
Sign up to save your podcasts
Or


Sendu okkur skilaboð!
Föstudagskaffið er sjóðheitt þennan morguninn en gestur þáttarins er Sigurður Már sem hefur verið djúpur í heimi stafrænnar markaðssetningar um nokkurt skeið og nú nýlega í gervigreind. Iddi er vant við látinn í dag enda framlengdi hann páskunum í könglaparadísinni fyrir austan en Addi var á staðnum og tók spjallið við Sigurð. Stórmerkilegt spjall sem allir ættu að hlusta á. Sigurður er aðgengilegur á netfanginu [email protected] eða á instagram undir nafninu @siggim. Góðar stundir
Sendu okkur skilaboð!
Þar sem boltinn er farinn að rúlla í Bestu deildinni þá sáum við okkur tilknúna til að henda í knattspyrnuþema í dag. Knattspyrnusambandið sjálft er efniviður dagsins en óhætt að er að segja að sambandið hefur komist í krappan dans oft á tíðum undanfarin ár en stóra spurningin er auðvitað hvernig reksturinn gengur. Er allt í skrúfunni þar líka? Þið komist að því í þætti dagsins. Góða hlustun!
Sendu okkur skilaboð!
Gleðilega páska kæru hlustendur! Við vonum að þið séuð öll jafnmiklir páskaungar og hann Iddi sem rúllaði upp páskaquiz-i dagsins. Þó það séu páskar var þátturinn þó ekki fullkomlega málaður gulu en Ingvi gefur Chandler bræðrum yfirferð sem eru eflaust bestu fjárfestar sem þú hefur aldrei heyrt um. Arnar er þó meira í páskaþemanu og fer yfir dýrustu páskaegg allra tíma en fer einnig yfir eins árs gamalt efni úr Föstudagskaffinu þar sem þátturinn á eins árs afmæli á morgun! Góða hlustun.
Sendu okkur skilaboð!
Já, kæru hlustendur! Nú fer að nálgast páska og því var vel við hæfi að taka fyrir eitt stk. sælgætisgerð. Fyrir valinu varð Góa en fyrirtækið er rótgróið og skipar stóran sess í páskaeggjaflóði Íslendinga um hverja páska. Við viljum svo óska öllum launþegum sem eru að taka meira en viku páskafrí góðs frís.
Sendu okkur skilaboð!
Föstudagskaffið er sjóðheitt þennan föstudaginn en til okkar kom Ólafur Páll Einarsson framkvæmdastjóri Dokobit á Íslandi. Dokobit er fyrirtæki sem vinnur að því að einfalda líf almennings með pappírslausum undirskriftum en í þættinum ræðum við þessa þörfu þjónustu fram og til baka. Mjög fróðlegur þáttur sem þú, kæri hlustandi, ættir ekki að láta fram hjá þér fara. Góða helgi.
Sendu okkur skilaboð!
Þá er það þriðji þáttur í örseríunni okkar sem kennd er við Vítiskúreka. Að þessu sinni eru það þó ekki eigendur sem eiga í hlut heldur viðskiptavinir, sem oft á tíðum eru hreinræktaðir vítiskúrekar. Michelsen er einhver elsta starfandi verslun landsins sem hóf rekstur 1909 á Sauðárkróki í ljósi framboðsskorts á úrasölum á Íslandi. Stórmerkileg saga og kynngimagnaður rekstur í þætti dagsins.
Sendu okkur skilaboð!
Einn merkilegasti Pyngjuþáttur sem hefur verið gefinn út. Þessi þáttur er ráðgefandi. Við segjum ekki meir. Góða hlustun.
Sendu okkur skilaboð!
Við höldum ótrauðir áfram í seríunni "Kúrekar frá helvíti" en þetta er annar þáttur í seríunnar, þrátt fyrir að við höfum haldið því fram í byrjun þáttar að þetta væri sá fyrsti, enda alveg orðnir kolruglaðir á þessum seríum. Það má þó með sanni segja að hjá Ísteka eru hreinræktaðir vítiskúrekar, en starfsemin hefur verið ansi umdeild meðal almennings og því var vel við hæfi að taka þau fyrir hér í dag og kryfja reksturinn.
Sendu okkur skilaboð!
Það er þungt yfir þennan föstudaginn hjá Idda en Addi er sprækur sem lækur. Lavazzabræðu eru mættir enn einn föstudaginn til að halda netbankakúrekum landsins uppfærðum. Í þættinum koma drengirnir inn á margt skemmtilegt, allt frá munnskoli og upp í bindiskyldu bankana. Missið ekki af því!
Sendu okkur skilaboð!
Cowboys from hell er nýjasta sería úr framleiðslu Pyngjunnar og þar ríðum við á vaðið með Heimstaden, áður Heimavellir, sem hefur verið mikið í deiglunni síðastliðin ár. Við kryfjum þeirra nýjasta ársreikning og förum yfir söguna sem er einkar áhugaverð.