Poppsálin
Download on the App Store

Poppsálin episodes

  • Havana syndrome - Hljóðvopn eða hystería?

    Árið 2016 fóru bandarískir sendiráðsmenn á Kúbu að finna fyrir sérkennilegum einkennum. Þeir heyrðu mjög óþægilegt hljóð og upplifðu heilaþrýsting, svima, ógleði, minnisleysi og jafnvel einkenni heilahristings í kjölfarið. Talið er að um einhvers konar hljóðvopnaárás gegn Bandaríkjunum hafi verið um að ræða. 
    Nýlega fóru aðilar að finna fyrir svipuðum einkennum í Vín og Berlín. 
    Er nýr vopnahernaður í gangi eða getur verið að eitthvað annað sé að valda þessum skrýtnu einkennum?
    Poppsálin skoðar málið með sálfræðina að vopni ;)

    Hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    57 min
  • Stafræn áhorfendahrif (Digital Bystander effect) - Af hverju tökum við mynd í stað þess að hringja eftir aðstoð?

    Í október nauðgaði maður konu í lest í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Hópum farþega varð vitni að árásinni en gerði ekkert, nema taka ódæðið upp á myndband. Árið 1964 var Kitty Genovisi drepin á göngu sinni heim úr vinnu. Hópur fólks stóð og horfði á. Enginn greip inní eða hringdi á lögreglu fyrr en það var orðið of seint. 
    Í þessum þætti verður fjallað um sálfræðilegt fyrirbæri sem nefnist áhorfendahrif eða Bystander effect. Rannsóknir og pælingar í tengslum við það verða viðraðar og fjallað verður  um nýrri útgáfu af þessu sem nefnist digital Bystander effect, þegar við tökum atvikin upp á myndbönd í stað þess að grípa inn í. 

    Minni á að hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    32 min
  • Britney Spears - Frelsi í augsýn?

    Í þessum þætti fara Fjóla og Elva Britney nördar yfir stöðu mála hjá söngkonunni. Margt hefur gerst á undanförnum mánuðum og frelsi mögulega í augsýn. 
    Elva og Fjóla ræða nýjustu vendingar í málaferlum Britney, brottrekstur föður hennar og möguleg málaferli gegn honum. 

    Endilega styrkið Poppsálina með kaffibolla:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin
    Einnig kann Poppsálin að meta öll "læk" og "follow" :)



    31 min
  • Varanleiki tilfinninga: Höfnun, óöryggi og ólík ástartungumál

    Þessi þáttur af Poppsálinni er heldur óhefðbundinn þar sem hann fjallar aðallega um áhugaverða hugmynd innan sálfræðinnar. Hugmyndin um varanleika tilfinninga og það að  upplifa að tilfinningar séu hverfular  er tengt við höfnun, óöryggi í samböndum og lítið sjálfstraust. 


    Hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla :)
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin


    41 min
  • Varg Vikernes: Black metal tónlist og djöfladýrkun

    Í kringum 1990  var kirkjubrennu faraldur í gangi í Noregi. Kirkjubrunarnir voru tengdir við djölfadýrkun og black metal tónlist. 
    Í þessum þætti verður fjallað um black metal hljómsveitina Mayhem og sérstaklega óhugnanlega sögu  Varg Vikernes, bassaleikara hljómsveitarinnar. 

    35 min
  • Rofinn persónuleiki: Geðröskun eða athyglissýki?

    Í þessum þætti verður fjallað um nokkuð sérkennilega en sjaldgæfa geðröskun sem nefnist Rofinn persónuleiki. Fjallað verður um helstu einkenni og orsakir. Tengsl við áföll og misnotkun úr æsku verða gerð skil. 
    Rætt verður um þá staðreynd að röskunin hefur verið mjög umdeild og margir telja sálfræðinga og geðlækna hreinleg geta ýtt undir þróun röskunarinnar með rangri meðferð. Einnig verða dæmi úr kvikmyndum og bókum skoðuð. 


    Hægt að styrkja Poppsálina hér:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin


    1 hr 1 min
  • Demi Lovato: Dansað við dauðann

    Í þessum þætti er fjallað um nokkur viðkvæm málefni. 
    Sagt er frá reynslu og erfiðleikum söngsnillingsins Demi  Lovato. Rætt er um einelti, áföll, átraskanir, nauðganir, vímuefnaneyslu og nóttina þar sem Demi fannst nær dauða en lífi eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af lyfjum. 

    Hægt er að styrkja Poppsálina með kaffibolla hér:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    Endilega followið og lækið Poppsálina.  Mér líður vel í hjartanu þegar ég sé það. 

    41 min
  • Covid-19: Mótmælendur bólusetninga, samsæriskenningar og Dunning-Kruger áhrifin

    Í þessum þætti má heyra almennt rant og pælingar um mótmælendur bólusetninga, Covid - 19 samsæriskenningar og tengsl við fyrirbæri innan sálfræðinnar sem nefnist Dunning-Kruger áhrif.
    Þessi þáttur er með þeim verri. Sorry. En hljóðgæðin ágæt. Það er eitthvað ;)

    Hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér:
    Poppsalin (buymeacoffee.com)

    52 min
  • Simone Biles: Fimleikadrottning í hættulegum snúningi

    Í þessum þætti verður fjallað um fimleikadrottninguna Simone Biles. Farið verður í áföll í æsku,  erfiðleikana á Ólympíuleikunum í sumar, hættulega snúninga eða The Twisties, andlega heilsu og kynferðislega misnotkun af hálfu landsliðs læknisins Larry Nassar 

    46 min
  • Vísindakirkjan - Tom Cruise, geimverur og útskúfun

    Í þessum þætti er farið í hugmyndir Vísindakirkjunnar. Skoðað verður hvernig kirkjan lokkar til sín nýja meðlimi og nýtir fræga einstaklinga til þess. 
    Tengsl kirkjunnar við fræga verður rædd og sérstaklega staða Tom Cruise. 
    Útskúfun, stór sérkennileg heimsmynd, fjárkúgun, lygalegir lygamælar ofl ofl 

    1 hr 6 min

About Poppsálin

From the publisher's feed

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan…