Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, spjallar um mat, uppskriftir og sitthvað fleira sem tengist matargerð í Mannlega þættinum á rás 1 á föstudögum.... more
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.
February 18, 2022Matarspjall við Knút í Friðheimum um tómataÍ matarspjalli dagsins kom Knútur Rafn Ármann búfræðingur frá Hólum, en hann rekur ásamt eiginkonu sinni, Helenu Hermundardóttur garðyrkjufræðings frá Reykjum og fimm börnum sínum tómataræktina í Friðheimum í Grímsnesi. Þau heita Dóróthea, Karítas, Matthías Jens, Arnaldur og Tómas Ingi og öll taka þau virkan þátt í búskapnum. Fjölskyldan tekur líka á móti gestum, sýnir þeim hvernig tómataræktunin gengur fyrir sig og gefur þeim að smakka á afurðunum. Sem sagt tómatar í matarspjalli dagsins....more15minPlay
February 11, 2022Matarspjall um Beef BourguignonÍ Matarspjallinu í Mannlega þættinum í dag töluðum við um góða rétti í potti og þá aðallega Beef Bourguignon, sem er tilvalið að elda á köldum febrúardögum. Hægeldun í góðum potti jafnvel með góðum, stórskornum, seigum bitum af kjöti....more14minPlay
February 04, 2022Matarspjall á Kaffi Ilmi á AkureyriMatarspjall dagsins í Mannlega þættimm var norður á Akureyri í dag. Við veltum fyrir okkur þjóðlegum og norðlenskum bakstri með tveimur kjarnakonum sem hafa rekið Kaffi Ilm á Akureyri undanfarin 10 ár en kaffihúsið er lokað yfir vetrartímann. Þær Þórhildur Þórhallsdóttir og Ingibjörg Baldursdóttir opnuðu þó dyrnar í dag fyrir útsendara Mannlega þáttarins því við fengum að kynnast sögu þessa gamla húss sem stendur svo tignarlega gult í skátagilinu....more19minPlay
January 28, 2022Diljá, ömmumatur og svunturnarÍ matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum var Diljá Ámundadóttir Zöega gestur Sigurlaugar Margrétar. Þar var umræðuefnið gamaldags íslenskur matur, stundum kallaður ömmumatur. Hryggur, læri, kjöt- og fiskfars, fiskibollur, svuntur, fiskverslanir og fleira....more20minPlay
January 21, 2022Karlamatur og þorramatur á bóndadaginnÍ matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum töluðum við um karlamat og þorramat, í tilefni bóndadagsins. Hvort að það sé í rauninni eitthvað sem hægt sé að kalla því nafni og hvað þá er það? Í það minnsta var það uppspretta skemmtilegra umræðna í matarspjalli dagsins....more15minPlay
January 14, 2022Matarspjall með Villa NetoSigurlaug Margrét kom svo að sjálfsögðu til okkar í dag í matarspjall dagsins. Við fengum Villa Neto, föstudagsgest Mannlega þáttarins, til að sitja áfram með okkur og ræða við okkur um mat. Þar var portúgalskur matur fyrirferðamikill, saltfiskur, kolkrabbi, djúpsteiktar sardínur, djúpsteiktur áll og kýldar kartöflur....more15minPlay
December 17, 2021Matarjólaspjall með Heru BjörkÞar sem föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag , Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, er annálaður áhugakokkur því var borðleggjandi að fá hana til að sitja áfram með okkur í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti. Hera sagði okkur frá heimsfrægri kalkúnafyllingu, sem hún nappaði frá Sigurði Flosasyni og fjölskyldu, laufabrauðsgerð og jólamatnum í hennar fjölskyldu....more15minPlay
December 10, 2021Matarspjall með Jóa Sig. - ítalskur matur og jólamaturinnÍ matarspjallinu í Mannlega þættinum í dag fékk Sigurlaug Margrét föstudagsgest þáttarins Jóhann Sigurðarson til þess að sitja áfram og tala við okkur um mat. Hann er listakokkur og bjó til dæmis í eitt ár á Ítalíu og því er ítalsku matur ofarlega í huga hans. Jóhann rifjaði upp skemmtilegar sögur tengdar mat og sagði frá jólamatnum á þeirra heimili....more14minPlay
December 03, 2021Kristín Gunnlaugs, klaustursmatur, Knorr og blúndubuxurÍ matarspjallinu í Mannlega þættinum sat Kristín Gunnlaugsdóttir, föstudagsgestur þáttarins, áfram með okkur Sigurlaugu Margréti. Þar ræddum við um matinn sem hún fékk í dvöl sinni í nunnuklaustrinu í Róm. Svo rifjuðu þær Sigurlaug upp lasagna sem Kristín eldar gjarnan, sem í grunninn kemur úr Knorrpakka og smákökur, til dæmis blúndubuxur, sem hún segir að sé nánast ómögulegt að borða snyrtilega....more14minPlay
November 26, 2021Dagur B. í matarspjallinuÍ matarspjalli dagsins, fengum við föstudagsgest Mannlega þáttarins, Dag B. Eggertsson borgarstjóra, til að sitja áfram með okkur og segja okkur frá sínum uppáhaldsmat, hvernig hann stendur sig í eldamennskunni og hvað eru hans sérréttir....more14minPlay
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.