Poppsálin
Download on the App Store

Poppsálin episodes

  • Bohemian Grove: Mannfórnir og djölfadýrkun háttsettustu manna heims?

    Á hverju ári hittist hópur háttsettustu manna heims á stað sem nefnist Bohemian Grove. Myndir hafa náðst af fyrrum forsetum Bandaríkjana ræða þar málin meðfram því að stunda mannfórnir og tilbiðja guðlegar verur. 
    Hægt er að styrkja Poppsálina og fá aðgang að fleiri þáttum með því að gerast áskrifandi:
    https://www.patreon.com/Poppsalin


    38 min
  • Amy Winehouse: Einstaka röddin, vímuefnin og sjálfsskaðinn (Patreon þáttur)

    Hæfileikaríka söngkonan með einstöku röddina Amy Winehouse þurfti að glíma við alls konar djöfla á sinni stuttu ævi. 

    Hægt er að hlusta á þennan þátt með því að gerast styrktaraðili Poppsálarinnar fyrir 5 evrur á mánuði:  á https://www.patreon.com/Poppsalin
    Styrktaraðilar munu reglulega fá aukaþætti eða "snemm-aðgang" að þáttum Poppsálarinnar. 

    TW:

    Í þættinum er fjallað um sjálfsskaða, vímuefni og andlát. 

    10 min
  • Charles Whitman: Morðóður siðblindingi eða verkfræðinemi með heilaæxli?

    Fjöldamorðið við Texas Háskóla - Sálfræðileg greining
    Sumarkvöld eitt árið 1966 fór Charles Whitman upp í turn á skólalóð Texas háskóla.  Í 90 mínútur stóð hann í turninum og skaut handahófskennt á saklausa vegfarendur. Whitman drap 16 manns og særði 30 aðra. 
    Sálfræðin hefur lengi reynt að skilja svona morðæðishegðun og fara Elva og Vilborg sálfræðikennarar yfir fimm ólíkar sálfræðikenningar sem gefa innsýn í það morðæði sem rann á Charles þennan afdrifaríka dag. 
    Farið er í gegnum sjónarmiðin fimm í nútímasálfræði, sálgreiningu, mannúðarsjónarmiðið, líffræðilega sjónarmiðið, atferlissjónarmiðið og hugræna sjónarmiðið. 

    Hægt er að styrkja Poppsálin með því að gerast áskrifandi á https://www.patreon.com/Poppsalin

    Sem þakklætisvott fá áskrifendur einn auka þátt í mánuði. 

    1 hr 7 min
  • Samskynjun og hljóðhatur: Gulir tónar og grænar sjöur

    Hvernig er tölustafurinn 7 á litinn eða bókstafurinn B?
    Er þriðjudagur með sama vibe og október? 
    Er tíminn með form og lögun og vikudagar með ákveðna liti?
    Upplifir þú sterk viðbrögð við smatt hljóðum eða andardrætti annarra? 
    Í þessum þætti er fjallað um áhugavert fyrirbæri sem nefnist samskynjun. Reynsla fólks af þessu fyrirbæri fá að heyrast og farið verður í fræðilegar pælingar bak við þetta sérkennilega fyrirbæri.  Einnig verður rætt um annað tengt fyrirbæri sem nefnist hljóðhatur eða Misophonia. 

    49 min
  • Snapchat-perrinn Hörður, barnahneigð, barnaníð og meðferð

    Poppsálin heldur áfram að fjalla um ógeðsleg mál. Í þessum þætti verður talað um barnaníðinginn Hörð sem hefur verið í umræðunni undanfarið. Farið verður í sálfræðina bak við barnahneigð, greiningarviðmið, muninn á barnahneigð og barnaníð og mögulegar meðferðir. 

    Þessi þáttur er ekki endilega fyrir þau sem eru viðkvæmt fyrir svona málefnum. 

    47 min
  • R.Kelly - Barnaníð, barnaklám og gaslýsing

    Í þessum þætti verður fjallað um viðbjóðslegt mál söngvarans R. Kelly. Í þættinum er farið í sögur af hegðun hans. Farið verður í reynslu ungra stúlkna af honum og út á hvað gaslýsing gengur. 
    Þessi þáttur er ekki fallegur. Í þættinum má heyra stúlku lýsa kynnum sínum af R. Kelly og tilraunir hans til að sverja af sér alla ábyrgð. 

    49 min
  • Aaliyah - R&B prinsessan í klóm barnaníðings

    Í þessum þætti af Poppsálinni er fjallað um R&B prinsessuna Aaliyah en hún lést í flugslysi aðeins 22 ára gömul. Umræða um "samband" hennar og R. Kelly söngvara var hávær á sínum tíma og mun Poppsálin skoða það mál. En hvernig talað var um þeirra "samband" á sínum tíma er algjörlega sturlað. 

    25 min
  • Kpop: Þjálfunarbúðir, aðdáun, gleði og vel smurt viðskiptamódel

    Í þessum þætti fær Poppsálin til sín góðan gest. Guðrún Ólafsdóttir hefur mikinn áhuga dægurmenningu Suður Kóreu og kennir hún fjölbreytt námskeið hjá Endurmenntun HÍ, sem tengjast m.a. ferðalögum, s-kóreskri menningu og Kpop. 
    Í þættinum verður farið í einkenni K-pop, tenginguna við menningu landsins og þessa miklu innreið inn á Bandarískan og Evrópskan markað. 
    Einnig spjalla þær Elva og Guðrún um þjálfunarbúðirnar, samfélagsmiðla herferðir Kpop, persónulegu tenginguna við aðdáendur, gríðarlegu vinsældirnar og það vel smurða viðskiptamódel sem tónlistin er í Suður Kóreu. 


    42 min
  • Disney prinsessur: Kvenleiki og geislabaugar

    Í þessum þætti fær Poppsálar Elva til sín Önnu Eir, sálfræðisnilling með meiru. Þær ræða um Halo effect eða geislabaugsáhrifin, Disney prinsessur, útlit, kvenleika og líkamsímynd. 
    Elva segir einnig frá mjög vafasömum kenningum sem hún bjó sjálf til.  Allt mjög óviðeigandi en líka mjög skemmtilegt. 

    Endilega styrkið Poppsálina með kaffibolla:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    49 min

About Poppsálin

From the publisher's feed

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan…