töluðum við um smárétti sem sniðugt er að hafa með t.d. freyðivíni, sem forrétti eða við hvaða tilefni sem er....more55minPlay
March 18, 2022Létt sumarsalat eða matarmikið salat?Í matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum þá ætluðum við að ræða létt sumarsalöt, en við vorum kannski komin aðeins á undan okkur, eða aðeins á undan veðrinu öllu heldur, af því að við erum raunsæisfólk og það þarf ekki annað en að líta út um gluggann til að sjá að það er ekki komið sumar, þannig að við ræddum líka matarmikil salöt og fleira....more54minPlay
March 11, 2022Matarspjallið - smásteik, ekki salatÍ matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum ræddum við um hvernig hugmyndin um salat í matinn, vék fyrir hugmyndinni um smásteik í matinn og allt hefur þetta með blessað veðrið að gera. Ragnheiður Thorsteinsson, sérfræðingur í smásteik kom í heimsókn....more11minPlay
March 04, 2022Úkraínskt matarspjall með Alberti EiríksÍ matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum fengum við Sigurlaug Margrét, besti vinur bragðlaukanna, Albert Eiríksson, besta vin besta vinar bragðlaukanna en hann hefur undanfarna viku verið að deila uppskriftum að úkraínskum réttum á facebook og á síðunni sinni www.alberteldar.is. Við fengum að vita hvaða matur og réttir eru þekktastir frá Úkraínu og hvaðan hann fékk uppskriftirnar í matarspjallinu í dag....more56minPlay
February 25, 2022Bollur og saltkjöt, túkall!Í matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum töluðum við auðvitað um bollur og saltkjöt og baunir. Við spurðum: Eru gömlu góðu bollurnar með rjóma sultu og glassúr á undanhaldi? Eru pipar og lakkrís bragðið að taka yfir og allar nýjungar í bollugerðinni og hvort eru betri, ger eða vatnsdeigsbollur? Bollur og saltkjöt, túkall!...more16minPlay
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.