Poppsálin
Download on the App Store

Poppsálin episodes

  • Íris Hólm - Jaðarpersónuleikaröskun, tilfinningaflóðið og ofurkraftarnir

    Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við söngkonuna Írisi Hólm um jaðarpersónuleikaröskun, fordóma, tilfinningaflóð, sjálfsvígshugsanir, ofurkraftana sem fylgja og það hvernig listin getur hjálpað.
    Þetta er ótrúlega mikilvægt málefni en svo virðist sem það sé ennþá tabú og upplifa margir fordóma þegar þeir segja frá þessari röskun.
    Í þættinum ræðum við um vanlíðan og sjálfsvígshugsanir og viljum við minna á Píeta samtökin. Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Hægt er að hringja í númerið 552 2218


    Hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér:https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    1 hr 11 min
  • Af hverju syrgjum við frægt fólk?

    Í þessum þætti af Poppsálinni verður fjallað um sorgina og af hverju við syrgjum fræga einstaklinga. Farið verður í reynslusögur einstaklinga sem hafa upplifað sterkar tilfinningar þegar frægur einstaklingur fellur frá. Hvernig leið okkur þegar Díana prinsessa lést, David Bowie, Kurt Cobain eða Robin Williams?

    Kafað verður ofan í sálfræðilegar pælingar um það af hverju við syrgjum fólk sem við þekktum ekkert, allavega ekki persónulega eða á gagnkvæman máta.

    "If you’re ever sad, just remember the world is 4.543 billion years old and you somehow managed to exist at the same time as David Bowie"


    Minni á að hægt að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffbolla :
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    46 min
  • Hvílir bölvun á Glee þáttaröðinni?

    Í þessum þætti verður farið yfir röð óhugnanlegra áfalla sem dunið hafa yfir leikara og starfsmenn Glee þáttanna. Sérkennileg dauðsföll, sjálfsvíg, barnaníð, eiturlyf, skilnaðir, ofbeldi, einelti og fleira hræðilegt hefur loðið við þættina. 
     
    Margir vilja meina að bölvun hvíli á meðlimum Glee þáttanna og verður farið í þær pælingar sem og sálfræðilegar skýringar bak við slíkar hugmyndir. 

    1 hr 1 min
  • Frelsum Britney - Þriðji þáttur

    Í þessum þætti er farið ítarlega yfir #FreeBritney málið. 
    Fjóla Heiðdal aðdáandi Britney Spears  og Daniel Oliver söngvari og veitingastaðaeigandi mæta í Poppsálina og kryfja málið. 
    Hvað varð til þess að Britney missti sjálfræðið?
    Væri staðan öðruvísi ef Britney væri karlmaður? 
    Hvað kom fram í myndinni Framing Britney?
    Hver eru Lou Taylor, Samuel Ingham og Andrew Wallet?
    Eru breytingar í vændum?
    Hvað er málið með Project rose? 
    Og margt margt fleira! 

    Ef þið hafið tök á þá megiði endilega styrkja Poppsálina með einum kaffibolla
    www.buymeacoffee/poppsalin


    1 hr 9 min
  • Svala Björgvins - Kvíðaröskun og tónlistin

    Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við popp-drottninguna Svölu Björgvins um kvíða, tilfinningar, sambönd og tónlistina.
    Svala lýsir kvíðaröskun sem hún hefur lengi verið að glíma við, þróun röskunarinnar og áföll sem ýtt hafa undir kvíðann. 
    Svala segir svo opinskátt og einlægt frá sinni  reynslu og því ekki annað hægt en að hlusta. 



    Hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    1 hr 4 min
  • Mannát og Armie Hammer

    Í þessum þætti verður farið í nýlegt mál, en The Social Network leikarinn Armie Hammer hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið vegna skilaboða sem hann hefur sent til nokkurra kvenna. 
    Hann segist vera mannæta og vilji borða þær. Nokkrar hafa stigið fram og sagt frá reynslu sinni af honum og ofbeldinu og verður farið í það í þættinum.
    Einnig er fjallað um kynlífstengdar raskanir  sem gætu tengst þessu máli og mögulegar orsakir þeirra. 

    40 min
  • Narsismi, lygar og Donald Trump

    Í þessum þætti af Poppsálinni verður farið í narsisma, sjálfsdýrkunar persónuleikaröskun, samviskubits aðferðir, gaslýsingu og narsisískan leiðtogastíl. Karakter og hegðun Donald Trumps verður skoðuð og gerð tilraun til að greina persónuleika hans. 

    1 hr 7 min
  • Guð heilkennið, sértrúarsöfnuður og Kanye West

    Í þessum fimmta þætti af Poppsálinni verður farið yfir sögu Kanye West og umdeilda hegðun hans. Sagt verður frá hugmyndum hans um guð, trúarbrögð og eigin hæfileika. Sunnudagsmessurnar,  Taylor Swift fíaskóið,  geðhvarfasýkin, mikilmennsku hugmyndir og guð heilkennið eða Messiah heilkennið. 

    38 min
  • Grunsamlegt dauðsfall Brittany Murphy

    Clueless stjarnan Brittany Murphy lést skyndilega árið 2009, þá einungis 32 ára gömul. Talið er að hún hafi fengið hjartaáfall eftir lungnabólgu, járnskort og lyfjanotkun. 
    En 5 mánuðum seinna deyr eiginmaður Brittany, á sama stað og á nákvæmlega sama máta!
    Hvað kom fyrir þau?
    Hvernig tengist Britney Spears málinu, landamæraeftirlit Bandaríkjana, siðblinda og persónuleikaröskun og sérkennilegt samband móður Brittany við eiginmann Brittany? 

    52 min
  • Kynlífsröskun og raunveruleikaþættir

    Í þessum þætti verður farið í vinsældir raunveruleikaþátta og ástæður þess. 
    Farið er í ólíkar tegundir af raunveruleikaþáttum, dramatíska ástarþætti eins og Love Island og The Bachelor, hönnunarþætti, matreiðsluþætti og fleiri. 
    Fjallað verður um nokkrar ólíkar sálfræði kenningar sem reyna að útskýra af hverju við höfum gaman af raunveruleikasjónvarpi. 
    Ein slík tengist kynlífsröskun!!!

    37 min

About Poppsálin

From the publisher's feed

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan…