Menntavísindavarpið

Menntavísindavarpið

By MenntavísindavarpiðEducation
Download on the App Store

Menntavísindavarpið episodes

  • Nýir draumar um framtíð menntunar

    Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Menntavísindasvið ræðir nýja drauma um menntun framtíðar í nýjasta þætti Menntavísindavarpsins. Hann hefur unnið mikið með sjálfbærnimenntun þar sem kemur við sögu þær hörmungar sem ganga á í heiminum af margvíslegu tagi; loftslagsváin, líffræðilegur fjölbreytileiki, stríð, fátækt og gervigreind. Þá kemur að spurningunni, hvernig eigum við að skipuleggja framtíðina og þar á meðal skólakerfin í ljósi þessara áskorana?

    23 min
  • Varði nýverið doktorsrannsókn um félagslyndi ungra leikskólabarna

    Bryndís Gunnarsdóttir varði nýverið doktorsrannsókn sína, Félagslyndi ungra leikskólabarna: Rannsókn á óyrtum félagslegum samskiptum í jafningjahópnum og mætti í Menntavísindavarpið á dögunum þar sem segir frá rannsókninni, hvað kom á óvart í niðurstöðunum og hvernig þær geta nýst áfram. Í doktorsrannsókninni fjallar hún um félagslyndi (e. sociality) ungra leikskólabarna með áherslu á þátttöku þeirra og færni í samskiptum við jafningja. Sérstaklega var skoðað hvernig þau beita óyrtum aðferðum til að taka virkan þátt í jafningjahóp, móta hann í samvinnu við önnur börn og skapa tilfinningu fyrir hinu „sameiginlega við“ (e. mutual we).

    16 min
  • Að kenna myndlist sem nálgun við siðferðislega menntun

    Ingimar Ólafsson Waage, deildarforseti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands varði doktorsritgerð sína í Deild faggreinakennslu við Háskóla Íslands á dögunum. Í Menntavísindavarpinu ræðir hann doktorsverkefni sitt og ferlið að vinna doktorsritgerð. Hann ræðir jafnframt helstu niðurstöður rannsóknarinnar sem leiða í ljós mikilvægi þess að nemendum gefist tækifæri til að ígrunda listaverk og ræða hugmyndir sínar og tilfinningar í tengslum við þau og eigið líf. Við mælum með að hlustun!

    22 min
  • Hvað er hugsandi skólastofa í stærðfræði?

    Bjarnheiður Kristinsdóttir lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun á Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði ræðir í Menntavísindavarpinu um þá aðferðafræði sem er notuð í stærðfræðikennslu til að fá nemendur til að hugsa í stað þess að mata nemendur af upplýsingum. 

    25 min
  • Hver er upplifun nemenda af eigin snjallsímanotkun?

    Hver er samfélagslegur ávinningur aukinnar fræðslu um stafræna borgaravitund? Er frumvarp mennta- og barnamálaráðherra um lög sem heimila samræmdar reglur um notkun snjalltækja og samfélagsmiðla í skólum málið? Eru spurningar sem  Svava Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið og talskona stafrænnar borgaravitundar ræðir í Menntavísindavarpinu auk þess sem hún ræðir INSPECT rannsóknina þar sem hún rannsakar upplifun nemenda í 5. bekk og 9. bekk á eigin snjallsímanotkun.  

    24 min
  • Hamingjuhópurinn og verkefnið Krakkar með krökkum í Menntavísindavarpinu

    Bryndís Ingimundardóttir og Aðalheiður María Þráinsdóttir eru að ljúka meistaranámi á Menntavísindasviði og kynntu lokaverkefni sín á málþingi meistaranema í byrjun september. Bryndís er að ljúka meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræði og gerði lokaverkefnið; Hamingjuhópurinn - Áhrif jákvæðra inngripa á hamingju og einmanaleika grunnskólabarna og Aðalheiður er að ljúka meistaranámi í tómstunda- og félagsmálafræði. Lokaverkefni hennar heitir: „Mér finnst ég geta allt núna‘‘: Reynsla og sýn nemenda á verkefnið Krakkar með krökkum.  

    22 min
  • Er sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi?

    Berglind Gísladóttir, dósent á Menntavísindasvið HÍ kynnir rannsóknir sínar á Menntakviku í ár. Ein rannsóknin sem hún vinnur með Birnu Svanbjörnsdóttur, dósent við Háskólann á Akureyri, ber heitið Sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi.  En rannsóknir hafa ítrekað sýnt mikilvægi þess að kennaranám byggi á skýrri sameiginlegri sýn á hvað felst í góðri kennslu. Berglind ræðir rannsóknir sínar á kennaramenntun í Menntavísindavarpinu.  

    23 min
  • Hvers vegna er mikilvægt að rannsaka heimalestur?

    Karen Rut Gísladóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Anna Kristina Regina Söderström, doktorsnemi í þjóðfræði rannsaka um þessar mundir heimalestur. Þær telja að tryggja þurfi jafnrétti í kringum lestrarþjálfun barna, og ef lestur er settur alfarið á hendur foreldra og fjölskyldna þá er  hætta á því að börn fái mismikla þjálfun. Niðurstöður síðustu PISA rannsóknar benda til þess að það eru tengsl milli félags- og efnahagslegra aðstæðna fjölskyldna og  lesskilnings. Að þeirra mati er mikilvægt að rýna í það og skoða nánar. Tilgangur rannsóknar þeirra er að stuðla að samtali um samstarf milli skóla og  fjölskyldna í tengslum við lestrarnám og skoða reynslu foreldra af heimalestri og hvernig ólíkar aðstæður fjölskyldna endurspeglast í framkvæmd heimalesturs. 


    Hægt er að lesa meira um rannsóknina á rannsóknarsíðu Menntavísindasviðs: https://mvsrannsoknir.hi.is/rannsokn/heimalestur/

    24 min
  • Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna á Íslandi 🎧

    Hanna Ragnarsdóttir er prófessor í fjölmenningarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún kíkti í Menntavísindavarpið og ræddi meðal annars stóra rannsókna sem hún leiðir og vinnu í samstarfi við þverfaglegt teymi. Rannsóknin ber heitið ESRCI – Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og ungmenna á Íslandi þar sem aðlögun flóttabarna og -ungmenna á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi er skoðuð. 

    18 min
  • Námsrými í íslenskuverum og valferli og aðgengi nemendaráða í íslenskum grunnskólum   – ný meistaraverkefni krufin 🎧

    Í þessum þætti Menntavísindavarpsins mæta meistaranemarnir, Aníta Jasmín Finnsdóttir meistaranemi í uppeldis- og menntunarfræði og Þórunn Kristín Erlingsdóttir, meistaranemi á námsleiðinni: Menntun allra og sérkennslufræði og segja hlustendum frá meistaraverkefnum sínum sem þær kynntu á dögunum. Aníta Jasmín segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem ber heitið „Útvalin eða útilokuð: Valferli og aðgengi nemendaráða í íslenskum grunnskólum“ og Þórunn Kristín segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem heitir „Námsrými í íslenskuverum Reykjavíkurborgar“.   

    18 min

About Menntavísindavarpið

From the publisher's feed

Hvað er að gerast í menntavísindum? Markmið Menntavísindavarpsins er að kynna rannsóknir fræðafólks Menntavísindasviðs, kynnast rannsakendum og fjölbreyttum hliðum menntarannsókna.