
Sign up to save your podcasts
Or


Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði ræðir í nýjasta Menntavísindavarpi um Heilsuferðalagið – langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988. Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands auk erlendra samstarfsaðila.
Markmið rannsóknarinnar er að skoða langtímabreytingar á andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu Íslendinga fæddra árið 1988 frá unglingsárum (15 ára), for-fullorðinsárum (23 ára) til fullorðinsára (36 ára). Með því að brúa bilið á milli unglings- og fullorðinsára gefst einstakt tækifæri til að skilja hvernig andleg líðan, félagslegur stuðningur, þrek, hreyfing og svefn tengjast og móta heilsu á fullorðinsárum.
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir, aðjúnkt við Deild menntunar- og margbreytileika ræðir í nýjasta Menntavísindavarpi um doktorsrannsókn sína sem hún varði á dögunum. Heiti doktorsritgerðar Rannveigar er: Feður sem beitt hafa ofbeldi: Hindranir og möguleikar til breytinga. Niðurstöðurnar varpa m.a. ljósi á hvernig feðurnir takast á við óþægindi í frásögnum sínum af ofbeldi, föðurhlutverkinu og breytingum. Rannveig ræðir niðurstöðurnar, áskoranirnar við að rannsaka eldfim málefni og hvernig niðurstöður rannsóknarinnar geta nýst áfram.
Rannveig Björk Þorkelsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Jóna Guðrún Jónsdóttir, aðjúnkt í Deild faggreinakennslu eru leiklistarkennarar Menntavísindasviðs og öflugir rannsakendur. Rannveig Björk hefur verið leiðandi í kennslufræði leiklistar á Menntavísindasviði og hafa rannsóknir hennar og Jónu Guðrúnar snúið að bættum kennsluaðferðum í leik- og grunnskóla með aðferðum leiklistar. Hér segja þær frá þremur stórum Erasmus+ verkefnum sem þær hafa leitt; m.a. EcoDigital sem fjallar um hvernig grípa megi til aðgerða til að draga út umhverfisáhrifum stafrænnar tæknivæðingar og rannsóknarverkefni lýtur að því hvernig stuðla megi að haflæsi og sjálfbærni í skólasamfélögum.
Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði við Menntavísindasvið HÍ og Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, doktorsnemi á Menntavísindasviði ræða í Menntavísindavarpinu rannsóknina Bragðlaukaþjálfun sem Anna Sigríður bjó til og leiðir. Markmið rannsóknarinnar er að skoða matvendni barna og nota aðferð þar sem börn eru markvisst þjálfuð í að smakka og upplifa mat með öllum skynfærum sínum. Berglind leiðir hliðarrannsókn af verkefninu sem kallast „Litlu laukarnir“ þar sem hún skoðar matvendni barna og þjálfar börn á leikskólastiginu.
Sæberg Sigurðsson, aðjúnkt og doktorsnemi við Menntavísindasvið rannsakar starfsnám og er að skoða sérstaklega málaraiðn, múraraiðn og bifvélavirkjun. Í doktorsrannsókn sinni skoðar hann sveiflur í aðsókn í iðngreinar og hvað valdi því. Fyrstu niðurstöður benda til þess að efnahagssveiflur eru stærsta breytan varðandi aðsókn í tilteknar iðngreinar sem tengjast mannvirkjagreinum og fólk virðist vera að sækja í vel launuð störf.
Meistaranemarnir Áróra Huld Bjarnadóttir úr Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA. og Jóna Rún Gísladóttir úr Stjórnun menntastofnana M.Ed. kynntu meistaraverkefni sín á dögunum. Áróra segir frá verkefninu „Að berjast við dreka“: Reynsla mæðra með geðsjúkdóma af móðurhlutverkinu og Jóna Rún segir frá verkefni sínu: Áskoranir og bjargir leikskólastjóra sem starfa við ungbarnaleikskóla.
Íris Ellenberger, dósent í Deild faggreinakennslu í kennslu samfélagsgreina er jafnframt öflugur rannsakandi og hefur skoðað jaðarhópa í íslensku samfélagi og hvernig jaðarsetning og innlimun virkar. Íris hefur einnig rannsakað hinseginleika; en um þessar mundir er hún til að mynda að skoða hinseginleika í skólastarfi með sérstaka áherslu á kennara, nemendur og hinseginleika foreldra út frá ólíkum sjónarhornum. Hér ræðir hún rannsóknir sínar og bakslagið sem er að eiga sér stað í hinseginbaráttunni.
Jakob Frímann Þorsteinsson, nýdoktor í menntavísindum, aðjúnkt og kennari til margra ára í tómstunda og félagsmálafræði við Háskóla Íslands ræðir í Menntavísindavarpinu um doktorsverkefni sitt um útimenntun. Þar skoðar hann möguleika til útimenntunar á Íslandi m.a. með því að skoða reynslu og upplifanir fólks á aldrinum 20-40 ára sem hefur tekið þátt í útiferlum. Einnig ræðir hann um mikilvægi þess að fara út, hvernig skapa megi áskorandi umhverfi í kennslu og í frjálsri útiveru.
Margrét Sigmarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið hefur rannsakað og unnið mikið með foreldrafærni. Í þessu varpi ræðir hún verkefnið SPARE (Strengthening Parenting among Refugees in Europe) sem snýr að eflingu foreldrastarfs með flóttafólks í Evrópu þar sem stuðst er við PMTO – foreldrafærni aðferðina. Margrét tók nýtekið við sem formaður vísindanefndar Menntavísindasviðs og leiðtogi rannsókna á sviðinu, hér ræðir hún sýn sína á rannsóknir og hvernig megi styðja við rannsakendur á sviðinu.
Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor við Menntavísindasvið við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda leiðir rannsóknarverkefnið SKORA (Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi). Þar er líkamlegt atgervi knattspyrnustúlkna, andleg og félagsleg líðan, áhrif tíðahrings á tíðni meiðsla og brottfall stúlkna úr knattspyrnu á Íslandi skoðað. Rúna fer um víðan völl í Menntavísindavarpinu um stúlkur og knattspyrnuiðkun, talað er m.a. um að stúlkur slíti frekar krossbönd og að rannsóknir á íþróttaskóm hafa miðast við drengi.
From the publisher's feed