Menntavísindavarpið

Menntavísindavarpið

By MenntavísindavarpiðEducation
Download on the App Store

Menntavísindavarpið episodes

  • Hver eru áhrif styttingar námstíma til stúdentsprófs? – Sjónarhorn menntarannsókna

    Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor og María Jónasdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi á Menntavísindasviði eru hluti af rannsóknarhópi sem skoðað hafa áhrif styttri námstíma til stúdentsprófs í samhengi við aðrar stefnubreytingar sem gerðar hafa verið á framhaldsskólastiginu. Í þessu fimmta varpi Menntavísindavarpsins ræðum við um undirbúningstíma stúdentsprófa og hvernig framhaldsskólanemar í dag eru undirbúnir fyrir nám á háskólastigi, jafnréttissjónarmið tengd styttingu framhaldsskólans og hvernig rannsóknarniðurstöður Guðrúnar og Maríu verðar nýttar áfram samfélaginu til heilla. 

    24 min
  • Upplifun ungra kvenna af krabbameini og vettvangsstarf sem lífsnauðsynlegur hlekkur í stuðningskerfi varðandi börn – splunkuný meistaraverkefni krufin

    Í þessum þætti Menntavísindavarpsins mæta meistaranemarnir, Andrea Marel úr tómstunda- og félagsmálafræði, M.Ed. og Ebba Áslaug Kristjánsdóttir úr uppeldis- og menntunarfræði, MA og ræða meistaraverkefni sín sem þær kynntu á dögunum á málþingi meistaranema á Menntavísindasviði.

    Andrea segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem ber heitið: „Vettvangsstarf er lífsnauðsynlegur hlekkur í stuðningskerfi varðandi börn“ Sýn fagfólks á vettvangsstarf félagsmiðstöðva í Reykjavík og Ebba segir frá meistaraverkefni sínu: „Þakklát fyrir reynsluna en ekki fyrir krabbameinið“ Upplifun ungra kvenna af krabbameini og lærdómur þeirrar reynslu.

    19 min
  • Jafnvægi starfs og einkalífs ungra kvenkyns kennara í íslenskum grunnskólum á Menntakviku

    Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emeritus í kennslufræðum við Menntavísindasvið mætti í  Menntavísindavarpið og ræddi rannsóknina sem hann vann með Maríönnu Jónsdóttur Maríudóttur grunnskólakennara og Valgerði S. Bjarnadóttur lektor við Menntavísindasvið sem þau kynntu á Menntakviku og ber heitið: Jafnvægi starfs og einkalífs ungra kvenkyns kennara í íslenskum grunnskólum. Ingólfur ræddi rannsóknina, stöðu barna í íslensku skólakerfi, femíniskar rannsóknir og hvað sé á rannsóknardöfinni.  

    20 min
  • Læsi, félagakennsla og lestrarfærni barna á Menntakviku

    Lesfimipróf hafa verið gagnrýnd og áhyggjur eru uppi um að læsi og lestrarkunnáttu barna og ungmenna fari dalandi. Greint var frá því nýverið að 40 prósent nemenda í 6. bekk næðu ekki grunnviðmiði í lesfimi til að mynda.  

    Auður Soffíu- og Björgvinsdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi á Menntavísindasviði og fyrrum grunnskólakennari til margra ára mætti í Menntavísindavarpið og sagði frá niðurstöðum rannsóknar sinnar um læsi sem hún kynnir á Menntakviku og ræðir í Menntavísindavarpinu m.a. hvar við stöndum á Íslandi hvað varðar læsi, lestrarkunnáttu og hvernig megi bæta læsisfærni barna okkar. 

    24 min
  • Hnífaburður grunnskólabarna, algengi og ástæður til umræðu á Menntakviku

    Síðastliðið vor var í fyrsta sinn spurt um hnífaburð í Íslensku æskulýðsrannsókninni sem Menntavísindastofnun Menntavísindasviðs Háskóla Íslands stýrir. Rannsóknin er framkvæmd á hverju ári í grunnskólum en annað hvert ár í framhaldsskólum.

    Þær Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið og er faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs kynna niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknar á Menntakviku árlegri ráðstefnu Menntavísindasviðs sem fer fram dagana 26.-27.september.

    Menntavísindavarpið, nýtt hlaðvarp Menntavísindasviðs HÍ ræddi við Ragnýju og Kolbrúnu um aukinn vopnaburð ungmenna, Íslensku æskulýðsrannsóknina og hvernig styðja megi við börn sem finna sig ekki tilheyra.

    18 min

About Menntavísindavarpið

From the publisher's feed

Hvað er að gerast í menntavísindum? Markmið Menntavísindavarpsins er að kynna rannsóknir fræðafólks Menntavísindasviðs, kynnast rannsakendum og fjölbreyttum hliðum menntarannsókna.