Poppsálin
Download on the App Store

Poppsálin episodes

  • Albert litli - Siðlaus tilraun til að rannsaka fælni (phobia)

    Í þessum þætti verður fjallað um eina frægustu (og siðlausu) rannsókn sem gerð hefur verið innan sálfræðinnar. 
    Albert litli var 11 mánaða gamall þegar atferlisfræðingurinn John B. Watson ákvað að gera tilraun á því hvort hægt væri að styðjast við kenningu rússans Ivan Palvov um klassíska skilyrðingu til að framkalla hræðsluviðbrögð eða fælni hjá barni. 
    Hver var hugmyndin bak við tilraunina? Hvað var Watson að spá? Hvað varð um Albert litla?

    Hægt er að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifandi á Patreon fyrir 5 evrur á mánuði
     https://www.patreon.com/Poppsalin

    Takk fyrir að hlusta elskurnar!

    39 min
  • Lygasýki og Tania Head fórnarlamb 9/11

    Í þessum þætti verður fjallað um sálfræðilegt fyrirbæri sem nefnist lygasýki eða pathalogical lying. Sagt verður frá einkennum, orsökum og meðferð. 
    Einnig verður sögð áhugaverð saga konu sem naumlega lifði af hryðjuverkaárásina 9/11 í New York. 

    Með því að styrkja Poppsálina um 5 evrur inni á Patreon er hægt að fá auka þátt um lygasýki þar sem fjallað er um læknaskýrslu manns sem kom inn á bráðamóttöku með sprunginn botnlanga. 

    https://www.patreon.com/Poppsalin

    37 min
  • Afneitun á meðgöngu

    Í þessum þætti verður fjallað um það þegar einstaklingar ganga í gegnum 9 mánaða meðgöngu án þess að vita af því. Þetta kallast leyni meðganga eða afneitun á meðgöngu. Farið verður í sögu konu sem upplifði það að ganga með barn í 9 mánuði án þess að vita af því og sálfræðilegar skýringar bak við slíka reynslu. 
    Á mínútu 14 kemur hlé í 30 sekúndur sem Poppsálar stjórnandinn kunni ekki að laga. Biðst velvirðingar á því

    Hægt er að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifendur á 
    https://www.patreon.com/Poppsalin

    24 min
  • Barnahneigð og barnaníð: Sálfræðilegar pælingar og rannsóknir

    Þessi þáttur er einn stór TW þáttur!! 
    Fjallað er um sálfræðilegar rannsóknir, hugmyndir og kenningar um barnahneigð og barnaníð. Fjallað er um mikilvægi þess að greina á milli þessara hugtaka og ólíkra hópa gerenda og einstaklinga. 
    Skoðað er hvað einkennir þá sem brjóta á börnum og hvað hægt sé að gera.

    Hægt er að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifandi á 
    https://www.patreon.com/Poppsalin


    47 min
  • Ofbeldi í samböndum: Kanye West, Pete Davidson og Kim Kardashian

    Í þessum þætti er fjallað um ofbeldi í samböndum, rætt er um andlegt og líkamlegt ofbeldi og ofbeldishringinn sem fólk getur upplifað. 
    Einnig munu Elva og Lilja Gísla Bachelor-sérfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi Fantasíusvítunnar ræða um áhyggjur sínar af hegðun Kanye West gagnvart Kim Kardashian og Pete Davidson. 

    Hvet ykkur eindregið til að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifendur fyrir 5 evrur á mánuði.  Áskrifendur fá aðgang að aukaefni/þáttum og þakklætis hugsanir frá mér
    https://www.patreon.com/Poppsalin

    55 min
  • Duggar fjölskyldan - Heimsfræg og stórhættuleg

    Í þessum þætti er fjallað um eina frægustu fjölskyldu Bandaríkjana, Duggar fjölskylduna. Raunveruleikaþættir um fjölskylduna hafa notið gríðarlegra vinsælda enda fjölskyldan mjög sérstök og umdeild. Í þættinum verður fjallað um mjög íhaldsamar og jafnvel hættulegar kristilegar hugmyndir fjölskyldunnar, sifjaspell og pólitík en Josh Duggar, elsti sonurinn var nýlega ákærður fyrir vörslu barnakláms. 

    Þau sem styrkja Poppsálina inni á Patreon hafa aðgang að stuttum aukaþætti um málið. 
    Hvet ykkur eindregið til að styrkja Poppsálina með því að gerast áskrifendur fyrir 5 evrur á mánuði. 
    https://www.patreon.com/Poppsalin


    53 min
  • Amy Winehouse (Allur þátturinn): Einstaka röddin, vímuefnin og sjálfsskaðinn

    Hæfileikaríka söngkonan með einstöku röddina Amy Winehouse þurfti að glíma við alls konar djöfla á sinni stuttu ævi. 

    TW:Í þættinum er fjallað um sjálfsskaða, vímuefni og andlát. 

    Þessi þáttur var gefinn út fyrir mánuði síðan fyrir styrktaraðila Poppsálarinnar en hægt er að styrkja Poppsálina um 5 evrur á mánuði:  á https://www.patreon.com/Poppsalin
    Styrktaraðilar munu reglulega fá aukaþætti eða "snemm-aðgang" að þáttum Poppsálarinnar. 


    46 min
  • Af hverju eru Íslendingar alls staðar? Valin athygli og staðfestingaskekkja

    Af hverju eru Íslendingar alls staðar? Valin athygli og staðfestingaskekkja
    Þessi þáttur er tekinn upp á Tenerife þar sem Elva sálfræðikennari veltir því fyrir sér af hverju hún nær alltaf að spotta alla Íslendinga í útlöndum. Erum við eitthvað öðruvísi en aðrir? Erum við of hávær? Klæðum við okkur spes? Erum við með eitthvað sérstakt klaka lúkk eða er þetta bara sálfræðileg hugræn skekkja? 

    Hægt er að styrkja Poppsálina og fá auka efni hér:
    https://www.patreon.com/Poppsalin

    24 min
  • Karen Carpenter: Lífshættuleg ógleðislyf og Anorexia

    Tónlistarkonan yndislega Karen Carpenter lést um aldur fram árið 1983 aðeins 32 ára að aldri. Í þessum þætti verður fjallað um tónlistarferil hennar, baráttu hennar við átröskun og misnotkun á lífshættulegu lyfi sem veldur uppköstum. 

    Ég hvet öll sem eru að glíma við slæma líkamsímynd eða erfitt samband við mat að fylgjast með gagnlegum síðum á instagram eins og:
    https://www.instagram.com/healthisnotasize/
    https://www.instagram.com/nutreleat/
    https://www.instagram.com/ernuland/

    Hægt er að styrkja Poppsálina og jafnvel fá aðgang að fleiri þáttum hér:
    https://www.patreon.com/Poppsalin

    40 min
  • Stokkhólms-heilkennið: Sálfræðileg mýta eða raunverulegt fyrirbæri?

    Árið 1973 voru fjórir grunlausir einstaklingar teknir til fanga þegar bankaræningi réðst inn í Kreditbanken í Stokkhólmi.  Gíslatakan stóð yfir í 5 daga og fóru gíslarnir að halda með bankaræningjanum í lokin og fyrirlitu lögregluna sem reyndi að bjarga þeim. Í kjölfarið af þessu kviknaði hugmyndin að sálfræðilegu fyrirbæri sem nefnist Stokkhólms-heilkenni. 
    Í þessum þætti verður fjallað um þetta sálfræðilega fyrirbæri, dæmi verða tekin og tengsl þess við eðlileg ótta- og sjálfsbjargarviðbrögð manneskjunnar könnuð. 

    Hægt er að styrkja Poppsálina og jafnvel fá aðgang að fleiri þáttum hér:
    https://www.patreon.com/Poppsalin

    51 min

About Poppsálin

From the publisher's feed

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan…