
Sign up to save your podcasts
Or


Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026
Varúð! Hjalti og Oddur eru komnir til Vestfjarða. Það eru blikur á lofti. Útlaginn sjálfur er á skurðarborðinu og það súrnar í stúdíóinu um leið og krufningin hefst.
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2021 en endurhljóðblandað árið 2026.
Flosi Þorgeirsson er sagnfræðingur, tónlistarmaður og sérlegur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Flosi og félagi hans, Baldur Ragnarsson, héldu úti hlaðvarpsþáttunum Draugar Fortíðar sem var eitt vinsælasta íslenska hlaðvarp landsins. Í þáttunum fjölluðu þeir um alls kyns söguleg viðfangsefni allt frá mönnum sem skjóta sér út í geim í garðstól yfir í aðra sem festa sig í holu neðanjarðar. Það vakti athygli Ormstungna þegar Flosi og Baldur gerðu atburði Njáls sögu einstaklega lifandi fyrir hlustendum sínum og gátum við ekki annað en fengið Flosa í smá spjall. Farið var um víðan völl; sannleiksgildi sagnanna, formið sem Íslendingasögurnar eru og kennslu þeirra í skólum.
Flosi Þorgeirsson - gjörið þið svo vel!
Hinn margverðlaunaði rithöfundur Brynhildur Þórarinsdóttir hefur legið yfir Íslendingasögunum í gegnum tíðina og miðlað þeim til barna. Hún fór yfir af hverju þessar sagnir eiga erindi enn þann dag í dag, jafnt við unga sem aldna.
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
Einar Kárason er rithöfundur, ljóðskáld og sérstakur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Gerðar hafa verið kvikmyndir og leikverk eftir bókum Einars og ber þar til dæmis nefna Djöflaeyjuna. Einar er einn mesti sérfræðingur okkar í Sturlungu og hefur hann gefið út bækurnar Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld þar sem hann gefur atburðum Sturlungaaldar skáldlegan blæ.
Í spjalli okkar við Einar fórum við víða. Við leituðum af höfundi Íslendingasagnanna, ræddum um sannleiksgildi þeirra og uppáhaldssögu Einars.
Hlustið og hlýðið!
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, kom og fræddi okkur um fornminjar og lifnaðarhætti víkingaaldar. Hvar er silfur Egils, bogi Gunnars og Grásíða? Kannski finnur þú svör við þessum spurningum í þættinum!
Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.
Ormstungur eru peð á taflborði Íslendingasagnanna en kynna til leiks kónginn til að hefja skákina. Ármann Jakobsson, prófessor í miðaldabókmenntum, tók Ormstungur í stutta kennslustund.
Hlustið og hlýðið!
Gulli slær í gegn en sullur hefur myndast á fæti hans. Ekkert virðist þó geta stöðvað hann í leið sinni til heimsfrægðar. Eða hvað? Áhugaverðar umræður fara á flug um skikkjur og primaloft úlpur.
Einn gamall og góður í betri hljómgæðum!
Benedikt Erlingsson þarf varla að kynna fyrir landsmönnum. Leikari, leikstjóri, leikskáld, sjómaður og sjóbissnessmaður. Þekktastur er hann þó fyrir hlutverk sitt sem Þjóðólfur í Fóstbræðrum.
Hann hefur sett á Íslendingasögurnar á svið og miðlað þeim til samtímafólks. Fyrst var það Ormstunga og svo Mr. Skallagrímsson. Við fórum yfir víðan völl, frá manni að nafni Mel yfir í umræður um hvort að það eigi að skrifa barnabækur um sækópata.
Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Við fengum höfunda söngleiksins Ormstunga, þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson í spjall til okkar. Söngleikurinn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins um þessar mundir og er meistaraverk. Þá er vægt til orða tekið. Við ræddum að leika sér með formið sem Íslendingasögurnar eru, söngleikinn sjálfan og svo margt, margt fleira.
Nálgast má miða á Ormstungu hér:
https://leikhusid.is/syningar/ormstunga/
Hlustið og hlýðið!
Víga-Skúta mætir á klakann og hefur bara eitt í huga. Að hefna pabba gamla og nú duga engin vettlingatök, hvorki hjá honum né tungunum. Þessi hluti sögunnar hefur allt: dulargervi, leynibirgi, tilræði á tilræði ofan og mann bundinn nakinn við staur í hólma út á miðju Mývatni. Lifir hann það af? Jah, bölvaðu ekki blessaðri flugunni sagði afi en vargurinn gefur … og vargurinn tekur. Hlustið og hlýðið.
Styrktu Ormstungur:
https://www.patreon.com/c/ormstungur
From the publisher's feed

130 Listeners

27 Listeners