Pyngjan

Pyngjan

By PyngjanBusinessEducation
Download on the App Store

All Pyngjan episodes

  • Föstudagskaffið: Verður skattframtalið í mínus eða plús?

    Sendu okkur skilaboð!

    Það held ég kæru hlustendur. Þá er enn einn föstudagurinn runninn upp sem þýðir að föstudagskaffinu hefur verið sullað yfir allt borð. Það var á nægum fréttum að taka þessa vikuna en auk þess tuða þeir Addi og Iddi yfir kolefniseiningum og það ekki í fyrsta skiptið. Muniði svo eftir skattframtalinu. Gleðilegan föstudag.

    45 min
  • Ársreikningar: Vinnustofa Kjarval

    Sendu okkur skilaboð!

    Í dag er það Vinnustofa Kjarval sem flestir alvöru netbankakúrekar hafa rambað inn á á einhverjum tímapunkti, en staðurinn er ekki einungis bar fyrir pabbastráka heldur líka vinnustofa, eins og nafnið gefur til kynna, en þar geta aðilar gerst meðlimir og haft skrifstofuaðstöðu ásamt alls kyns öðrum fríðindum sem betur verður farið yfir í þættinum. Góða hlustun.

    1 hr 3 min
  • Uppgjörið: Fjórði ársfjórðungur Nova - Skemmtanastjórn

    Sendu okkur skilaboð!

    Uppgjörið er þáttur þar sem við kryfjum uppgjör fyrirtækja á markaði ásamt stjórnendum. Við fórum í höfuðstöðvar Nova og tókum þau Margréti Tryggvadóttur forstjóra og Þórhall Jóhannsson fjármálastjóra tali og fórum yfir nýjasta uppgjör félagsins.

    24 min
  • Ársreikningar: Hlemmur Mathöll

    Sendu okkur skilaboð!

    Það var löngu kominn tími á að kíkja á rekstrarmódel mathallar en í þætti dagsins tökum við fyrir Hlemm mathöll sem var fyrsta mathöllinn sem hóf rekstur í þeirri mynd sem við Íslendingar höfum vanist í dag. Stórskemmtilegur þáttur þó við segjum sjálfir frá! 

    1 hr 1 min
  • Föstudagskaffið: Amore, amore

    Sendu okkur skilaboð!

    Föstudagskaffið er stútfullt þennan morguninn en Ingvi vildi tileinka þættinum ástinni, enda valentínusar- og konudagur ný liðinn. Einnig verður farið yfir hvað ríkisstarfsmenn eru að eyða peningum ríkisins í og fleira til. Léttur og þægilegur þáttur með morgunbollanum.

    50 min
  • Ársreikningar: Kúkú Campers

    Sendu okkur skilaboð!

    Það eru tveir hugsjónamenn sem eiga sviðið í dag og það er óhætt að segja að þeir hlægi í dag. Hreinræktaðir HSHD sem fóru af stað með feita pælingu sem gekk upp og rúmlega það. Hér segjum við sögu Kúkú Campers sem er skólabókardæmi fyrir alla frumkvöðla. Góða hlustun.

    1 hr 16 min
  • Föstudagskaffið: Áslaug Arna kíkir í kaffi

    Sendu okkur skilaboð!

    Við fögnum endalokum seríunnar okkar um ammóníakfnyk almennings með því að fá til okkar Áslaugu Örnu Pyngjumálaráðherra. Þar skólar hún okkur til í ríkismálum sem eru alltof flókin fyrir menn með tvær háskólagráður.

    1 hr 12 min
  • Föstudagskaffið: 700 milljónir kjúklinga verða Ofurskálinni að bráð

    Sendu okkur skilaboð!

    Það er lærvolgt í dag kaffið og bakkelsið hefur aldrei verið sætara. Það er farið um víðan völl í Föstudags kaffi dagsins en þar ber þá helst að nefna Ofurskálina sem fer fram n.k. sunnudag. Auk þess ræðum við stýrivaxtahækkun, trúðadíl vikunnar á fasteignavefnum, dýrustu tölvuleikir heims, hvert peningur ríkisins fer og svo margt fleira. Gleðilegan föstudag kæru hlustendur.

    55 min