
Sign up to save your podcasts
Or


Birgittu Haukdal þarf vart að kynna fyrir hlustendum Morgunbollans. Ein okkar allra skærasta stjarna frá tíma sínum með Írafár, barnabókahöfundur þar sem við fáum að kynnast ævintýrum og áskorunum Láru og fyrst og fremst ótrúlega ljúf og góð manneskja.
Morgunbollinn er í boði Pågen, Hverslun og Sjöstrand.
Andrea Magnúsdóttir er ein af okkar allra fremstu og farsælustu fatahönnuðum, hún hefur rekið verslunina og vörumerkið Andrea með frábærum árangri í áraraðir. Andrea er þar að auki gull af manneskju og ein af mínum betri vinkonum - njótum morgunbollans með henni.
Teboðið í Morgunbollanum, þessar duglegu dömur hafa haldið úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins í áraraðir. Birtu Líf og Sunnevu Einars þarf vart að kynna - áhrifavaldar, frumkvöðlar og ungar konur á uppleið.
Listakonan, ljósmyndarinn og ilmsérfræðingurinn Lilja Birgisdóttir hjá Fischersund er viðmælandi Morgunbollans. Hún hefur skapað sannkallaðan undraheim og einstaka upplifun með ilmhúsinu í Fischersundi.
Styrktaraðilar Morgunbollans eru:
Hverslun og Sjöstrand
Það hafa margir skoðanir á Gumma Kíró og því er kjörið að nýta tækifærið til að kynnast honum betur. Ljúfari mann er erfitt að finna, svo ótrúlega fær á sínu sviði og þorir að standa með sjálfum sér og fara eigin leiðir.
Styrktaraðilar Morgunbollans eru:
La Roche-Posay, Hverslun, Arna Mjólkurvörur og Sjöstrand
Lóa hefur náð ótrúlegum árangri í verslunarrekstri undanfarin ár. Ævintýrið byrjaði með Lindex og síðar bættust við Gina Tricot, Mayoral og Emil&Lina. Lóa er fyrirmyndar kona - svo ótrúlega dugleg og jákvæð.
Styrktaraðilar Morgunbollans eru Hverslun, Sjöstrand og Arna Mjólkurvöru.
Ein af okkar allra efnilegustu fatahönnuðum, Sóley Jóhannsdóttir, frumsýndi á dögunum sína fyrstu fatalínu undir eigin nafni. Hún hefur áður starfað hjá tískuhúsum eins og Paul Smith, Isabel Marant og LEMAIRE áður en hún var fastráðin hjá Louis Vuitton.
Við kynnumst henni betur í Morgunbolla dagsins.
Morgunbollinn er í boði Hverslun, Arna Mjólkurvörur og Sjöstrand.
Listræni förðurnarfræðingurinn Alexander Sig er að slá í gegn á sínu sviði. Hann segir okkur frá lífinu í London, leiðinni þangað og frá spennandi verkefnum sem hann fæst við í dag hjá stjörnumerkinu Charlotte Tilbury.
Morgunbollinn er í boði:
Hinn heillandi og krafmikla Geirlaug Þorvaldsdóttir er eigandi Hótel Holt. Þrátt fyrir að vera orðin 85 ára þá hefur hún enn ótrúlega ástríðu fyrir því sem hún gerir og er frábær fyrirmynd fyrir sterkar ungar konur.
Una Schram er ung kona á uppleið. Tónlistarkona sem hefur staðið á sviði frá því hún var lítil stelpa, lærði söng í háskólanámi í London en býr í dag í Reykjavík þar sem hún menntar sig meira, vinnur á auglýsingastofu og á RÚV samhliða því að semja tónlist, hún er algjör skvísa og frábær fyrirmynd. Njótum morgunbolla með Unu!
From the publisher's feed
Morgunbollinn er besti og mikilvægasti bolli dagsins, hlakka til að deila honum með ykkur.