Ormstungur

Ormstungur

By OrmstungurArtsBooks
Download on the App Store

Ormstungur episodes

  • x Kristín Ragna Gunnarsdóttir

    Kristín Ragna Gunnarsdóttir getur skreytt sig með mörgum höttum. Fyrst og fremst er hún sögumaður. Hefur henni tekist að  glæða norrænu goðsagnirnar með öllum sínum kynjaverum lífi og þannig kynnt þær fyrir ungum sem öldnum. Spjallið fór um víðan völl, meira að segja alla leið á Hvolsvöll.  

    Hlustið og njótið!

    36 min
  • x Benedikt Erlingsson

    Benedikt Erlingsson þarf varla að kynna fyrir landsmönnum. Leikari, leikstjóri, leikskáld, sjómaður og kartöflubóndi. Þekktastur er hann þó fyrir hlutverk sitt sem Þjóðólfur í Fóstbræðrum.

    Hann hefur sett á Íslendingasögurnar á svið og miðlað þeim til samtímafólks. Fyrst var það Ormstunga og svo Mr. Skallagrímsson. Við fórum yfir víðan völl, frá manni að nafni Mel yfir í umræður um hvort að það eigi að skrifa barnabækur um sækópata.

    Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson

    44 min
  • x Brynhildur Þórarinsdóttir
    Hinn margverðlaunaði rithöfundur Brynhildur Þórarinsdóttir hefur legið yfir Íslendingasögunum í gegnum tíðina og miðlað þeim til barna. Hún fór yfir af hverju þessar sagnir eiga erindi enn þann dag í dag, jafnt við unga sem aldna.
    29 min
  • x Vala Garðarsdóttir
    Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, kom og fræddi okkur um fornminjar og lifnaðarhætti víkingaaldar. Hvar er silfur Egils, bogi Gunnars og Grásíða? Kannski finnur þú svör við þessum spurningum í þættinum!
    44 min
  • x Ármann Jakobsson

    Ormstungur eru peð á taflborði Íslendingasagnanna en kynna til leiks kónginn til að hefja skákina. Ármann Jakobsson, prófessor í miðaldabókmenntum, tók Ormstungur í stutta kennslustund.

    Hlustið og hlýðið!

    Inn- og útgöngustef: Skálmöld - Kvaðning (fengið með leyfi)

    41 min
  • Kjalnesinga saga - Uppgjör

    Kjölurinn er gerður upp. Hjalti og Oddur ná lendingu. Með hvaða persónu sögunnar færir þú út að borða? Hvaða lag er Kjalnesinga saga. Ef þú hefur aðrar skoðanir en við endilega hentu á okkur línu á @ormstungur á helstu samfélagsmiðlum!

    Inn- og útgöngustef: Skálmöld - Kvaðning (fengið með leyfi)

    25 min
  • Kjalnesinga saga kaflar 17-18

    Rússíbaninn stöðvast. Harkalega. Búi kemur heim til Íslands og Kolfinnur tekur á móti honum. Öll kurl eru komin til grafar. Eða hvað?

    Inn- og útgöngustef: Skálmöld - Kvaðning (fengið með leyfi)

    16 min
  • Kjalnesinga saga kafli 15-16

    Úff! Þessi saga er hvergi nærri farin að slaka á. Búi hefur komist yfir taflið og heldur að hann sé búinn að leysa það verkefni sem konungur lagði fyrir hann. Bíddu hægur og haltu þér fast. Konungur leggur fyrir hann lokaþraut.

    18 min
  • Kjalnesinga saga kaflar 12-15

    Við erum stödd í Noregi. Tröllkallar og konur koma við sögu.Búi heldur í ótrúlegan leiðangur inn í fjall að sækja tafl. Minnir á Hringadróttinssögu á tímabili. Var Tolkien undir áhrifum frá Kjalnesinga sögu? Hjalti og Oddur ræða þetta allt saman.

    Inn- og útgöngustef: Skálmöld - Kvaðning (fengið með leyfi)

    26 min
  • Kjalnesinga saga kaflar 9-11

    Kolfinnur reynir að skáka Búa en myrkraverk Esju hjálpa honum enn og aftur að halda lífi. Eins og allar góðar sögur færi sagan færir sig frá Íslandi yfir Noregs þar sem undarlegir hlutir byrja að gerast.

    Inn- og útgöngustef: Skálmöld - Kvaðning (fengið með leyfi)

    23 min

About Ormstungur

From the publisher's feed

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum.

More shows like Ormstungur

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners