Poppsálin
Download on the App Store

Poppsálin episodes

  • Heiðar Örn - Grunge áhrifin og Botnleðja

    Í þessum þætti fær Elva til sín meistarann Heiðar Örn söngvara Botnleðju. Þau ræða um Grunge tónlistarstefnuna, Nirvana og Kurt Cobain og áhrif þeirrar hljómsveitar á heila kynslóð. Heiðar segir frá þeim Botnleðju gaurum og ævintýrum þeirra .

    39 min
  • Kurt Cobain - andlát og samsæriskenningar

    Í þessum þætti er farið í mjög viðkvæmt mál.  Fjallað er um andlát Kurt Cobain, söngvara Nirvana.. Farið er í ýmsar staðreyndir og kenningar um dauða hans, ástæður, aðdragandann og mögulegar gerendur. 
    Í þessari viku fylgir auka þáttur með þessum þætti. Í þeim þætti spjallar Elva við Heiðar, söngvara Botnleðju um Grunge tónlist og áhrif Nirvana. 

    Fjallað er um sjálfsvíg og hvet ég þá sem finna fyrir vanlíðan og upplifa sjálfvígshugsanir að hafa samband við 1717 eða Píeta í síma 5522218. Einnig er hægt að fá ráðgjöf í gegnum netið hjá 1717.is  og getur ungt fólk nýtt sér ráðgjöf og stuðning Bergsins með því að hafa samband í síma 571 5580 eða bergid.is 

    39 min
  • Bríet - Frosið hjarta verður hlýtt

    Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við yndislegu söngkonuna Bríeti. 
    Ástarsorgin, uppgjörið, textarnir og tónlistin, útlitspælingar og álit annarra. 
    Einnig er farið í það af hverju við hlustum á sorglega tónlist þegar okkur líður illa. Af hverju veljum við að hlusta á sorgleg ástarlög þegar við erum í ástarsorg? 

    Hljóðgæðin eru ekki 100% þar sem þátturinn var tekinn upp í gegnum Zoom en aulalegur aðdáendatónn Elvu og einlægni Bríetar bætir vonandi upp fyrir það. 


    Minni á að hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    42 min
  • Kurt Cobain og sjálfsvígssmit

    Í þessum þætti er farið í mjög viðkvæmt mál.  Fjallað er um ævi Kurt Cobain, söngvara Nirvana. Rætt er um andlát hans, dagana fyrir það og þau áhrif sem það hafði á samfélag hans. Farið verður í smitáhrif sjálfsvíga eða Copycat suicide og í rannsókn á því hvernig dauði Kurt Cobains hafi áhrif á samfélagið í Seattle.

    Fjallað er um sjálfsvíg og hvet ég þá sem finna fyrir vanlíðan og upplifa sjálfvígshugsanir að hafa samband við 1717 eða Píeta í síma 5522218. Einnig er hægt að fá ráðgjöf í gegnum netið hjá 1717.is  og getur ungt fólk nýtt sér ráðgjöf og stuðning Bergsins með því að hafa samband í síma 571 5580 eða bergid.is 


    46 min
  • Af hverju "elskum" við morð?

    Í þessum þætti mætir Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði og lektor í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri og spjallar um af hverju við höfum svona mikinn áhuga á morðum og öðrum glæpum. Af hverju eru hlaðvörp um glæpi svona vinsæl sem og þættir um raðmorðingja? Einnig ræða þær Margrét og Elva um þá hugmynd að konur sæki frekar í svona efni og sæki jafnvel í að kynnast morðingjum persónulega. 

    Þátturinn var tekinn upp í gegnum Zoom og gæðin því ekki fullkomin. Vonum að það komi ekki að mikilli sök. Margrét bætir það upp með mjög áhugaverðu umfjöllunarefni. 



    43 min
  • Amanda Bynes: Frelsissvipt barnastjarna

    Í þessum þætti af Poppsálinni er farið í mál Amöndu Bynes sem var vinsæl barnastjarna sem lék í mörgum barna og unglingamyndum og þáttum. Fjallað er um möguleg veikindi hennar, langvarandi frelsissviptinguna og óhugnanlegar kenningar um aðal framleiðanda barnaþáttanna sem hún lék í, Dan Schneider. 

    Hægt er að styrkja Poppsálina með því að splæsa í einn kaffibolla eða svo:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    51 min
  • Britney Spears (4. þáttur) - Hvað er að frétta elskan?

    Í þessum fjórða þætti um hina yndislegu Britney Spears mæta Britney sérfræðingarnir Daniel Oliver og Fjóla Heiðdal í þáttinn og fara yfir stöðu mála.  Þau spjalla um sérkennilega hegðun hennar á Instagram undanfarið, sjálfræðissviptinguna, yfirlýsingu samfélagsmiðla konu sem starfar með Britney og rose eða red/pink verkefnin hennar Britney. 

    39 min
  • Meint andlát Avril Lavigne

    Í þessum þætti verður farið í sérkennilegt mál sem tengist popp pönk söngkonunni Avril Lavigne. Fyrir nokkrum árum fóru sögur á kreik um andlát hennar og telja margir að hún hafi látist árið 2003 og að leikkona að nafni Melissa Vandella hafi upp frá því leikið Avril Lavigne. 
    Þetta er stór skrýtið mál.
    Í þættinum verður líka farið í samsæriskenningar og afhverju það getur verið þægilegt að trúa á slíkar kenningar. 

    44 min
  • Michael Jackson - Líkamsskynjunarröskun, lýtaaðgerðir og andlát

    Í þessum öðrum þætti um Michael Jackson er fjallað um útlitsþráhyggju hans, útlits áhyggjur og líkamsskynjunarröskun eða Body dysmorphic disorder. Einnig er farið í aðdragandann að andláti hans og þátt einkalæknis í dauða Jackson. 

    Fjallað er um það sem hefur áhrif á þróun líkamsskynjunarröskunar og leiðir til að bæta líðan. 

    Minni á kaffibolla síðuna þar sem hægt er að styrkja Poppsálina um kaffibolla:
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    47 min
  • Michael Jackson og Pétur Pan heilkennið

    Í þessum fyrsta þætti um Michael Jackson verður fókusinn á sérkennilega og barnalega hegðun hans og tengsl við hegðunarmynstur eða röskun sem nefnist Pétur Pan heilkennið.

    Í næsta þætti verður farið í fleiri sálfræðileg fyrirbæri sem tengja má við söngvarann. 

    Ég minni á að hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla ;)
    https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

    40 min

About Poppsálin

From the publisher's feed

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan…