Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, spjallar um mat, uppskriftir og sitthvað fleira sem tengist matargerð í Mannlega þættinum á rás 1 á föstudögum.... more
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.
September 10, 2021Er hægt að borða bara eina kókosbollu?Flestir Íslendingar elska kókosbollur og það gerum við auðvitað líka. Sigurlaug Margrét bauð uppá kókosbolluspjall í matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum. Þar fór hún meðal annars yfir sögu kókosbollunnar sem hófst árið 1946. Eru kókosbollur til í öðrum löndum? Eru þær betri en franska makkarónukökur? Er hægt að borða bara eina kókosbollu? Þess ber að geta að Sigurlaug Margrét borðaði að minnsta kosti þrjár bollur á meðan á matarspjalli dagsins stóð....more15minPlay
September 03, 2021Páll Ásgeir og útilegumatarspjallÍ matarspjalli dagsins ræddi Sigurlaug Margrét við Pál Ásgeir Pálsson útivistargarp um matinn á fjöllum og matinn í bakpokanum. Hvað er hægt að elda á einni gashellu? Og svo sagði hann frá hjónabandssæla, án sykurs og rabbarbarasultu sem gerði markaðinn alveg vitlausan, eins og hann orðaði það....more13minPlay
June 25, 2021Matarbækur KarolineMatarspjallið var í góðum höndum í dag enda kom Sigurlaug Margrét aftur í þáttinn eftir tveggja vikna fjarveru. Í þetta sinn fletti hún í gegnum bækurnar Karolines Kökken og Karolines Kögebog. Sigurlaug svipti hulunni af þeim leyndardómi sem í bókunum leynist í þætti dagsins....more14minPlay
June 24, 2021Færeyskt matarspjallÞað lá beint við að fá föstudagsgesti Mannlega þáttarins, þá félaga, Friðrik Ómar og Jogvan til að sitja áfram með okkur í matarspjallinu. Jogvan er mikill ástríðukokkur og kann ýmislegt fyrir sér í eldhúsinu, því fengum við hann til þess að fræða okkur um færeyskan mat í matarspjallinu í dag....more14minPlay
June 23, 2021Bröns / DögurðurMatarspjallið í Mannlega þættinum var áskorun fyrir Guðrúnu og Gunnar í dag í fjarveru Sigurlaugar Margrétar sem er komin í sumarfrí og því þurftu þau að afgreiða matarspjallið sjálf. Sá sérréttur sem Gunnar er einna stoltastur af er svokallaður bröns eða dögurður. Bröns er uppáhaldsmáltíð Gunnars, því ákvað hann að ausa úr sínum takmarkaða viskubrunni því sem honum finnst skipta máli til að sú máltíð heppnist vel....more15minPlay
June 23, 2021Bergsteinn og Lostæti með lítilli fyrirhöfnMatarspjallið var á sínum stað í Mannlega þættinum og í dag kom Sigurlaug Margrét með góðan gest með sér. Bergsteinn Sigurðsson umsjónarmaður Menningarinnar í sjónvarpinu. Hann sagði okkur frá uppáhaldsmatnum í æsku þegar hann var að alast upp á Vestfjörðum og svo kom hann með mjög skemmtilega matreiðslubók með sér, Lostæti með lítilli fyrirhöfn, sem var gefin út árið 1981 á Íslandi, en kom fyrst út áratug áður í Bretlandi. Í henni eru 336 yndislegar uppskriftir með ljósmyndir af hverjum rétti. Maður fer bókstaflega aftur í tímann við að fletta þessari bók....more19minPlay
June 23, 2021Hvernig björgum við brenndri steik?Í matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum ræddi Sigurlaug Margrét um það hvað við eigum að gera þegar steikin brennur, sósan misheppnast og gestir á leiðinni til okkar? Hvernig er hægt að bjarga slíku? Og svo fórum við yfir nokkra ódýra rétti sem hægt er að bjarga sér með svona á síðustu metrunum fyrir mánaðarmót....more13minPlay
June 23, 2021Hvað er eðla?Í matarspjalli dagsins var Eurovision þema þar sem lögð var megináherslan á ídýfur, eins og til dæmis ein útfærslan sem jafnan er kölluð því sérstaka nafni eðla. Sigurlaug Margrét hafði aldrei heyrt á eðlu minnst í þessu samhengi og létti talsvert að heyra að ekki var átt við bókstaflega og lifandi eðlu....more14minPlay
June 23, 2021Eva Laufey og skúffukakanÍ matarspjalli dagsins í Mannlega þættinum var vegur skúffukökunnar í hávegum hafður. Hvernig er besta skúffukakan, hvernig er besta kremið og hvað segir fólk um kókósmjöl? Við fengum sérstakan símagest í þáttinn sem er heldur betur rómuð fyrir bakstur, Evu Laufey Kjaran Hermannsdóttur....more14minPlay
June 23, 2021Matarspjall við Eddu BjörguÍ fjarveru Guðrúnar og Sigurlaugar lá beinast við að fá Eddu Björgu, föstudagsgest þáttarins, til að sitja áfram í matarspjallinu. Edda Björg er listakokkur, hvað finnst henni skemmtilegast að elda, hvað eru hennar sérréttir? Hvað er hennar uppáhaldsmatur? Hver er matur æsku hennar og hvar í heiminum hefur hún fengið besta matinn?...more13minPlay
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.