
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti er fjallað um ástarsögu Ross og Rachel úr Friends. Farið verður í þær sögusagnir sem hafa verið á sveimi um að leikararnir Jennifer Aniston og David Schwimmer sem léku Rachel og Ross séu að stinga saman nefjum.
Sálfræðin bak við það að leikarar séu líklegri en aðrar stéttir til að hefja ástarsambönd við samstarfsfélaga sína verður skoðuð sem og líffræðin bak við nálægð, nánd og kossa.
Hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér:
https://www.buymeacoffee.com/poppsalin
Í þessum fyrsta þætti af annarri seríu Poppsálarinnar er farið ansi ítarlega í áráttu og þráhyggju eða OCD, einkenni, reynslusögur og orsakir. Skoðað verður tengslin við söfnunaráráttu eða hoarding.
Einnig verður reynsla leikarans Leonardo Dicaprio af OCD reifuð og rætt um leik hans í myndinni The Aviator þar sem hann leyfði röskuninni að magnast upp til að geta leikið hlutverkið betur.
Í þessum lokaþætti fyrstu seríu er fjallað um aðdáun okkar á frægu fólki.
Elva segir frá kynnum sínum af fyrrverandi kærustu Kurt Cobain.
Einnig er fjallað um það af hverju við höfum áhuga á frægu fólki og af hverju unglingsárin eru sérstök í því samhengi?
Hvað er Halo effect eða geislabaugsáhrif? Hvað eru frumhrif og kunnugleikaáhrif? Af hverju eru hjón oft lík? Af hverju kaupum við rándýru skóna hans Kayne West og klæðumst slitnum, skítugum peysum líkt og Kurt Cobain? Og ef þú hlustar til enda þá muntu heyra Elvu byrja að ranta og koma með ógeðslega óviðeigandi dæmi um frumhrif og stjórnmálamenn
Í þessum þætti er fjallað um söngkonuna Björk og eltihrellinn Lopez, sem var með þráhyggju fyrir henni. Einnig er farið í ýmsa flokka stalkera eða eltihrella, einkenni, hegðun, áhættuþætti og normalíseringu ástar-eltihrella-hegðunar.
Mjög áhugavert allt saman :)
Hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla:
https://www.buymeacoffee.com/poppsalin
Í þessum þætti er fjallað um undarlegt mannshvarf. Þann 1. febrúar 1995 hvar gítarleikari Manic Street Preachers, Richey Edwards.
Margt bendir til þess að hann hafi tekið sitt eigið líf en sérkennileg atburðarás bendir þó einnig til þess að hann hafi mögulega horfið sjálfviljugur.
Í þættinum verður fjallað um sjálfsskaða og sálfræðilegar hugmyndir um það.
Hægt er að styrkja Poppsálina með rjúkandi heitum kaffibolla hér:
https://www.buymeacoffee.com/poppsalin
Farið er í nýjustu vendingar í máli Britney Spears en hún tjáði sig loksins um frelsissviptinguna sem hún er búin að lifa við í 13 ár.
Hvað sagði hún í dómsal?
Út á hvað gengur #FreeBritney hreyfingin?
Hvernig virkar þetta kerfi á Íslandi og hver er staðan hér á landi þegar kemur að frelsissviptingum?
Í þessum þætti af Poppsálinni verður farið í sérkennilega uppgerðarröskun sem nefnist Munchausen by proxy. Einnig verður farið almennt í Munchausen heilkenni, einkenni og mögulegar orsakir. Rætt verður um vöggudauða og tengingu þess röskunina. Farið verður í nokkur þekkt Munchausen by proxy mál eins og Gypsy Rose og rapparann Eminem.
Í þessum þætti er farið í sérkennilegan hóp sem nefnist Love has won. Leiðtogi hópsins Amy Carlson fannst látin fyrir stuttu síðan. Hún var vafin inn líkt og múmía, með ljósaseríu utan um sig og þakin glimmeri. Amy taldi sig vera margra milljarða ára gömul og hafa verið Marilyn Monroe í fyrra lífi. Einnig taldi hún að leikarinn Robin Williams heitinn væri hennar helsti samstarfsmaður.
Stórskrýtin saga um hættulega guðsmóður.
Welcome to the real world! It sucks. You're gonna love it!
Í þessum þætti mætir Sólrún Ósk Lárusdóttir sálfræðingur og snillingur í Poppsálina og ræðir sjónvarpsþættina Friends. Elva Björk þáttastjórnandi og Sólrún ræða um vinsældir þáttanna, sálfræðilegar hugmyndir um vinsældirnar og af hverju fólk í dag horfir enn. Einnig ræða þær um ólíku karakterana í þættinum og hvaða karakter var "bestur". Þær segja líka frá því sem þeim finnst vera truflandi við þættina, fitufordómana og fleira.
Minni á að hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér:
https://www.buymeacoffee.com/poppsalin
Í þessum þætti er farið í stór sérkennilegt mál sem flótti Latifu prinsessu frá Dubaí er. Farið verður yfir sögu Latifu, stöðuna í dag og þær óskýru myndir sem hafa birst af henni sem einhvers konar sönnun fyrir því að hún sé á lífi.
Hver er Latifa? Hver er faðir hennar, hvernig og af hverju er hún að flýja?
From the publisher's feed
Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan…