
Sign up to save your podcasts
Or


Kaflar 28-30 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta. Magaverkir Gísla ágerast og valda honum slæmum draumförum. Hann er þó háll sem áll og ólíklegt að Ormstungur geti nokkurn tímann fangað hann.
Kaflar 25-27 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða hugrakkari. Ekki er hann þó gæfumaður.
Kaflar 23-24 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Ormstungum hefur ekki tekist að fanga Gísla. Þá er kynntur til sögunnar 007 Íslands, útsendari Eyjólfs gráa, sjálfur Njónsar-Helgi. Gísli reynir enn að fá bróður sinn til að hjálpa sér en Þorkell hafði ekki lesið 152. kafla Njálu og skilur við bróður sinn beran að baki.
Kaflar 20-22 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og fer að finna fyrir ónotum í maganum.
Kaflar 17-19 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Nefið belgir út nasirnar og hnusar í allar áttir. Það hefur voveiflegar afleiðingar síðar meir en fyrst er Nefinu komið fyrir kattarnef. Þess á milli játar Gísli á sig morð.
Kaflar 14-16 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Þorgrímur reimar skó... já það er merkilegt! Grásíða fær að væta sig blóði í annað sinn og það í höndum manns á nærbuxunum.
Kaflar 11-13 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Allt vitlaust fyrir vestan! Vötn renna öll til Dýrafjarðar, reflar eru gefnir en ekki þegnir og að lokum er framið morð. Síðast en ekki síst mætir Nefið til leiks.
Kaflar 7-10 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Nú dregur til tíðinda. Bræður skipta búi og eftir stendur spurningin: Stendur oft illt af kvennahjali?
Kaflar 4-6 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Vestfirðir 952. Það er súld. Lönd eru keypt, fólk giftist og vinir skera sig á púls. Basic.
Kaflar 1-3 í skólaútgáfu.
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.
Eins og allar góðar sögur byrjar Gísla saga í Noregi. Nánar tiltekið í Súrnadal. Stemmningin er eins og nafn dalsins gefur til kynna - súr.
From the publisher's feed

130 Listeners

27 Listeners